Læknablaðið - 15.08.1996, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
569
Hjartaígræðsla
Meðferð fyrir börn og unglinga með
hjartasjúkdóm á lokastigi
Gunnlaugur Sigfússon, F. Jay Fricker
Gunnlaugur Sigfússon, F. Jay Fricker
Heart Transplantation: Treatment for childrcn and
adolescents with end-stage heart disease
Læknablaðið 1996; 82; 569-75
Heart transplantation, which is the recently accept-
ed treatment for children and adolescents with end
stage heart disease, is the subject of this review
article. Issues such as selection of patients, follow up
and management post transplant are discussed, as
well as the surgical procedure and the immediate
postoperative management. Results from recent
studies of long term survival following pediatric
heart transplantation are discussed. Short term sur-
vival following heart transplantation is now excel-
lent but limited long term follow-up data is available
as this operation has only been performed for about
two decades. One year survival is now over 90% and
five year survival is estimated to be close to 70% in
major transplant centers around the world. Post
transplant coronary artery disease is mainly respon-
sible for the decreased long term survival. Compli-
cations of immunosuppression such as infections,
lymphoprolifrative disorders and depressed renal
function are still common but usually not life threat-
ening. Non-compliance with medication was observ-
ed amongst teenage recipients and can have lethal
consequences. Despite this, it has been shown that
heart transplantation can provide good quality of
life and prolong survival in pediatric patients with
end-stage heart disease.
Frá Division of Cardiology, Children’s Hospital of Pitts-
burgh. Fyrirspurnir, bréfaskriftir: Gunnlaugur Sigfússon,
Division of Cardiology, Children's Hospital of Pittsburgh,
3705 Fifth Avenue, Pittsburgh, PA 15213, USA.
Ágrip
I þessari yfirlitsgrein er gerð grein fyrir
hjartaígræðslu sem er nýleg og áhrifamikil
meðferð fyrir börn og unglinga með hjartasjúk-
dóm á lokastigi. Fjallað er um val á sjúklingum
fyrir þessa aðgerð, aðgerðina sjálfa og eftirlit
og meðferð sem hjartaþegar gangast undir.
Skammtíma árangur þessarar meðferðar er nú
mjög góður en minna er vitað um langtíma-
horfur barna og unglinga sem gangast undir
hjartaígræðslu þar sem aðgerðin hefur einungis
verið framkvæmd undanfarin 15 ár. Nýlegar
niðurstöður frá þremur stórum barnasjúkra-
húsum í Bandaríkjunum um langtímahorfur
hjartaþega eru kynntar. Langtímalifun er tak-
mörkuð af kransæðasjúkdómi sem hrjáir hið
ígrædda hjarta en fimm ára lifun er áætluð vera
um 70%. Fylgikvillar ónæmisbælingar eru
hvimleiðir og sumir hverjir alvarlegir, eins og
æxlisvöxtur og skerðing á nýrnastarfsemi.
Strangt eftirlit og langvarandi lyfjataka virðist
setja mark sitt á líf barna og sérstaklega ung-
linga sem gangast undir hjartaígræðslu. Þrátt
fyrir þetta getur hjartaígræðsla gjörbreytt og
lengt líf barna og unglinga sem lifað hafa tak-
mörkuðu lífi vegna hjartasjúkdóms á lokastigi.
Inngangur
Hjartaígræðsla er í dag viðurkennd meðferð
fyrir börn og unglinga með hjartasjúkdóm á
lokastigi. Þessi aðgerð hefur gjörbreytt við-
horfi okkar til margra hjartavöðvasjúkdóma og
meðfæddra hjartagalla, sem áður voru taldir
ólæknandi. Lífshorfur einstaklinga sem gengið