Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 64
410
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Reglur
um ferðakostnað sjúklinga og aðstandenda
þeirra innanlands
Pann 28. mars síðastliðinn
staðfesti heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra nýjar reglur
um ferðakostnað sjúklinga og
aðstandenda þeirra innanlands.
Helstu breytingar frá fyrri regl-
um eru þær, að nú er heimil
endurgreiðsla ferðakostnaðar
vegna bráðatilvika og heimferð-
ir eftir sjúkraflug.
Þá er einnig sú breyting gerð
að nú ber sjúklingi að útvega
skýrslu frá lækni þeim sem
sendir hann. Þegar ekki er um
bráðatilvik að ræða ber að leita
eftir úrskurði tryggingayfir-
læknis áður en ferð er farin.
Þá er einnig heimil endur-
greiðsla vegna heimferða aðra
hverja helgi þurfi sjúklingur að
dvelja fjarri heimili sínu til með-
ferðar lengur en fjórar vikur,
þegar meðferðin er vegna til-
vika sem um getur í 1. grein:
1. gr.
Gildissvið
Þurfi sjúklingur að takast ferð
á hendur til meðferðar eða
óhjákvæmilegs eftirlits hjá
lækni, tannlækni eða á sjúkra-
húsi (með eða án innlagnar) eða
til þess að njóta óhjákvæmilegr-
ar meðferðar samkvæmt tilvís-
un læknis hjá heilbrigðisstétt-
um, sem sjúkratryggingar hafa
samið við, taka sjúkratrygging-
ar þátt í ferðakostnaði sam-
kvæmt reglum þessum, enda sé
um að ræða eftirtalda alvarlega
sjúkdóma og meðferð þeirra:
Illkynja sjúkdóma, nýrnabilun,
alvarlega augnsjúkdóma, brýn-
ar lýtalækningar, bæklunar-
lækningar barna og tannrétting-
ar vegna meiriháttar galla eða
alvarlegra tilefna. Ennfremur
er heimilt að endurgreiða vegna
annarra sambærilegra sjúk-
dóma eða alvarlegra vandamála
í meðgöngu. Hið sama gildir um
ferðir vegna bráðatilvika sem
farnar eru samkvæmt ákvörðun
læknis og ekki er hægt að sinna í
heimabyggð svo og heimferðir
að loknu sjúkraflugi.
2. gr.
Lœknisfrœðilegur úrskurður
Til þess að hægt sé að úr-
skurða hvort sjúklingur eigi rétt
á endurgreiðslu samkvæmt regl-
um þessum skal hann útvega
skýrslu frá þeim lækni sem
sendir hann. Þegar ekki eru um
bráðatilvik að ræða ber að jafn-
aði að leita eftir úrskurði trygg-
ingayfirlæknis áður en ferðin er
farin. I skýrslunni skal gerð
grein fyrir sjúkdómnum, nauð-
synlegri meðferð og hversu oft
sjúklingurinn þurfi að koma.
Skýrsluna skal senda Trygg-
ingastofnun ríkisins, trygginga-
yfirlækni, til úrskurðar. Trygg-
ingastofnun sendir sjúklingi úr-
skurðinn og sendir jafnframt
viðkomandi tryggingaumboði
afrit. Tryggingaumboðið annast
síðan greiðslur til sjúklings það-
an í frá í samræmi við reglur
þessar.
3. gr.
Endurgreiðsla sjúkratrygginga
Sjúkratryggingar endur-
greiða að hluta ferðakostnað ef
um er að ræða að minnsta kosti
15 km vegalengd á milli staða.
Sjúklingur skal framvísa í trygg-
ingaumboði sínu vottorði til
staðfestingar á hverri komu, út-
gefnu af þeim, sem meðferð
veitir. Sjúkratryggingar endur-
greiða 2/3 hluta kostnaðar af
raunverulegu fargjaldi með
venjulegri áætlunarferð eða af
reiknuðu fargjaldi með áætlun-
arbifreið á hverjum tíma ef eig-
inn bíll er notaður. Greiðslu-
hluti sjúklings skal þó aldrei
verða hærri en 1.000 kr. í hverri
ferð. Ef ætla má að raunveru-
legur kostnaður sé lægri en áætl-
unarfargjald, skal miða við
hann. Sjúkratryggingar endur-
greiða 2/3 hluta kostnaðar
vegna leigubílaaksturs milli að-
seturs sjúklings og meðferðar-
staðar, samkvæmt framlögðum
skýrum kvittunum, þótt vega-
lengd sé skemmri en 15 km,
enda sé sjúklingur ekki fær um
að ferðast með áætlunarbíl eða
strætisvagni. í slíkum tilvikum
er greiðsluhluti sjúklings ætíð
1/3 af heildarkostnaði.
Sérstakt fargjald fylgdar-
manns endurgreiða sjúkra-
tryggingar samkvæmt sömu
reglum og getið er í 1. mgr. þess-
arar greinar, ef sjúklingurinn er
16 ára eða yngri eða ef hann er
ósjálfbjarga. Þetta á þó einungis
við um áætlunarferðir.
Sjúkratryggingar endur-
greiða með sömu skilyrðum og
getið er í 1. mgr. þessarar grein-
ar nauðsynlegar ferðir foreldris
eða nánasta aðstandanda til að
vitja sjúklings 16 ára og yngri.
Endurgreiðsla slíkra ferða tak-
markast við eina vitjun á viku til
sjúklings.
Þegar nauðsynleg læknis-