Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
267
Golfmót heilbrigðisstétta
Áhugahópur um golfíþrótt-
ina hefur gengist fyrir golfmót-
um fyrir heilbrigðisstéttir og
starfsfólk heilbrigðisstofnana
síðastliðin fimm ár. Mótið hefur
verið haldið á Svarfhólsvelli við
Selfoss.
Glaxo á íslandi hefur verið
svo vinsamlegt að styrkja mótið
þannig að veitt hafa verið veg-
leg verðlaun sem yfirleitt hafa
verið nytsamlegir hlutir fyrir
kylfinga svo sem golfkerrur,
golfpokar, hanskar, regnhlífar,
töskur, kúlur og fleira.
Samhliða þessu hefur svo
verið haldin sveitakeppni og
keppt um farandbikar sem gef-
inn er af Sjúkrahúsi Suðurlands.
Til þess að hafa fullgilda sveit
þurfa að vera minnst þrír frá
sama vinnustað þannig að þeir
þrír bestu telja.
Þátttakendum í mótinu hefur
fjölgað jafnt og þétt og hafa
komið víðs vegar að af landinu
þó flestir séu úr Reykjavík og
nágrenni.
Margar heilbrigðisstéttir hafa
tekið þátt í þessu móti en betur
má ef duga skal og ennþá eru
stéttir sem ekki hafa mætt. Það
má vera vegna þess að þeim hef-
ur ekki verið kunnugt um þetta
golfmót og hér með er reynt að
bæta úr því.
Vinsældir golfíþróttarinnar
fara sífellt vaxandi og golfvöll-
um fjölgar stöðugt á Islandi.
Margir fara til útlanda og spila
golf yfir veturinn til þess að
halda sér í æfingu því leiktíminn
á íslandi er jafn
langur íslenska
sumrinu. Víða
um land hefur
verið sköpuð æf-
ingaraðstaða yfir
vetrartímann og
er um að gera að
nýta sér hana til
þess að koma
sem best undan
vetri ef svo má
að orði komast.
Það góða við
golfíþróttina er að hún samein-
ar útiveru í fallegu umhverfi,
góða hreyfingu (því það er alltaf
að koma betur í ljós gildi göngu
fyrir líkamann), skemmtilegan
félagsskap og getur hentað allri
fjölskyldunni þegar börnin eru
aðeins farin að stálpast.
Golfmót heilbrigðisstétta
verður haldið fyrsta sunnudag
eftir verslunarmannahelgina á
Svarfhólsvelli v/Selfoss. Þá von-
umst við til þess að sjá ykkur
sem flest.
Endoscopy
Dagana 17. til 19. mars n.k. mun Japis halda sýningu á nýjum tækjum frá SONY, tengdum nútíma
lækningum. Þar verða meðal annars sýndar video-upptökuvélar fyrir Endoscopy og til upptöku af
smásjá, video-skjár (há-upplausna monitorar), video-myndbandstæki (bæði kyrr- og hreyfimyndar)
og há-upplausna video-prentarar.
Brautarholti 2 sími 562 5200
Colour Monitor
Camera Head
Endoscope Adaptor
□ Mount Head
Endoscope
Laser VideoDisc Recorder
or Still Video Recorder
Colour Video
Printer
Videocassette
Recorder
Þeir sem áhuga hafa,
eru vinsamlegast beðnir að tilkynna komu sína
í síma 562 5200 (Jón Sigurðsson)
eigi síðar en mánudaginn 13. mars.