Læknablaðið - 15.11.1994, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
465
Lifrarúrnám vegna æxla í lifur
Reynsla af notkun hljóðbylgjuhnífs
Drífa Freysdóttir11, Jón Níelsson2’, Jónas Magnússon1)
Freysdóttir D, Níelsson J, Magnússon J
Hepatic resections. The results of using CUSA
Læknablaðið 1994; 80: 465-70
Hepatic tumours, both primaries and secondaries,
are common. They are seldom operable, but cura-
tive resections are sometimes possible. The aims of
the study were to present the result and experience
of liver operations (primaries, secondaries and be-
nign lesions) and to present the result of using CU-
SA in these operations.
A retrospective study was carried out to evaluate the
result of elective hepatic resections in Iceland be-
tween 1986-1993 with the aid of CUSA. The type of
tumour and resection, operative bleeding, transfu-
sions, hospital stay and complications were noted.
Kaplan-Meyer lifetable was used to estimate surviv-
al.
Fourteen patients underwent fifteen operations, fol-
lowed by six complications which resulted in five
reoperations and one percutaneous drainage.
Bleeding was 3000 ml (median, range 350-10.600
ml), transfusion was 3000 ml (median, range 0-
12.000 ml) and hospital stay was 24 days (range
9-108 days). There was no operative mortality. Four
of nine patients operated for secondaries are living
(44%), 15, 41, 46 og 72 months postoperatively (two
with recurrence). Two patients were operated for
hepatomas, and one of those is alive 86 months
postoperatively and is considered to be cured.
We conclude that hepatic resection can be carried
out in small centers with comparable results to large
published series. The ultrasonic scalpel CUSA
seems to make the resection tecnically easier and to
diminish the amount of bleeding.
Frá '’handlækningadeild Landspítalans og 2,skurödeild
Borgarspítalans. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Jónas Magnús-
son, handlækningadeild Landspítalans, 101 Reykjavík.
Ágrip
Æxli í lifur, bæði frumæxli og meinvörp, eru
algeng. Pótt sjaldnast séu þau skurðtæk, eru
læknandi aðgerðir stundum mögulegar. Til-
gangur rannsóknar okkar var tvíþættur, annars
vegar að gera grein fyrir árangri og reynslu af
aðgerðum á lifur vegna frumæxla og mein-
varpa og hins vegar að kynna árangur af notk-
un hljóðbylgjuhnífs (CUSA).
Gerð var afturskyggn rannsókn á öllum
sjúklingum, sem gengust undir valaðgerð (el-
ective) á lifraræxli með hjálp hljóðbylgjuhnífs á
Borgarspítala og Landspítala á árunum 1986-
1993, alls 14 sjúklingar. Sérstaklega var athug-
uð tegund æxlis, hvaða hlutar lifrar voru fjar-
lægðir, blæðing í aðgerð, blóðgjöf, legutími og
fylgikvillar. Lífslíkur voru metnar með líftöflu
að hætti Kaplan-Meyer. Einnig var athugað
hve langur tími leið þar til sjúkdómur tók sig
upp aftur.
Fjórtán sjúklingar gengust undir fimmtán
aðgerðir, sex fengu fylgikvilla sem leiddu til
fimm opinna enduraðgerða og einu sinni var
stungið á kýli. Miðtala blæðingar var 3000 ml
(350-10.600 ml), miðtala blóðgjafar var 3000
ml (0-12.000 ml), miðtala legu var 24 dagar
(9-108 dagar). Skurðdauði var enginn. Af níu
sjúklingum sem skornir voru vegna meinvarpa
í lifur, eru fjórir (44%) á lífi 15, 41, 46 og 72
mánuðum eftir aðgerð en hjá tveimur þeirra
hefur sjúkdómur tekið sig upp. Tveir sjúkling-
ar voru skornir vegna lifraræxlis og er annar á
lífi 86 mánuðum eftir aðgerð og telst læknaður.
Við ályktum að einnig hér á landi sé lifrar-
úrnám (resection) vegna meinvarpa eða frum-
æxlis í lifur álitlegur valkostur, þar eð annarri
meðferð er ekki til að dreifa og niðurstöður
okkar eru sambærilegar við það sem best gerist
erlendis. Hljóðbylgjuhnífur virðist gera þessar