Læknablaðið - 15.11.1994, Qupperneq 12
448
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
í fyrsta hluta rannsóknarinnar sem fór fram
frá október 1990 til október 1993 er gerð grein
fyrir niðurstöðum mælinga á mótefnum gegn
lifrarbólguveiru C á sýnum sem send höfðu
verið til Rannsóknastofu Háskólans í veiruf-
ræði. Þangað berast sýni frá hinum ýmsu
sjúkrastofnunum og heilsugæslustöðvum.
Ástæður rannsóknanna eru margvíslegar, svo
sem gula, hækkuð lifrarensím í sermi, saga um
blóð- eða blóðhlutagjöf, eiturlyfjanotkun með
sprautum, blóðmengun til dæmis við stungus-
lys, blóðskilun og fleira.
í öðrum hluta rannsóknarinnar voru mæld
1192 sýni fengin frá Hjartavernd. Pau sýni voru
annars vegar úr slembiúrtaki sem notað hefur
verið til faraldsfræðilegra rannsókna hérlendis
og hins vegar frá einstaklingum sem komu til
athugunar af sjálfsdáðum eða vegna ábendinga
lækna. Einnig voru rannsökuð 345 sýni frá
Rannsóknastofu Háskólans í veirufræði frá
sjúklingum með ýmis einkenni, en sleppt var
sýnum þar sem beiðni gaf til kynna lifrarsjúk-
dóm. Voru sýni þessa hluta rannsóknarinnar
tekin snemma á árinu 1991.
f þriðja hluta rannsóknarinnar voru athuguð
sýni frá einstaklingum sem vitað var að hefðu
misnotað fíkniefni í æð. Sýni þessi voru tekin á
árunum 1990-1993.
í fjórða hluta rannsóknarinnar var könnuð
fylgni kjarnamótefna gegn lifrarbólguveiru B
og mótefni gegn lifrarbólguveiru C. Voru
rannsökuð sýni tekin á árunum 1990-1993 þar
sem fyrri rannsókn hafði leitt í Ijós kjarnamót-
efni gegn lifrarbólguveiru B, það er merki fyrri
sýkingar af völdum þeirrar veiru (24).
Niðurstöður
Mynd 1 sýnir fjölda umbeðinna rannsókna
fyrir lifrarbólguveiru C mótefnum og jafnframt
fjölda einstaklinga sem þá greindust með mót-
efni gegn veirunni. Voru þetta 69 einstakling-
ar.
í könnun á algengi mótefna meðal úrtaks
sýna frá Hjartavernd og Rannsóknastofu Há-
skólans í veirufræði reyndust þrír með mótefni,
er það 0,20% af heildarsýnahópnum. Að auki
voru fjögur sýni sem sýndu óákveðna svörun.
Aldurs- og kyndreifing sýnahópsins er sýnd í
töflu I og einnig aldur þeirra sem reyndust hafa
mótefni gegn lifrarbólguveiru C.
Af þekktum sprautufíklum reyndust 76
(57%) af 133 einstaklingum hafa mótefni gegn
lifrarbólguveiru C. Aldurs- og kyndreifing
sprautufíklanna er sýnd í töflu II og er greint
frá fjölda sýktra eftir aldri og kyni.
Af 160 einstaklingum með mótefni gegn Iifr-
arbólguveiru B voru 48 (30%) einnig með mót-
efni gegn lifrarbólguveiru C. Er þetta sýnt í
töflu III.
Mynd 2 sýnir aldurs- og kyndreifingu þeirra
sem fundust með mótefni gegn lifrarbólgu-
veiru C og tafla IV sýnir flokkun mótefnajá-
kvæðra einstaklinga eftir smitleiðum. Taldir
eru einstaklingar sem fundust í fyrsta hluta
Fjöldi
90 91 92 93
Mánuður/ár
Mynd 1. Fjöldi umbeditma rannsókna fyrir lifrarbólguveiru C sýkingu frá október 1991 til október 1993 ogfjöldi þeirra sem
greindust með mótefni gegn veirunni.