Læknablaðið - 15.11.1994, Síða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
487
Óumbeðin smáskýrsla og ein lítil spurning
Nú er liðið tæpt ár síðan úr-
sögn mín úr Læknafélagi
Reykjavíkur og þar með
Læknafélagi Islands tók gildi og
ég verð að segja að mér líður
bara ágætlega, takk fyrir. Ég fæ
ekki betur séð en að Félag ís-
lenskra heimilislækna fullnægi
stórvel ntinni félagslegu þörf.
Nefndarstörf á vegum félagsins
taka í vetur einn helgardag í
mánuði auk funda einu sinni til
tvisvar í mánuði að afloknum
venjulegum vinnutíma. Skipu-
lagt fræðslustarf á vegum FÍH
er meira en hægt er að sinna.
Reglulega berst myndarlegt
fréttabréf FÍH með efni sem
höfðar meira til mín en efni
Læknablaðsins. Arlega er hald-
in árshátíð heimilislækna sem er
ágætis gleðskapur og gjörsam-
lega laus við yfirborðs hátíð-
leika sumra slíkra samkoma.
Kjaramál mín eru í höndum
FÍH í umboði frá LI. Það er því
eðlilegt að ég greiði með meiri
ánægju 7.500 krónur frjálst að-
ildarfélagsgjald til FÍH en sex
sinnum hærra skyldugjald til LÍ.
Mér er samt ekki alveg rótt.
Ég tel að læknar eigi að standa
saman og vera í einu félagi en
mér finnst að líkurnar á því að
Læknafélag íslands klofni var-
anlega aukist með hverjum
degi. Því hefur stöðugt vaknað
hjá mér eftirfarandi spurning:
Hvers vegna eru sérgreina-
læknar slíkir endemis aumingjar
félagslega að þeir geta ekki rifið
upp þetta Sérgreinafélag ís-
lenskra lækna og notað það til
að fylgja eftir kröfu sinni um
áframhaldandi tilvísanalaust
(og þar með dýrt) heilbrigðis-
kerfi í stað þess að nota lækna-
félögin til þess að kljúfa þau þar
með?
Halldór Jónsson,
Heilsugæslunni Lágmúla
Námskeið
Minnst 120 klukkustundir þar
með talin skyldunámskeið í
sníklafræði, sveppafræði,
spítalasýkingum, sýklalyfja-
fræði og stjórnun.
Samanlögð klínísk vinna í
aðalgrein og hliðargrein má
taka allt að eitt ár og verður að
vera minnst hálft ár. Umsókn
um sérfræðileyfi verður að
fylgja vottuð atriðaskrá. Nánari
upplýsingar fást í Árbók norska
læknafélagsins.
Geðlæknisfræði
Samantckt unnin af Andrési
Magnússyni, Ullevál sjúkrahús-
inu í Osló
Fyrst skal þess getið að Is-
lendingum er yfirleitt vel tekið í
Noregi. Vinnuálag er þolanlegt
á geðdeildum og föst laun betri
en á íslandi. Yfirleitt er auðvelt
að fá vinnu á geðdeildum. Oft-
ast fá menn fyrst stöður til
skemmri tíma en komast yfir-
leitt fljótlega í fastar stöður.
Það tekur fimm ár að vinna
sér inn norskt sérfræðileyfi í
geðlækningum. Norska sér-
fræðinefndin er þó mjög ströng,
nánast smásmuguleg. Fæstir ná
að ljúka námi á fimm árum.
Menn geta fengið metið allt að
tvö og hálft frá íslandi. Þeirri
vinnu þarf að lýsa mjög nákæm-
lega; hvernig sjúklingar voru á
viðkomandi deildum, hve mikið
gegnumstreymi var á deildun-
um, hvert hlutverk aðstoðar-
læknisins var, hvernig hann
leysti verkefni sín af hendi,
hvernig handleiðslu var háttað
og svo framvegis. Allir útlend-
ingar þurfa að vera minnst sex
mánuði á móttökudeild í Nor-
egi. Er það gert til þess að menn
þekki á norska löggjöf um inn-
lagnir á geðspítala gegn vilja
sjúklings. Slíkar innlagnir eru
mjög algengar. Aðstoðarlæknar
fá fræðslu og handleiðslu í
vinnutímanum, einnig er vinnu-
veitanda skylt að bjóða upp á
handleiðslu í sállækningum
(psychotherapy) í að minnsta
kosti 80 vikur. í Noregi er auð-
veldara að mennta sig í heild-
stæðri (dynamic) geðlæknis-
fræði heldur en í líffræðilegri
(biological), þó er allt hægt ef
viljinn er fyrir hendi. Það er
mögulegt að komast í rannsókn-
arstöður þegar lengra er komið í
námi. Þá þurfa menn helst að
hafa einhverja reynslu í rann-
sóknum því margir eru um hit-
una.
Af öllum sem sækja um
norskt sérfræðingsleyfi er kraf-
ist að þeir hafi verið á fimm
vikna fræðslunámskeiðum. Þau
eru haldin tvisvar á ári og skipu-
lögð af norska geðlæknafélag-
inu og eru aðstoðarlæknum al-
gerlega að kostnaðarlausu.
Vinnuveitanda er skylt að gefa
aðstoðarlæknum frí til fararinn-
ar og kemur það til viðbótar
sumarfríi og vaktfríum.
Það er mjög misjafnt hve stutt
er milli vakta, fer það eftir stærð
geðdeildarinnar. Vaktir eru
ýmist bundnar eða bakvaktir.
Yfirleitt fá menn frí út á vaktirn-
ar en séu þær þéttar eru þær oft
greiddar að hluta til. Algengur
vinnutími er 8:00 til 15:00.
í stjórn FÍLÍN sitja:
Hrafnkell Þórðarson for-
maður sími: 90- 47-55- 20
10 95, Ari Axelsson gjald-
keri sími 90- 47-55- 28 90
16, Edda Ólafsdóttir ritari
sími 90- 47-55-27 00 73.