Læknablaðið - 15.11.1994, Blaðsíða 72
500
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Novo Nordisk Foundation
Research Meetings
Norræna Rannsóknarnefndin (Nordisk Forsknings Komité) ráðgerir að veita allt
að 300.000 DKR á ári til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis eins
dags málþinga, fyrirlestra alþjóðlega viðurkenndra vísindamanna í tengslum
við innlend eða norræn þing, eða til að bjóða alþjóðlega viðurkenndum vísinda-
mönnum til stuttrar rannsóknardvalar og fyrirlestrahalds með innlendum rann-
sóknarhópum.
Starfsemin skal vera á sviði innkirtlafræði eða tilraunalífeðlisfræði. Hver styrkur
nemur 100.000 DKR, en getur numið hærri upphæð í undantekningartilvikum.
Umsóknir skal senda í fimm eintökum til:
Novo Nordisk Fonden,
Krogshöjvej 55,
2880 Bagsværd, Danmark
Sími: +45-44 42 65 01, bréfsími: +45 44 44 40 38
l umsókninni skal koma fram:
a) Rökstuðningur fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til
(mest ein síða).
b) Tímasetning og dagskrá starfseminnar, ásamt kostnaðaráætlun.
c) Greinargerð um virkni rannsóknarhóps umsækjanda á fræðasviðinu og
þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald þeirra
rannsókna.
d) Ritskrá er geri grein fyrir birtingu á helstu niðurstöðum rannsóknarhóps
umsækjanda síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður).
Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu póstlagðar í síðasta lagi 30. nóvem-
ber 1994. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem berast á bréfsíma verða
ekki teknar til greina. Umsóknum verður svarað um miðjan febrúar 1995.