Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 30
240 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 og vegna bættrar meðferðar vegna sjúkdóma sem áður ollu mikilli fötlun. Ekki er ástæða til annars en ætla að hliðstæð þróun eigi sér stað á íslandi. Við forvarnir og aðgerðir til að draga úr hjúkrunarþörf aldraðra væri eðlilegt að hafa hliðsjón af þeim þáttum sem sjálfstætt segja til um hjúkrunarþörf. Óhindrað aðgengi að öldr- unarlækningadeildum, styrk heimilishjálp og heimahjúkrun getur einnig að öðru jöfnu lengt tíma aldraðra utan stofnana. Heilabilun er vaxandi heilbrigðisvandamál með vægi á við hjartasjúkdóma og krabba- mein. Áætlað er að um 25% aldraðra þjáist af heilabilun á einhverju stigi (17). Fyrir þá sem hafa heilabilun á háu stigi, eru fáir aðrir kostir en vistun í hjúkrunarrými samkvæmt þessari rannsókn, þar sem stuðningskerfi rnaka og aðstandenda ræður ekki við hæstu stig heilabil- unar. Eðli sjúkdómsins samkvæmt er erfitt að mæta þörfum þessara einstaklinga innan heim- ilis, en heilabilaðir hafa oft erfiða fylgikvilla svo sem óróleika, skerta hæfni til að taka lyf, klæðast, annast persónuleg þrif og stjórna þvaglátum og hægðum. Aðstæður umönnunar- aðila ráða þó endanlega úrslitum um það hve- nær ákvörðun um umsókn er tekin (13,18). Niðurstöður okkar sýna að allt að helmingur heilabilaðra hafa tiltölulega góða líkamlega heilsu og hreyfigetu, en Alzheimer sjúkdómur sem er algengasta orsök heilabilunar (17), hef- ur iðulega ekki áhrif á hreyfigetu fyrr en á lokastigum sjúkdómsins. Vegna algengis heila- bilunar skapast möguleikar á sértækum úrræð- um fyrir valda einstaklinga með heilabilun sem meginvandamál, ef til vill betri og ódýrari en almenn hjúkrunarvistun. Sértæk dagvistun, sambýli sjúklinga með heilabilun, sérdeildir fyrir órólega eða hreyfihamlaða gætu verið mögulegir kostir. Val stofnana á einstaklingum af biðlista er frjálst. Niðurstöður okkar sýna þó að þjónustu- stofnanir sinna fyrst þeim einstaklingum sem eru í brýnastri þörf og sýnir það ábyrgðar- tilfinningu stofnananna. Þar sem langstærsti hluti þeirra sem eru metnir í hjúkrunarþörf eru metnir í mjög brýna þörf, er hins vegar ekki réttmætt að draga þá ályktun að vistun í hjúkr- unarrými sé ekki í samræmi við niðurstöður mats, enda þurfa stofnanir að velja á milli ein- staklinga sem nær allir búa við neyðarástand af einhverju tagi. Eldri rannsóknir hafa sýnt að forðast má vistunarúrræði með faglegu mati, lækningalegum aðgerðum og endurhæfingu (19,20). Þessi grein skoðareinvörðungu þá sem að mati fagfólks eru í þörf fyrir vistun, þrátt fyrir faglega íhlutun. Gögn vistunarmatsins gefa ekki upplýsingar um þá sem voru metnir og taldir í þörf fyrir önnur úrræði en vistun. Heildarstig hafa fylgni við huglæga niður- stöðu matsaðila, þannig að með vaxandi þörf fjölgar stigum, svo og með hækkandi þjónustu- stigi. Þetta samræmi milli stiga og huglægrar afstöðu styður gildi matsins. Þeir sem létust eftir að hafa verið metnir í þörf fyrir vistun höfðu fengið fleiri stig við síðasta mat og verið metnir í brýnni þörf miðað við þá sem lifðu út árið. Styður þetta vistunarmatið enn frekar sem mælitæki fyrir þau vandamál sem fylgja öldrun og hættu á andláti. Vistunarmat aldraðra hefur sannað ágæti sitt eftir reynsluna af fyrsta árinu. Það mælir það sem því er ætlað að mæla og gefur yfirsýn yfir vistunarmál aldraðra hverju sinni. Niðurstöður okkar rannsóknar sýna leiðir til þess að ein- falda matið eða auðvelda eftirlit. Þær ættu að nýtast sem viðmiðun fyrir síðari tíma og aðra staði á landinu, þar sem vistunarmál kunna að vera í öðrum farvegi en í Reykjavík, enda er framboð vistrýma miðað við þörf breytilegt eftir stöðum. Loks vekja niðurstöðurnar vonir um að mæta megi þörfum sérstakra hópa á hagkvæman hátt með úrræðum í samfélaginu sem geti verið ígildi hjúkrunarrýmis, svo sem sambýli fyrir heilabilaða. Þakkir Kristni Tómassyni lækni eru þakkaðar ábendingar á fyrri stigum handritsins og Helga Sigvaldasyni verkfræðingi fyrir tölfræðilega aðstoð. Loks eru sérstakar þakkir til Hrafns Pálssonar, formanns starfshóps um vistunar- mat. HEIMILDIR 1. Lög um málefni aldraðra. Stjómartíðindi. A deild, nr. 82/1989. 2. Jónsson PV. Bjömsson S. Mat á vistunarþörf aldraðra. Læknablaðið 1991; 8; 313-7. 3. GlantzSA. Primerof biostatistics. New York: McGraw- Hill, 1982. 4. Statistical Package for interactive Data Analysis. 6th ed. Australia: Macquarte University, 1992. 5. Mannfjöldi samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá Hag- stofu Islands 1. desember 1992 6. Hanley RJ, Alexcih LM, Wiener JM, Kennell DL. Pre- dicting elderly nursing home admissions — Results from the 1982-1984 National long-term care survey. Res Ag- ing 1990; 12: 199-228. 7. Nygaard HA, Albrektsen G. Risk factors for Admis- sions to a Nursing Home. A study of elderly people
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.