Læknablaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 26
380
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Eru marktækniniðurstöðurnar fengnar með
tvíhliða prófun.
Niðurstöður
í fyrri hluta rannsóknarinnar höfðu 37 sjúk-
lingar með rauða úlfa (57%) einkenni frá
taugakerfi, en í síðari hlutanum 32 sjúklingar
(49%) og samanlagt höfðu 46 sjúklingar (71%)
fengið eitt eða fleiri einkenni frá taugakerfi.
Niðurstöður fyrri hluta rannsóknarinnar eru
sýndar í töflu I. Höfuðverkur var algengasta
einkennið og geðrof það næstalgengasta.
Sjúklingarnir þrír með flog höfðu allir mót-
efni gegn tvístrengja DNA. I einu tilviki voru
flogin á meðal fyrstu einkenna rauðra úlfa, er
sjúklingurinn fékk bráða heilabólgu og út-
breidda krampa, sem þróuðust yfir í síflog.
Síðan hefur sjúklingurinn notað krampalyf og
fær nú stöku sinnum staðbundin eða útbreidd
flog. Annar sjúklingur hafði í nokkur ár fengið
staðbundin flog með flóknum einkennum
(gagnaugablaðsflog) og útbreiddum krömpum
í kjölfarið, þegar önnur einkenni rauðra úlfa
komu fram. Þessi sjúklingur notar stöðugt
krampalyf. Þriðji sjúklingurinn fékk heilablóð-
fall 20 árum eftir að fyrstu einkenni rauðra úlfa
komu fram. í kjölfarið kom staðbundin floga-
veiki sem krafist hefur stöðugrar krampalyfja-
meðferðar.
Hjá sjúklingnum með rykkjabrettur (chor-
ea) birtust önnur einkenni rauðra úlfa ekki fyrr
en nokkrum árum síðar. Hreyfitruflunin kom
Table I. Neuropsychiatric manifestations in 65 patients with
systemic lupus erythematosus.
Manifestation Number of patients
Headache: 27
Migraine-type only 5
Tension-type only 15
Both migraine- and tension-type 7
Psychosis* 9
Epileptic seizures 3
Ischemic stroke 2
Cranial nerve involvement 2
Chorea 1
Encephalitis 1
Retinal vasculitis 1
Anterior spinal artery syndrome 1
Polyradiculoneuropathy 1
* including both delusional and severe affective states.
fram í báðum höndum á meðgöngu, sem end-
aði með fósturláti. Rykkjabretturnar dvínuðu
smám saman á tveimur árum og hafa síðan
ekki sést, hvorki við eftirlit eða á síðari með-
göngum. Þessi sjúklingur hefur háan styrk
mótefna gegn fosfórlípíðum.
Annar sjúklinganna sem fékk heilablóðfall
fékk fyrst áfall 29 ára og annað sex árum síðar.
Sjúklingur hefur háan styrk mótefna gegn fos-
fórlípíðum. Hinn sjúklingurinn fékk heilablóð-
fall 65 ára og hefur vægt aukinn styrk mótefna
gegn fosfórlípíðum. Af áhættuþáttum fyrir
heilablóðfall hafði sjúklingur annars aðeins
vægan háþrýsting. Að auki fékk einn sjúkling-
ur segamyndun í fremri mænuslagæð. Ekki
Table II. The within group prevalence ofpsychiatric diagnoses* found in systemic lupus erythematosus (SLE) women compared
to a population group of women.
Psychiatric diagnosis (DSM-III) SLE (n=62) Population (n=421) P**
Any diagrtosis 49% 55% ns
Specific Disorders:
Schizophrenia 1.6 0 ns
Major depression 6.4 7.8 ns
Atypical bipolar disorder 1.6 0.5 ns
Obsessive-compulsive disorder 1.6 2.1 ns
Dysthymia 1.6 10.7 P <0.05
Somatization 1.6 0.5 ns
Antisocial personality 1.6 0 ns
Generalized anxiety 16.1 32.2 P <0.02
Agoraphobia with panic 6.4 2.6 P <0.02
Agoraphobia without panic 17.7 4.8 P <0.0001
Social phobia 17.7 4.5 P <0.0001
Simple phobia 25.8 10.2 P <0.001
Alcohol abuse 6.4 8.5 P <0.05
Alcohol dependence 1.6 1.9 ns
* A lifetime psychiatric diagnosis calculated by accumulating symptoms during lifetime to present day.
** All significant differences are two-tailed and obtained by Fisher’s Exact Test.