Læknablaðið - 15.05.1996, Page 61
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
407
Hvað er að?
Fyrir nokkru hrapaði flugvél í
nágrenni Keflavíkur. Vélinni
flaug kona um sextugt, og var
hún á leið til Bandaríkjanna.
Fyrir einhverja duttlunga örlag-
anna slapp hún lifandi þó vélin
brotnaði í spón. Hún virtist lítið
meidd og var, eftir skoðun,
send frá sjúkrahúsinu í Keflavík
til að gefa skýrslu um slysið.
Síðar kom í ljós að hún var
meira slösuð en útlit var fyrir í
byrjun og var hún því lögð inn á
Landspítalann.
Útfrá þessu atviki hefur
spunnist nokkurt orðaskak milli
yfirlæknisins á Keflavíkurspít-
ala og prófessorsins í skurð-
læknisfræði á Landspítalanum,
um það hvort flugmaðurinn hafi
fengið rétta meðferð eða ekki.
Deilan hefur snúist um það
hvort rétt sé að leggja svona
sjúkling á sjúkrahús staðarins
eða flytja hann þegar í stað á
annan hvorn hátæknispítalann í
Reykjavík.
Um þetta má vissulega deila,
og hafa báðir aðilar til síns máls
nokkuð, en það er þó ekki aðal-
atriðið, heldur það að frum-
skoðun á hinni slösuðu var
ófullnægjandi. Slík mistök hafa
ekkert með stærð eða búnað
sjúkrahúss að gera, en þau gefa
ákveðna vísbendingu um, að sá
sem þau gerir kunni ekki það
sem er grundvöllur allrar klín-
ískrar læknisfræði, sem er klín-
ísk skoðun.
Fyrir tveimur árum eða svo
varð blindur vinur höfundar
fyrir því óhappi að detta niður
stiga. Hann var að koma frá því
að borða með samstarfsmönn-
um sínum og þeir fengu sér
vínglas með matnum. Hann
missti meðvitund um stund við
fallið og var fluttur á einn af þá
þremur hátæknispítölum borg-
arinnar. Þaðan var hann sendur
heim eftir skoðun, án fyrirmæla
um eftirlit eða endurkomu.
Daginn eftir hringdi eiginkona
hans í höfundinn, því að hún var
óánægð með ástand eiginmanns
síns. Það kom í ljós við klíníska
skoðun að hinn slasaði var að lík-
indum kinnbeinsbrotinn, hand-
leggsbrotinn og rifbrotinn, auk
þess að grunur gat leikið á um
heilamar og blæðingu. Allt var
þetta staðfest við röntgenskoð-
un. Hinn slasaði fékk eðlilega
meðferð á öðrum hátæknispítala
og náði sér nær alveg.
Með þessu skrifi er ekki hug-
myndin að ásaka einn eða neinn
og ekki heldur að taka afstöðu
með eða móti smáspítölum eða
hátæknispítölum.
Tilgangurinn er að benda á að
mistök sem hér er greint frá geta
gerst hvar sem er og hvenær sem
er. Það að þau skuli gerast, og
þetta eru ekki einu dæmin,
bendir til þess að eitthvað skorti
á um gæði þess klíníska vega-
nestis, sem ungir læknar eru
búnir við útskrift úr læknadeild
Háskóla íslands. Getur verið að
hátæknin sé að gera okkur
ólæsa á sjúkdómseinkenni, sem
verða numin með næmum
höndun, vakandi augum og rök-
réttri hugsun?
Arni Björnsson
Áreiðanleiki prófs til mótefnamælinga
gegn alnæmisveiru
Vegna frétta í fjölmiðlum að
undanförnu þess efnis að próf til
mótefnamælinga gegn alnæmis-
veiru frá fyrirtækinu Abbott
hafi í vissum tilvikum reynst
óáreiðanlegt og ekki greint smit
hjá einstaklingum með há mót-
efni skal eftirfarandi tekið fram:
Aðeins er vitað um fjögur til-
felli í heiminum þar sem próf-
niðurstaða með rannsóknarað-
ferðinni hefur reynst röng.
Umrætt próf hefur ekki verið
notað í Blóðbankanum við Bar-
ónsstíg eða annars staðar á Is-
landi nema á rannsóknastofu
Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri en þar var prófið tekið
upp síðastliðið haust. Þar hafa
nú verið gerðar ráðstafanir til
að nota öruggar mótefnamæl-
ingar gegn alnæmisveiru.
Telja verður að Iíkur á að
HIV smitað blóð hafi fundist
meðal blóðgjafa á Akureyri á
umræddu tímabili hverfandi
enda hefur einungis einn smit-
aður blóðgjafi greinst á landinu
öllu á 10 ára tímabili en á tíma-
bilinu hafa meira en 120.000
próf verið framkvæmd meðal
blóðgjafa. Engu að síður verða
gerðar ráðstafanir til að endur-
rannsaka blóðgjafana sem gefið
hafa blóð á Akureyri og aðra þá
sem komið hafa til mótefna-
mælinga eftir að umrætt próf
var tekið.
Gert í samráði við Blóðbank-
ann við Barónsstíg, rannsókn-
astofu Landspítalans í veiru-
fræði, rannsóknastofu Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri,
smitsjúkdómadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið.
Fréttatilkynning
frá landiækni