Læknablaðið - 15.05.1996, Síða 74
418
LÆKN ABLAÐIÐ 1996; 82
Novo Nordisk Foundation
Research Meetings
Styrkir til vísindastarfsemi
Norræna Rannsóknanefndin (Nordisk Forsknings Komité) ráðgerir að veita allt
að 300.000 DKR á ári til vísindastarfsemi á Norðurlöndunum, til dæmis til eins til
þriggja daga málþinga (mögulega sem velskilgreindra hluta af stærri ráðstefn-
um) eða til að bjóða alþjóðlega viðurkenndum visindamönnum til styttri dvalar
hjá rannsóknarhópum í tengslum við fyrirlestrarhald eða sambærilega starf-
semi. Styrkir verða ekki veittir vegna námskeiða.
Starfsemin skal vera á sviði innkirtlafræði eða tilraunalífeðlisfræði.
Hver styrkur nemur 100.000 DKR eða hærri upphæð.
Sækja má um styrki vegna starfsemi á árinu 1997 eða 1998.
Umsóknir skal senda í fimm eintökum til:
Novo Nordisk Fonden,
Brogárdsvej 70
Postbox 71
DK-2820 Gentofte, Danmark
Sími: +45-4443 9038,
bréfsími +45-4443 9098.
í umsókninni skal koma fram rökstuðningur fyrir mikilvægi þeirrar starfsemi
sem sótt er um styrk til (mest ein síða), lýsing ástarfseminni, fjárhagsáætlun og
áætluð tímasetning, upplýsingar um virkni rannsóknarhóps umsækjenda á
fræðasviðinu og þýðingu þeirrar starfsemi sem sótt er um styrk til fyrir framhald
þeirra rannsókna, ásamt skrá yfir birtingu á helstu niðurstöðum rannsóknar-
hóps umsækjenda síðastliðin tvö til þrjú ár (mest tvær síður).
Umsóknir ásamt öllum fylgiskjölum skulu póstlagðar í síðasta lagi 31. ágúst
næstkomandi. Ófullnægjandi umsóknir og umsóknir sem berast á bréfsíma
verða ekki teknar til greina. Umsóknum verður svarað um miðjan október 1996.
Sjúkrahús Suðurlands I
Svæfingalæknir '
Sjúkrahús Suðurlands, Selfossi, óskar eftir að ráða svæfingalækni til starfa. Um
er að ræða 75% stöðugildi ásamt samningi um ferliverk.
Búseta á Selfossi eða næsta nágrenni er skilyrði.
Nánari upplýsingargefa Þorkell E. Guðmundsson, yfirlæknirfæðinga- og kven-
sjúkdómasviðs í vinnusíma 4821300 og Bjarni Ben. Arthursson framkvæmda-
stjóri í vinnusíma 482 1300 eða heimasíma 567 8689.
Framkvæmdastjóri