Læknablaðið - 15.11.1994, Qupperneq 46
478
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Umræða og fréttir
Aðalfundur
Félags íslenskra heimilislækna
1994
Aðalfundur félagsins var
haldinn 17. september síðastlið-
inn í Reykjavík. Stjórn þess
næsta starfsár skipa Sigurbjörn
Sveinsson formaður, Ólafur
Stefánsson varaformaður,
Gerður Jónsdóttir gjaldkeri,
Haraldur Tómasson ritari og
Þórir B. Kolbeinsson með-
stjórnandi. í varastjórn eru Ás-
mundur Jónasson, Björgvin Á
Bjarnason, Pétur Hcimisson og
Vilhjálmur Ari Arason.
Eftirfarandi ályktanir voru
samþykktar á fundinum:
a. „Með vísun til stefnu
Læknafélags íslands, sem það
markaði með aðalfundarsam-
þykkt í Reykjavík 24. septem-
ber 1985, vill aðalfundur Félags
íslenskra heimilislækna, hald-
inn í Reykjavík 17. september
1994, beina því til heilbrigðis-
ráðherra, að sérfræðiviður-
kenning í heimilislækningum
verði gerð að skilyrði fyrir fast-
ráðningu heilsugæslulækna.
Heimilis- og heilsugæslulæknar,
sem fengið hafa fastráðningu,
haldi þó réttindum sínum til að
sækja um aðrar stöður.
Fundurinn ítrekar þessa af-
stöðu félagsins, sem marg oft
hefur komið fram allt frá árinu
1980 í bréfaskiptum við ráðu-
neytið, stöðunefnd og fleiri að-
ila. Fundurinn telur engin rök
fyrir því lengur, að ekki sé kraf-
ist sérfræðiviðurkenningar til
þessara starfa eins og raunin er
á um allar læknisstöður aðrar,
sem krefjast sérþekkingar."
b. „Aðalfundur Félags ís-
lenskra heimilislækna, haldinn í
Reykjavík 17. september 1994,
skorar á heilbrigðisráðherra að
beita sér fyrir því, að í þeirri
endurskoðun, sem nú fer fram á
reglugerð um veitingu lækn-
ingaleyfis og sérfræðileyfis,
verði heimild til að stunda sér-
fræðinám bundin við lækninga-
leyfi*. Enginn hafi heimild til að
stunda lækningar á eigin
ábyrgð, nema hann hafi sér-
fræðiréttindi. Námstími á
heilsugæslustöð þarf að vera
hluti af undirbúningsnámi
(„kandídatsári") lækna eftir
embættispróf.
Fundurinn bendir á, að nú-
verandi nám til embættisprófs í
læknisfræði miðast æ rneir við
undirbúning undir framhalds-
nám frekar en að þjálfa stú-
*Fengið eftir undirbúningsnám
fyrir sérnám samanber tillögur
Félags íslenskra heimilislækna
þar um frá 29. september 1993.
denta til læknisstarfa. Gildir
þetta ekki síður um „kandídats-
árið“, þar sem engar kröfur eru
gerðar um þjálfun í almennum
lækningum.“
c. „Aðalfundur Félags ís-
lenskra heimilislækna. haldinn í
Reykjavík 17. september 1994,
heimilar stjórn félagsins að
vinna verkfalli eða uppsögnum
brautargengis innan Læknafé-
lags Islands til að knýja á um
úrbætur í kjaramálum heimilis-
og heilsugæslulækna.“
d. „Aðalfundur Félags ís-
lenskra heimilislækna, haldinn í
Reykjavík 17. september 1994,
beinir því til stjórnar Læknafé-
lags Islands, að endurskoðuð
verði aðild þess að BHMR.“
Þá var samþykkt yfirlýsing
um málefni fjölskyldunnar og
birtist hún á öðrum stað í blað-
inu. Fjölmörg önnur mál voru
tekin til umræðu svo sem drög
að erindisbréfi yfirlækna á
heilsugæslustöðvum, gæða-
tryggingarmál, áfangadrög að
marklýsingu fyrir framhalds-
nám í heimilislækningum,
stofnun sérsviðshópa innan FÍH
(,,expert-groups“) og fleira.
Stjórn
Félags íslenskra heimilislækna