Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
269
páskaúthlutun og hitt fyrir
sumarúthlutun. Þau skýra
sig sjálf. Mælst er til að menn
noti sér sex valkosti fyrir
sumarúthlutun og tvo fyrir
páskaúthlutun, við það auk-
ast dvalarmöguleikar. Um-
sóknarfrestur fyrir sumar- og
páskaúthlutun er eins og get-
ið var um í síðasta blaði, lok
mars, póststimpill gildir. Út-
hlutun fer fram fyrstu vikuna
í apríl. A komandi árum
verður umsóknarfrestur
fyrir páska- og vetrarúthlut-
un lok febrúar.
4. Verð á orlofshúsum hefur
verið ákveðið fyrir 1995:
A. 10.000 fyrir viku í íbúð-
unum allt árið. B. 10.000
fyrir páska- og sumarúthlut-
un í Miðhúsabústaðnum,
Húsafelli, Hreðavatni og
Lindarbakka, 8.000 fyrir
páska- og sumarúthlutun í
Brekkuskógi. Hálft gjald er
fyrir vetrarúthlutun í bú-
stöðunum. Lindarbakki er
eingöngu í sumarleigu.Vetr-
ardvöl er hægt að bóka þann
vetur sem er að líða, en
aðeins viku í senn. Staðfesta
verður pöntun innan viku
með greiðslu.
5. Nýju valkostirnir:
A. Lindarbakki er nýr bústað-
ur 10 km norðan við Höfn,
skammt suðaustan við
mynni Hoffellsdals. Bú-
staðurinn er tekinn á leigu
til reynslu í sumar og áfram
ef vel tekst til. Miklir úti-
verumöguleikar eru á svæð-
inu. Eigandi hússins Skarp-
héðinn Larsen er menntað-
ur leiðsögumaður og mun
hann meðal annars bjóða
upp á ferðir á Vatnajökul á
sérútbúnum jeppa og fleira.
Fólk er hvatt til að kynna
sér þá möguleika sem hann
býður upp á og nota sér þá,
eftir því sem við á og eins að
nota sér leiðbeiningar hans
um gönguleiðir. Þá skal
bent á Ferðafélagsbækur
1974 og 1993 eftir Hjörleif
Guttormsson.
B. Húsafell. Þar hefur orlofs-
heimilasjóður tekið á leigu
65 m2 hús, frá og með næstu
páskum til tveggja ára. Hús-
ið stendur stakt vestan
Kaldár ofan við Húsafells-
bæina. Um það er víðigerði
og skjólsæll garður. Stefnt
er að því að flytja húsið í
skóginn í lok september
næsta haust. Þetta er gott
heilsárshús og eru menn
hvattir til að nýta það allt
árið. Útiverumöguleikar í
Húsafelli eru miklir og um-
hverfið með því fegursta
sem gerist hérlendis. Arnar-
vatnsheiðin, rómuð fyrir sil-
ungsveiði og mývarg er ekki
fjarri. Langjökulsferðir eru í
boði. Stóru hellarnir í Hall-
mundarhrauni, Surtshellir,
Stefánshellir og Víðgelmir
eru ekki langt undan.
Draugarnir sem Snorri heit-
inn skyldi eftir í Bæjargilinu
sveima um nágrennið. Þá
verstu setti hann reyndar
niður í Draugagili í Strút.
Sundlaug er í Húsafellsskógi
og margt fleira.
C. Síðasti möguleikinn er tólf
niðurgreiðslur eða orlofs-
styrkir. Þessi möguleiki er
hlutagreiðsla í orlofshúsi að
eigin vali. Viss vandi er með
beinan óskilgreindan styrk
skattalega séð. Því varð úr,
að ákveðið var að greiða
60% eða allt að 20.000 kr
fyrir vikudvöl í orlofshúsi
eða húsum að eigin vali.
Greiðsla fer fram á skrif-
stofu læknafélaganna gegn
framvfsun reiknings að or-
lofsdvöl lokinni. Hér er
aðeins um 12 orlofsstyrki að
ræða og verða þeir aðeins
greiddir þeim sem fá úthlut-
að. Mælt er með Ferðaþjón-
ustu bænda og hugsanlega
Edduhótelum í þessu tilliti.
Þessir þrír valkostir eru til
reynslu og framhald ræðst af
undirtektum.
Orlofsnefnd mun í framtíð-
inni ekki hafa bein afskipti af
úthlutunum. Þær verða í hönd-
um skrifstofu læknafélaganna
samkvæmt því sem að ofan
greinir. Nefndin mun sjá um or-
lofshúsin og ýmis skipulagsmál í
umboði stjórna læknafélag-
anna. Hafi menn athugasemdir
eða tillögur eru þeir endilega
beðnir að senda nefndarmönn-
um eða stjórnarmönnum lækna-
félaganna línu.
Mikilvægt er að hugmyndir
eða kvartanir séu settar á blað,
þannig má best velta þeim fyrir
sér og taka til þeirra afstöðu.
Eru menn eindregið hvattir til
þess að láta í sér „heyra“ bréf-
lega. Mönnum er bent á að
koma minniháttar ábendingum
um húsbúnað og lagfæringar á
framfæri við umsjónarfólk á
staðnum eða skrifstofu læknafé-
laganna. Að Hreðavatni er eng-
inn til umsjónar og þar geta
menn snúið sér til skrifstofunn-
ar eða Jóhönnu Björnsdóttur í
Orlofsnefnd með ábendingar.
Allar breytingar á orlofsmálum,
sem hér eru settar fram, eru á
ábyrgð formanns Orlofsnefnd-
ar. Reynt var að samræma og
taka sem mest tillit til skoðana
samnefndarmanna, fyrrverandi
formanns, stjórnarmanna
læknafélaganna og starfsfólks á
skrifstofu. Samstaða er um
flest, nema lið C hér að ofan,
orlofsstyrki. Helstu vankantar
hafa þó verið sniðnir af og var
ákveðið að taka hann með til
reynslu, í þeirri mynd sem að
ofan greinir.
Árni B. Stefánsson