Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1997, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 15.01.1997, Blaðsíða 4
LANSER (lansóprazól) - nýtt, skjótvirkt og áhrifartkt íslenskt magalyf Omega Farma Skjótvirkt magalyf Lanser (Omega Farma, 950073) SÝRUHJÚPHYLKI; A 02 B C R. Hvert sýruhjúphylki inniheldur; Lansoprazolum INN 30 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (H+, K+ - ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði grunnframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá smáþörmum, en breytist í virkt form í súru umhverfi paríetalfrumnanna. Fylgni er milli áhrifa á sýruframleiðslu og flatarmáls undir blóðþéttniferlinum (AUC), en ekki blóðþéttni hverju sinni, Blóðþéttni nær hámarki 1,5 klst. eftir töku lyfsins. Aðgengi er yfirleitt hátt (80-90%), en er mjög breytilegt milli einstaklinga. Binding við plasmaprótein er um 97%. Helmingunartími í blóði er 1-2 klst.; hann lengist með hækkandi aldri og við skerta lifrarstarfsemi. Lyfið umbrotnar að fullu í lifur og skilst út sem óvirk umbrotsefni, 65% í saur og afgangur í þvagi. Abendingar Skammtímameðferð á sársjúkdómi í skeifugörn og maga. Skammtímameðferð á bólgu i vélinda vegna bakflæðis. Æskilegt er að þessar greiningar séu staðfestar með röntgen eða speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Varúð: Við skerta lifrarstarfsemi er helmingunartími lengdur og skammta getur þurft að minnka. Meðganga og brjóstagjöf: Klínísk reynsla af gjöf lyfsins á meðgöngutíma er lítil. Fósturskemmdir hafa ekki komið fram við dýratilraunir. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Miðtaugakerfi: Höfuðverkur, svimi. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði, magaverkir, hægðatregða, uppköst, vindgangur. Húð: Útbrot. Sjaldgæfar (0,1-1%): Þreyta. Milliverkanir: Lyfið umbrotnar fyrir tilstilli cýtókróm P-450 enzýma og gæti haft milliverkanir við önnur lyf sem þetta enzýmkerfi umbrýtur. Lyfið virðist ekki hafa milliverkanir við díazepam, fenýtóín, teófýllín, warfarín, sýrubindandi lyf eða bólgueyðandi gigtarlyf. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin verður að gleypa í heilu lagi. Lyfið er ætlað til skammtímameðferðar, mest í 8 vikur. Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Magasár: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 30 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: Sýruhjúphylki 30 mg: 14 stk. 3.043 kr.; Sýruhjúphylki 30 mg: 28 stk. 5.901 kr.;Sýruhjúphylki 30 mg: 56 stk. 11.230 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.