Læknablaðið - 15.11.1994, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
461
Table II. Factors associated with survival in patients with thyroid carcinoma (Cox's proportional hazard model, simultaneous
regression). DNA-ploidy and S-phase fraction included.
Hazard ratio 95% confidence bounds P-value
Years of diagnosis* 0.95 0.93-0.97 <0.001
Age* 1.06 1.04-1.08 <0.001
T4 vs others 3.7 2.1- 6.5 <0.001
Nodal status (NO vs N1-3) 2.1 1.3- 3.3 0.002
Distant Metastasis (MO vs M1) 2.4 1.2- 4.9 0.02
DNA-ploidy (diploid vs aneuploid) 1.4 0.8- 2.5 0.24
S-phase fraction (<3% vs 3=3%) 1.1 0.6- 2.0 0.75
Anaplastic ca. (vs papillary ca.) 15.2 5.2-44.6 <0.001
Medullary ca. (vs papillary ca.) 4.0 1.0-15.8 0.05
‘Continuous variables.
merggerðarkrabbameini eða villivaxtar-
krabbameini), kyn sjúklings auk þeirra þátta
sem sérstök áhersla var lögð á í þessari rann-
sókn en það voru niðurstöður úr DNA flæði-
greiningu.
Niðurstöður eru sýndar í töflu II. Þar kemur
fram að hvorki DNA innihald né S-fasa gildi
eru sjálfstæðir áhættuþættir, það er að segja
upplýsingar um þessa þætti auka ekki á ná-
kvæmni við mat á lífshorfum þessara sjúklinga.
Niðurstöðurnar sýna einnig að ekki er munur á
lífshorfum karla og kvenna í þessum sjúklinga-
hópi. Það er heldur ekki munur á horfum sjúk-
linga með totukrabbamein og skjaldbús-
krabbamein. Lífshorfur sjúklinganna í heild
hafa batnað á athugunartímabilinu og er um
marktæka breytingu að ræða en þetta sést
einnig á dánartíðninni (myndir 1 og 2).
Fjölbreytugreining var einnig gerð á öllum
hópnum þegar villivaxtarkrabbameinum var
sleppt og einnig á totukrabbameinum einum
sér en niðurstöðurnar voru svipaðar það er að
segja að hvorki DNA innihald í æxlisfrumum
né S-fasi juku nákvæmni við mat á lífshorfum.
Einnig voru æxlin skoðuð með tilliti til annarr-
ar skiptingar á S-fasa gildum án þess að niður-
stöðurnar breyttust.
A tímabilinu greindust einungis níu sjúkling-
ar með merggerðarkrabbamein í skjaldkirtli. í
sjö tilfellum var gerð flæðigreining. Af þessum
sjúklingum voru þrír látnir og höfðu þeir allir
mislitna æxli en þeir fjórir sem voru á lífi í lok
athugunartímabilsins höfðu tvílitna æxli.
Umræða
í þessari rannsókn voru skoðuð öll greind
tilfelli skjaldkirtilskrabbameins á Islandi á 36
ára tímabili. Nýgengi skjaldkirtilskrabbameins
hefur verið mjög hátt hér á landi síðustu ára-
tugi og er enn (15). Aðallega er þetta háa ný-
gengi vegna þess hversu algeng totukrabba-
mein eru eða 76% klínískt greindra tilfella á
rannsóknartímabilinu.
Jónandi geislun er sá þáttur sem best hefur
verið staðfestur sem orsök skjaldkirtilskrabba-
meins (16). Geislunin getur stafað af læknis-
fræðilegri meðferð og hefur sá þáttur verið
skoðaður hér á landi (17) án þess að samband
við hátt nýgengi hafi fundist. Einnig hefur ætt-
gengi verið skoðað, en ekki fannst ættgengur
þáttur meðal sjúklinga með totukrabbamein
(18) og engin ætt með aukna tíðni merggerðar-
meina hefur fundist hér á landi. Önnur atriði
sem skrifað hefur verið um sem orsakavalda
eru góðkynja sjúkdómar í skjaldkirtli (19) og
hormónaástand kvenna og barneignir (20). Því
hefur einnig verið haldið fram að matarvenjur,
sérstaklega neysla sjávarafurða gæti aukið
tíðni skjaldkirtilskrabbameins (21). Þetta hefur
ekki verið athugað sérstaklega hér á landi en
ólíklegt verður að telja að þessir þættir skýri
hátt og breytilegt nýgengi.
Eins og fram hefur komið varð mikil aukn-
ing á nýgengi skjaldkirtilskrabbameins hjá
konum á árunum 1965-1979. Aukninguna má
nær eingöngu rekja til totukrabbameina. Svip-
uð aukning átti sér stað í vestur og norður
Noregi (21). Því hefur verið haldið fram að
kjarnorkutilraunir Rússa á Novaja Semla á ár-
unum 1954-1962 gætu verið orsök þessa háa
nýgengis á áttunda áratugnum (21). A árunum
kringum 1960 sýndu mælingar að geislavirkt
úrfelli og meðal annars I131 mengun í mjólk var
talsvert meiri en síðar varð (22). Lækkun á
nýgengi eftir 1980 gæti samrýmst þessari kenn-
ingu en þá má spyrja af hverju breytingarnar
eru mismunandi eftir kynjum. Því má bæta við
að ný rannsókn frá Belarus í nágrenni Chern-
obyl sýnir mikla aukningu á tíðni skjaldkirtils-
krabbameins hjá börnum (23).