Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
253
Til stjórnar
Læknafélags íslands
Við undirrituð, sem erum öll
meðlimir í Læknafélagi Islands,
lýsum furðu okkar yfir skrifum
formanns LÍ um tilvísanamálið í
ritstjórnargrein Læknablaðsins,
sem nýlega kom út. Að sjálf-
sögðu er formaður LÍ í fullum
rétti til að túlka skoðanir sínar
og meirihluta félagsmanna op-
inberlega. í>að sem er ámælis-
vert er, að hann gerir ekki til-
raun til að segja frá öðrum sjón-
armiðum umtalsverðs hóps í
félaginu. Hann styður í sínum
málflutningi sjónarmið sérfræð-
inga, en gerir enga tilraun til að
koma fram skoðunum heimilis-
lækna í þessu máli. Sérstaklega
á þetta við um kvartanir okkar
yfir mjög skertu upplýsinga-
flæði frá sérfræðingum um þá
sjúklinga sem til þeirra hafa leit-
að án tilvísunar heimilislæknis.
I grein sinni fullyrðir formaður
LI órökstutt, að samskiptin séu
„mikil og góð“, án þess að
minnast á áhyggjur heimilis-
lækna af hinu gagnstæða og seg-
ir með því að í áralöngu barátt-
umáli fyrir bættum boðskiptum
fari heimilislæknar með stað-
lausa stafi. Formaður Læknafé-
lags íslands verður að gæta
þess, þegar hann kemur fram
opinberlega eða skrifar um
þessi mál, að ólík sjónarmið
komi fram. Það er okkar skoð-
un, að formaður Læknafélags
Islands eigi að vera sameining-
artákn allra lækna, en það sjón-
armið hefur Sverrir Bergmann,
formaður LÍ, ekki haft að leið-
arljósi. Lýsum við yfir vanþókn-
un á slíkum skrifum.
Reykjavík, 7. febrúar 1995
Gunnar Helgi Guðmundsson
Katrín Fjeldsted
Magnús R. Jónasson
og fagi mega teljast yfirburða-
menn á alþjóðamælikvarða.
í framhaldi af einarðri fram-
göngu formanns L.í. vil ég að
lokum biðja alla heimilislækna
landsins, einnig þá sem af geð-
leysi hafa látið traðka á sér ára-
tugum saman, að mynda sér
skoðun á því, hvort ávinningur
okkar af félagsaðild að L.í. sé
árgjaldsins virði. Einnig bið ég
heimilislækna að velta því fyrir
sér, hvaða samleið við eigum
með þeim sérfræðingum sem
undanfarið hafa í fjölmiðlum
markvisst kastað rýrð á þekk-
ingu okkar og hæfni og æst
sjúklinga okkar upp á móti okk-
ur og fyllt þá tortryggni.
Akureyri 5/2 1995
Pétur Pétursson
ítarlegri heimildir:
Félagsmál, rit T.R. 1981-1990.
Pétur Pétursson: Heilsugæsla í Bolungar-
vík 1983-1986. Heilbrigdisskýrslur, fylgi-
rit nr. 5. Landlæknisembættid 1988.
Pétur Pétursson: VVhat determines a fami-
ly doctor’s prescribing habits for antibiot-
ics? - A comparative study on an doctor’s
own behaviour in two different settings.
(Handrit bíður birtingar).
Peter Franks, Carolyn Clancy, Paul Nutt-
ing: Gatekeeping revisited - Protecting
patients from overtreatment. N Engl J
Med 1992, 327:424-429.
Inflúensa
1994-95
í janúar 1995 ræktaðist
inflúensa A(H3N2) frá
einum sjúklingi. Stofninn
var sendur til WHO
Collaborating Center for
Influenza Reference,
National Institute for
Medical Research, Lon-
don, þar sem nánari
greining var gerð. Skyld-
leiki hans reyndist mest-
ur við viðmiðunarstofna
frá 1994;
A/Bangkok/122/
94(H3N2) og
A/Johannesburg/33-/
94(HrN2).
Þeir stofnar eru lítillega
breyttír frá A/Shang-
dong/9/93(HrN2), sem
var viðmiðunarstofn fyrir
A(H3N2) þátt bóluefnis-
ins 1994-95.
Auk þess hefur in-
flúensa A(H3N2) verið
staðfest með Hl-prófi á
pöruðum blóðsýnum frá
þremur sjúklingum, sem
allir veiktust í janúar
1995.
Sigríður Elefsen
Rannsóknastofu HÍ í
veirufræði