Læknablaðið - 15.11.1994, Page 54
484
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Framhaldsnám í læknisfræði
í Noregi
íslenskir læknar hafa um ára-
bil stundað framhaldsnám í
læknisfræði í Noregi. Ástæða er
til að ætla að fjöldi íslenskra
lækna í framhaldsnámi við
norsk sjúkrahús eigi eftir að
aukast á næstu árum. Fyrir-
spurnir um nám í Noregi hafa
aukist. Á vegum FILIN (Félags
íslenskra lækna í Noregi) hefur
því verið unnin sú samantekt
unr framhaldsnám í læknisfræði
sem hér fer á eftir. Þessari sam-
antekt er ekki ætlað að gefa
tæmandi upplýsingar um sér-
nám í læknisfræði í Noregi. Við
lestur samantektarinnar eiga
menn hins vegar að geta gert sér
grein fyrir í stórum dráttum
hvernig fyrirkomulagi sérnáms
er háttað. Aðeins hefur verið
unnt að fjalla sérstaklega um fá-
einar sérgreinar. Því er rétt að
benda á að uppbygging sér-
námsins er í stórum dráttum hin
sama í öllum greinum. Þeim
sem kynnu að óska nánari upp-
lýsinga er bent á að hafa sam-
band við einhvern þeirra ís-
lensku lækna sem starfa í Nor-
egi eða hafa samband við
norska læknafélagið.
I þessari samantekt er fjallað
um eftirtaldar sérgreinar:
barnalækningar, geðlækning-
ar, kvensjúkdóma og fæöingar-
hjálp, lyflækningar, skurð-
lækningar, svæfingalækningar
og örverufræði.
í Fréttabréfi lækna 6/94 voru
veittar almennar upplýsingar
um starfsaðstöðu þeirra er
stunda sérnám í læknisfræði í
Noregi auk þess sem sérstak-
lega var fjallað um nám í heimil-
islækningum og eru þær því ekki
með í þessari samantekt.
Lyflækningar
Samantekt unnin af Hrafnkeli
Þórðarsyni, Haukeland sjúkra-
húsinu í Björgvin
Kröfur til sérfræðiviðurkenn-
ingar í almennum lyflækningum
í Noregi svipar um margt til
þeirra krafna sem eru gerðar á
Islandi. Krafist er að menn
vinni í 60 mánuði á lyflækninga-
deild og að 12 mánuðir af þess-
um tíma séu á háskólasjúkra-
húsi, svokölluðu „grúppu 1“
sjúkrahúsi. Að auki er krafist 12
mánaða vinnu í hliðargrein,
sem getur verið hvers konar
læknisvinna á einhverskonar
þjónustudeild. Þá er krafist
þátttöku í námskeiðum samtals
160 tímum. Mest allur sá tími fer
í þátttöku í skyldunámskeiðum.
Rétt er að geta þess að kröfur
um þátttöku í námskeiðum eru
til endurskoðunar hjá norska
læknafélaginu og liggja fyrir til-
lögur um meira frjálsræði í vali á
framhaldsmenntunarnámskeið-
um. í almennum lyflækningum
liggur fyrir marklýsing fyrir
námið þar sem gerð er nákvæm
grein fyrir kröfum um starfs-
þjálfun, námskeiðaþátttöku,
þekkingu og færni. Þess er ósk-
að af hálfu norska læknafélags-
ins að yfirlæknar deilda votti
skriflega um kunnáttu og hæfni
umsækjenda í þeim þáttum
læknisfræðinnar sem sérfræð-
ingar í greininni þurfa að kunna
sérstaklega. Eftir þessu er farið
á mörgum sjúkrahúsum og
þurfa einstakir læknar sjálfir að
gæta þess fá kunnáttu sína vott-
aða.
í flestum greinum tekur nám í
undirgrein þrjú ár. Hægt er að
nota eitt ár af náminu í aðal-
grein samtímis til náms í undir-
grein. Hægt er að stunda flestar
undirgreinar almennra lyflækn-
inga í Noregi. Á sama hátt og í
aðalgrein eru í hverri undirgrein
gerðar ákveðnar kröfur um
þátttöku í námskeiðum. I hverri
undirgrein liggur fyrir marklýs-
ing að náminu þar sem gerð er
grein fyrir þeim lágmarkskröf-
um um hæfni og bóklega þekk-
ingu sem krafist er af sérfræð-
ingum í greininni. Til að kynna
sér námið til hlítar er því nauð-
synlegt að afla sér marklýsingar
og kynna sér efni hennar.
Barnalækningar
Samantekt unnin af Eddu Ólafs-
dóttur, Haukeland sjúkahúsinu
í Björgvin
í Noregi er tiltölulega auðvelt
að fá vinnu við barnadeild sem
aðstoðarlæknir. Einfaldast er
að fá afleysingastöðu í byrjun
sumars. Mikil samkeppni er um
námsstöður og því mikilvægt að
hafa eins til tveggja ára þjálfun á
barnadeild á íslandi áður en far-
ið er í sérnám til Noregs. Fljót-
lega er þess einnig krafist að
viðkomandi geti starfað sjálf-
stætt og því mikilvægt að hafa
haldgóða starfsreynslu.
Sérnám í barnalækningum er
samansett af fjögurra ára aðal-
menntun og eins árs hliðar-
menntun. Auk þess eru gerðar
kröfur um þátttöku í ákveðnum
fjölda námskeiða á tímabilinu.
Þá er einnig skylda að taka nám-
skeið í skipulagningu og stjórn-
un.
Aðalmenntunin er fólgin í
fjögurra ára þjónustu á viður-
kenndri barnadeild, þar af