Læknablaðið - 15.11.1994, Qupperneq 75
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
503
Ráðstefna um rannsóknir í
læknadeild 5.- 6. janúar 1995
Ráðstefna um rannsóknir í
læknadeild Háskóla íslands
verður nú haldin í sjöunda sinn
dagana 5,- 6. janúar næstkom-
andi í Odda. Umsjón með ráð-
stefnunni hefur Vísindanefnd
Iæknadeildar.
Pátttaka í dagskrá ráðstefn-
unnar miðast við kennara og
starfsmenn deildarinnar. það er
í læknisfræði, lyfjafræði, hjúkr-
unarfræði og sjúkraþjálfun sem
og starfsmönnum rannsóknar-
stofa og stofnana sem tengjast
deildinni og kennslusjúkrahúsa
landsins. Þá er aðilum sem
vinna að rannsóknum í sam-
vinnu við starfsmenn lækna-
deildar einnig boðin þátttaka,
jafnvel þótt þeir sjálfir teljist
ekki formlega til starfsmanna
deildarinnar. Einnig er nauð-
synlegt að rannsóknirnar teng-
ist læknadeild gegnum kennslu-
og rannsóknarstofnanir hennar
og/eða einhvern starfsmann
deildarinnar.
Gert er ráð fyrir frjálsum er-
indaflutningi (10 mínútur hvert
erindi auk 5 mínútna í umræðu)
og spjaldasýningu. Ágripin
verða gefin út í Fylgiriti Lækna-
blaðsins sem mun koma út fyrir
ráðstefnuna.
Skilafrestur ágripa er 15. nóv-
eniber.
Aðgangur að ráðstefnunni er
öllum opinn og er þátttökugjald
krónur 1.000 nema fyrir skráða
stúdenta krónur 500.
Veitt verður viðurkenning
fyrir framúrskarandi vísinda-
vinnu innan deildarinnar. Vís-
indanefnd óskar því eftir tillög-
um frá starfsmönnum deildar-
innar og er nauðsynlegt að
greinargerð fylgi. Farið verður
með allar tillögur sem trúnaðar-
mál.
Nánari upplýsingar veita
meðlimir Vísindanefndar:
Magnús Jóhannsson, Rann-
sóknastofu í lyfjafræði, Ármúla
30, sími 680806 eða 694397
Atli Dagbjartsson, Landspítala,
sími 601000
Karl Kristinsson, Landspítala,
sími 601000 eða 601956
Steinn Jónsson, Borgarspítala,
sími 696600
Ólafur Andrésson, Keldum,
sími 674700.
Þerapeia
Námskeið í stuðningsmeðferð
Föstudagur 18. nóvember kl. 09:00-17:45
Laugardagur 19. nóvember kl. 09:00-16:30
Námskeiðið ferfram áensku. Markhópur: Læknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og aðrir
faghópar, sem vinna með geðræn og sálvefræn vandamál. Hámarksfjöldi þátttakenda er
24. Heildarverð fyrir námskeiðin þrjú er krónur 24.000.
Þerapeia hf. mun í vetur gangast fyrir námi og þjálfun í virkri stuðningsmeðferð (dynamic
supportive psychotherapy), sem danski sálgreinandinn Henning Paikin mun veita for-
stöðu.
Haldin verða tvö tveggja daga námskeið með Paikin, hið fyrra 18.-19. nóvember og hið
seinna á vormisseri. Auk þess verður eitt tveggja daga námskeið í byrjun næsta árs, sem
kennarar Þerapeiu veita forstöðu. Þessi þrjú námskeið eru skipulögð sem ein heild.
Henning Paikin mun í fyrirlestrum sínunt fjalla um skilgreiningu á sállækningu (psychot-
herapy) og aðgreiningu virkrar stuðningsmeðferðar frá venjulegum viðtölum og frá
hefðbundinni sálgreiningu. Ennfremur mun Paikin fjalla um hugtök og aðferðir. leiðir og
markmið virkrar stuðningsmeðferðar.
Auk fyrirlestranna og umræðna mun fara fram handleiðsla í smærri hópum og munu
þátttakendur kynna sjúkratilfelli.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá Þerapeiu, Suðurgötu 12, í síma 62 39 90 kl. 13:00-
15:00. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til skrifstofu Þerapeiu eigi síðar en 11. nóv-
ember næstkomandi.