Læknablaðið - 15.01.1997, Blaðsíða 44
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
42
íðorðasafn lækna 85
Stent
Ásgeir Theódórs hringdi ný-
lega og kom með tillögu að ís-
lensku heiti á útbúnaði þeim
sem stent nefnist.Vildi hann
nefna fyrirbærið ræsi. Um það
er ekkert að finna í íðorðasafni
lækna, en Ásgeir taldi útbúnað-
inn orðinn það algengan að
nauðsyn væri á íslensku heiti.
Samkvæmt læknisfræðiorðabók
Stedman’s heitir hann eftir
Charles R. Stent sem var tann-
læknir í Englandi á síðustu öld
(d. 1901). Líf- og læknisfræði-
orðabók Wiley’s tilgreinir
reyndar þrjú fyrirbæri sem
nefnd hafa verið eftir Stent
þessum, í fyrsta lagi umbúðir
sem notaðar eru til að halda
húðgræðlingi á sínum stað, í
öðru lagi tiltekin munnmót sem
tannlæknar gera og í þriðja lagi
útbúnað sem viðheldur opi eða
holi sem ekki má lokast. Orða-
bók Stedman’s lýsir því síðast
talda þannig: Mjór þráður, staf-
ur eða leggur, sem liggur í holi
pípulaga líffæris til stuðnings,
við eða eftir samtengingu, eða til
að tryggja viðhald ops þar sem
þrenging hefur orðið. Þettaersá
útbúnaður sem Ásgeir vill nefna
ræsi.
Samkvæmt íslenskri orðabók
Máls og menningar merkir
sögnin að ræsa meðal annars
það að opna vatni leið eðafram-
rás með rœsi, en ræsi er skurð-
ur, stokkur sem vatni eða skólpi
er veitt eftir. íslensk samheita-
orðabók Svavars Sigmundsson-
ar tilgreinir samheitin rás,
skurður, stokkur, veisa, frá-
rennsli. Af þeim eru nokkur
þegar komin í notkun um lækn-
isfræðileg fyrirbæri: rás er not-
að í vefjafræðinni um ductus,
skurður er notað í handlæknis-
fræðinni um incision og stokkur
er notað í líffærafræðinni um
sinus. Best er því að forðast
þau, en hin, veisa og frárennsli,
eru ekki vænleg við fyrstu skoð-
un. Undirrituðum kemur einnig
í hug nafnorðið rör, samanber
þau rör sem sett eru í eyru hjá
börnum til að ræsa fram vökva,
slím og gröft í tengslum við mið-
eyrabólgu. Samheitaorðabókin
gefur leiðslu sem samheiti við
rör, og síðan, sem samheiti við
leiðslu, eru meðal annars gefin
orðin pípa, rör, lögn, œð og
taug. Pípa er notuð í líffæra-
fræðinni um tuba og orðin æð
og taug eru að sjálfsögðu löngu
frátekin. Þau ber því einnig að
forðast. Lögn er notað um það
sem lagt er, til dæmis net sem
lögð eru í sjó eða vatn og vatns-
eða rafmagnsleiðslur í húsum.
Undirrituðum finnst að heitin
ræsi, rör og lögn komi öll til
greina og til viðbótar mætti
nefna orðið hólkur, sem ýmist
er notað um sívala pípu eða eitt-
hvað vítt og gapandi. Nú væri
æskilegt að heyra frá þeim lækn-
um sem áhuga kynnu að hafa á
málefninu.
Augnorð
Hið latneska heiti augans er
oculus, en gríska heitið er op-
hthalmos og eru þau bæði notuð
í alþjóðlegum læknisfræðiheit-
um. I sumum tilvikum hafa orð-
ið til bæði latnesk og grísk sam-
heiti sem virðast jafngild, til
dæmis getur ótilgreindur augn-
kvilli jafnt heitið oculopathy
sem ophthalmopathy. I öðrum
tilvikum hafa heiti úr öðru mál-
inu náð yfirhöndinni, til dæmis
nefnist sú fræðigrein, sem fæst
við augun og sjúkdóma þess,
ophthalmologia en ekki oculo-
logia. í nýju líffæraheitunum
eru nokkur lagleg íslensk heiti
sem ekki er úr vegi að rifja upp.
Áberandi er hve mörg þeirra
eru kvenkyns. Bulbus oculi
nefnist augnknöttur, en utan á
honum liggja augnknattarvöðv-
arnir. Vöðvarnir festast á hvítu,
sclera, en framan á auganu ligg-
ur hin gegnsæja glæra, cornea,
sem áður var nefnd hornhimna.
Lithimna augans, iris, nefnist
nú lita og æðahimnan, chorioi-
dea, æða. í miðju litunnar er
Ijósopið sem frá fornu fari nefn-
ist einnig sjáaldur. Milli æðu og
litu liggur corpus ciliare sem í
líffæraheitum Guðmundar
Hannessonar var nefndur brár-
lík eða fellingabaugur. í nýjustu
þýðingu líffæraheitanna hefur
hann hins vegar fengið heitið
brárkleggi, en kleggi er gamalt
karlkynsnafnorð sem merkir
köggull eða hnaus. Til samræm-
is fékk glerhlaupið, corpus vit-
reum, nýtt heiti og nefnist nú
glerkleggi. Þá hefur nethimnan,
retina, fengið hið stutta og
þægilega heiti sjóna. Augn-
læknar munu ekki hafa tekið
þessum kleggjum vel og því
kom Örn Bjarnason nýlega
fram með þá hugmynd að
kvenkenna mætti corpus vit-
reum og nefna glerju. Óbreytt
eru heitin augasteinn, lens, og
augnhólf, camerae bulbi. Fram-
an við augun liggja augnlok eða
augnalok, einnig nefnd hvarm-
ar, og þaðan er komið sjúk-
dómsheitið hvarmabólga.
Jóhann Heiðar Jóhannsson
(netfang: johannhj@rsp.is)