Læknablaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
413
Minningarsjóður
Höllu Snæbjörnsdóttur
Samstarfsfólk, vinir og ættingjar Höllu Snæbjörnsdóttur fyrrverandi hjúkrunar-
stjóra Blóðbankans vilja halda minningu hennar á lofti með því að láta mála af
henni mynd sem hengd verður upp í Blóðbankanum. Benedikt Gunnarsson
listmálari mun mála myndina. Til að standa straum af kostnaði við verkið hefur
verið stofnaður minningarsjóður. Nöfn gefenda verða skráð í bók sem mun
fylgja málverkinu.
Framlögum er veitt móttaka í Blóðbankanum og á skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22,108 Reykjavík. Einnig mágreiða með
gíróseðli í öllum bönkum og sparisjóðum inn á ávísanareikning nr. 56000 hjá
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.
Úr fréttatilkynningu
Háskólaútgáfan
Davíðsbók
Rit til heiðurs Davíð Davíðssyni eftir 35
ára starf sem prófessor við Háskóla ís-
lands og yfirlæknir á Landspítalanum.
Nánari upplýsingar veita Lífeðlisfræði-
stofnun Háskóla íslands, Læknagarði,
Vatnsmýrarvegi, sími 525 4835, og Há-
skólaútgáfan, Háskóla (slands, Suður-
götu, sími 525 4003.
UNIVERSITY OF ICELAND
UNIVERSITY PRESS
101 REYKJAVÍK, ICELAND
TEL. 525-4003 • FAX 552-1331