Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 60

Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 60
266 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Frá Lífeyrissjóði lækna í janúarhefti Læknablaðsins voru birtir ársreikningar Líf- eyrissjóðs lækna fyrir árið 1993. Þar kom fram að staða sjóðsins hefur batnað umtalsvert á und- anförnum árum. Almenn við- miðun er að ávöxtun verði að vera að minnsta kosti 3% um- fram launahækkanir. Raun- ávöxtunin hefur hins vegar verið talsvert meiri. Vextir und- anfarinna ára hafa verið háir og mikill hluti eigna sjóðsins er bundinn í verðbréfum með há- um vöxtum. Ef uppgjör sjóðsins væri miðað við hærri vexti en þau 3% sem bankaeftirlit Seðla- bankans miðar við, þá myndi höfuðstóll sjóðsins hækka mik- ið. Sjóðstjórn telur sjálfsagt mál að lífeyrisþegar njóti nú þegar góðs af bættri stöðu sjóðsins, og ákvað að fengnum tillögum frá tryggingafræðingi, að hækka líf- eyri um 10% frá síðustu áramót- um. Það skapar alltaf visst óöryggi að tengja lífeyri við launataxta. Sveiflur geta orðið miklar og duttlungafullar. Á undanförn- um árum hafa verið mjög litlar launahækkanir hjá læknum og því ávöxtun sjóðsins umfram kauphækkanir talsvert mikil, ef læknum tækist hins vegar að semja um umtalsverðar launa- hækkanir þá yrði ávöxtun nei- kvæð. Þetta leiðir til þess að líf- eyrissjóðurinn verður að bak- tryggja sig fyrir slíkum „áföllum“ með því að áætla líf- eyri hóflega. Ef stöðugleiki greiðslna væri á hinn bóginn meiri og sveiflur minni, þá yrði hægt að greiða hærri lífeyri. Af þessum sökum hafa nokkrir líf- eyrissjóðir þegar tengt lífeyri við lánskjaravísitölu. Bankaeft- irlit Seðlabankans hefir jafnvel tekið undir það sjónarmið að 3,5% vextir verði notaðir við uppgjör þeirra sjóða sem tengd- ir eru lánskjaravísitölu. Á komandi mánuðum verður hafist handa við að endurskoða reglugerð sjóðsins og á næsta aðalfundi verða væntanlega lagðar fram breytingartillögur í þá átt að binda lífeyri við láns- kjaravísitölu. Utreikningur á stigaeign breytist ekki og stiga- fjöldi verður áfram grundvöllur lífeyrisútreiknings. Skattar: Nú um áramót gengu í gildi nýjar reglur við út- reikning á staðgreiðslu skatta hjá lífeyrisþegum 70 ára og eldri. Heimilt er nú að draga 15% af lífeyrisgreiðslum frá áður en staðgreiðsla skatta er reiknuð. Þetta hefur verið gert frá síðustu áramótum og líf- eyrisþegar væntanlega orðið varir við auknar ráðstöfunar- tekjur af þessum sökum, auk 10% hækkunar sem að framan greinir. Lán: Á fyrsta fundi stjórnar lífeyrissjóðsins á hverju ári eru ákveðin hámarkslán. Sjóðfélag- ar hafa margir kvartað yfir lág- um lánum, en hámarkslán var í fyrra tvær milljónir. Þessar ákvarðanir eru leifar frá verð- bólgutímanum, þar sem lánin voru nánast styrkir. Nú í bili að minnsta kosti er verðlag stöð- ugt. Því var ákveðið að koma til móts við sjóðfélaga og hækka hámarkslán í tvær og hálfa mill- jón fyrir þá sem hafa greitt fullt stig í að minnsta kosti fjögur ár. Lánin eru til 15 ára, vextir eru nú 6%. Niels Chr. Nielsen, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Iækna Novo Nordisk sjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um rannsóknarstyrki sem Rannsóknaráð Norður- landa veitir. Rannsóknaráð Norður- landa veitir styrki til grunnrannsókna og klín- ískra rannsókna á sviði innkirtlafræði. Styrkir eru ekki veittir til greiðslu ferðakostnaðar, prentkostnaðar eða launa- kostnaðar vegna vísinda- manna er vinna að rann- sókninni, ekki heldur til tækjakaupa ef framlag frá nefndinni þarf nauðsyn- lega að vera meira en DKK 50.000.- Árleg úthlutun úr sjóðnum fer fram í ágústlok 1995. Gert er ráð fyrir að um sex milljónir danskar krónur séu til úthlutunar. Nota skal ný umsóknar- eyðublöð (1995) með ítar- legum leiðbeiningum. Eyðublöðin fást annað- hvort prentuð eða á disk- lingi (DOS/WP5.1) hjá skrifstofunni: Novo Norkisk Fonden Krogshöjvej 55 2880 Bagsværd sími +45 44 42 65 01 bréfsími +45 44 44 40 38. Umsóknir skal einnig senda á það póstfang. Til að umsókn teljist gild þarf hún að vera fullgerð og póststimpluð í síðasta lagi 30. apríl 1995. Bráða- birgðaumsóknir eða um- sóknir sendar með bréf- síma eru ekki teknar til greina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.