Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 9

Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 365 aðeins greinst þrjú tilfelli Creutzfeldt-Jakob sjúkdóms. Það jafngildir árlegri dánartíðni 0,37 per milljón íbúa og er í lægri mörkum þess sem víðast er í heiminum. Ef tekið er mið af neysluvenjum mörlandans hefði mátt búast við að árleg dánartíðni væri hærri hér en víðast annars staðar. Þess má geta að fyrir nokkrum árum var sýnt fram á að hin háa tíðni Creutzfeldt-Jakob sjúkdóms hjá ofangreindum gyðingum var vegna arfgengs forms þessa sjúk- dóms (8). Getum við þá ekki slakað á klónni? Engin kúariða hérlendis og engar vísbendingar um að riða í sauðfé berist í menn. Svarið er neitandi. Við verðum að fylgjast grannt með framvindu mála ytra, það er að segja hvort sönnur verða færðar fyrir þeirri tilgátu að kúariða geti borist í menn og valdið Creutzfeldt-Jakob sjúkdómi. Jafnframt er mikilsvert að fylgjast áfram vel með nautgripum og sjúkdómnum hérlendis. Mikilsvert er að efla rannsóknir á riðu í sauðfé, þareð margir þættir í samspili hýsils og smitefn- is eru óþekktir og aðstaða um margt betri hér- lendis en víðast hvar í heiminum til að leita svara við mörgum ögrandi spurningum. Þar skiptir mestu mjög góð þekking á faraldsfræði riðu og reynsla við greiningu sjúkdómsins en slíkt er nauðsynlegur grunnur til að beita nýrri aðferðum, eins og til dæmis sameindaerfða- fræði, á markvissan hátt við rannsóknir á eðli sjúkdómsins. Ennfremur ætti þetta að verða okkur hvatning til að fylgja fast eftir þeirri áætlun, sem unnið hefur verið eftir um alllanga hríð og hefur að markmiði að útrýma riðu hér- lendis. Takist það má ætla að íslenskar sauð- fjárafurðir verði eftirsóknarverð vara víða er- lendis. Rétt er einnig að að gæta framvegis sem hingað til mikillar varúðar við innflutning á landbúnaðarafurðum og búpeningi á fæti. Það ætti einnig að vera okkur íhugunarefni að óstaðfestur grunur um að breskt nautakjöt kynni að geta leitt til Creutzfeldt-Jakob sjúk- dóms virðist muni valda hruni í blómlegri bú- grein. Hvað um fiskmarkaði okkar ef sá kvittur kæmi upp að kjarnorkuslys hefði orðið á mið- um við landið og fiskur af íslandsmiðum væri geislamengaður. Guðmundur Georgsson, Tilraunastöð Háskóia íslands í meinafræði að Keldum HEIMILDIR 1. Prusiner SB. Novel proteinaceous infectious particles cause scrapie. Science 1982; 216: 136-44. 2. Westaway D, Carlson GA, prusiner SB. On safari with PrP: prion diseases of animals. Trends Microbiol 1995; 3: 141-7. 3. Brown P, Gibbs Jr CJ, Rodgers-Johnson P, Asher DM, Sulima MP, Bacote A, et al. Human spongiform enceph- alopathy: The National Institute of Health series of 300 cases of experimentally transmitted disease. Ann Neurol 1994; 35: 513-29. 4. Brown P, Cervenáková L, Goldfarb LG, Combie WR, Rubenstein R, Will RG, et al. Iatrogenic Creutzfeldt- Jakob disease: an example of the interplay between an- cient genes and modern medicine. Neurology 1994; 44: 291-3. 5. Wilesmith JW. An epidemiologist’s view of bovine spon- giform encephalopathy. Phil Trans R Soc Lond B 1994; 343: 357-61. 6. Will RG, Ironside JW, Zeidler M, Cousens SN, Estibeiro K, Alperovitch A, et al. A new variant of Creutzfeldt- Jakob disease in the UK. Lancet 1996; 347: 921-5. 7. Herzberg L, Herzberg BN, Gibbs Jr CJ, Sullivan W, Amyx H, Gadjusek DC. Creutzfeldt-Jakob disease: hy- pothesis for high incidence in Libyan Jews in Israel. Sci- ence 1974; 186: 848. 8. Korczyn AD, Chapman J, Goldfarb LG, Brown P, Gad- jusek DC. A mutation in the prion protein gene in Creutz- feldt-Jakob disease in Jewish patients of Libyan, Greek, and Tunesian origin. Ann N Y Acad Sci 1991; 640:171-6.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.