Læknablaðið - 15.10.1997, Síða 4
ASTICA
■ Astra ísland I
Eiginleikar: Lyfið er afbrigði af prednisólóni (sykursteri).
U.þ.b. 20-40% af gefnum skammti kemst til lungna eftir
innöndun. Af því magni, sem kyngt er, verður u.þ.b. 90%
óvirkt eftir fyrstu umferð um lifur. Lyfið hefur því litlar
almennar steraverkanir. Hámarksþéttni í plasma eftir
innöndun á 1 mg af búdesóníði er u.þ.b. 3,5nmóI/I og næst
eftir um 20 mínútur. Ábendingar: Asthma bronchiale.
Erábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefni lyfsins.
Meðganga og brjóstagjöf: Forðast ber að gefa lyfið meðan
á meðgöngu stendur nema brýna nauðsyn beri til. í dýrum á
meðgöngu hefur gjöf á búdesóníði valdið fósturgöllum.
Óvíst er hvort það sama á við um menn. Ef ekki er hægt að
komast hjá gjöf sykurstera á meðgöngu, er mælt með notkun
innúðalyfs vegna lítilla almennra áhrifa þess miðað við
sykurstera til inntöku. Engar upplýsingar Iiggja fyrir um
dreifingu búdesóníðs í brjóstamjólk. Aukaverkanir:
Þruskusýkingar í munni og koki. Við skammta stærri en 1600
míkróg er aukin hætta á almennum steraverkunum. Til að
draga úr hættu á þruskusýkingum og almennum
steraverkunum er ráðlagt að skola lyfið vel með vatni úr
munni og koki strax eftir notkun. Hæsi getur komið fyrir.
Húðbreytingar (urticaria, kláði, útbrot) hafa í einstaka
tilvikum sést í tengslum við sterameðferð til innúðunar.
Geðræn einkenni t.d. taugaveiklun, órói og þunglyndi hafa
komið fram við notkun á búdesóníði sem og öðrum
sykursterum. Lyfið getur í einstaka tilvikum valdið
berkjukrampa; verkunarmáti er óþekktur. Varúð: Varúð
þegar sjúklingar með lungnaberkla og sveppa- og
veirusýkingar í öndunarvegi eru meðhöndlaðar. Gæta þarf
varúðar, þegar lyfið er notað til að venja sjúkling, sem er
orðinn háður barksterum til inntöku, af slíkum lyfjum. Þá
hafa nýrnahettur rýrnað og tekur langan tíma fyrir þær að ná
upp fyrri starfsemi. Þessir sjúklingar þurfa að vera í
tiltölulega góðu ástandi og óráðlegt er aö byrja að minnka
steraskammta til inntöku fyrr en lyfið hefur verið gefið að
minnsta kosti í 10 daga. Venjulega tekur nokkra mánuði að
losa sjúklinginn við stera, sem teknir eru inn, og við
skyndilega versnun er nauðsynlegt að gefa stutta sterakúra.
Algengt er að þessir sjúklingar kvarti um þreytu, höfuðverk,
vöðva- og liðverki í nokkrar vikur eftir að gjöf til inntöku
hefur verið hætt. Skammtastærðlr banda fullorðnum: í
byrjun meðferðar á astma eða þegar verið er að reyna að ná
astmasjúklingi af barksterum gefnum til inntöku, er
skammtur 200-1.600 míkróg á sólahring, skipt í 2-4 skammta.
Viðhaldsskammtur er einstaklingsbundinn og reynt að finna
þann skammt, sem heldur einkennum alveg niðri. Oftast er
þó nóg að gefa lyfið kvölds og morgna, en ef dagsskammtur
er lágur (200-400míkróg) er mögulegt að gefa lyfið einu sinni
á sólarhring. Ef astmi versnar má auka skammtatíðnina.
Nokkrar vikur geta liðið þar til full verkun næst. Sé mikil
slímsöfnun í líerkjum kann að vera, að lyfið nái ekki til
berkjuslímhúðar og er þá ráölagt að gefa stenikúr til inntöku
í stuttan tíma (ca. 2 vikur) samhliða notkun lyfsins. Athugið:
Þar sem nýting búdesóníðs er lx.*tri með Turliuhaler-úðatæki
en með þrýstingsinnúða, kann að vera unnt að lækka
skammta, þegar skipt er um lyfjaform. Skammtastærðir
handa börnum: Böm 6-12 ára: 200-800 míkróg daglega,
skipt í 2-4 skammta. Lyfið er ekki ætlað Iximum yngri en 6
ára. Athugið: Lyfið úr Pulmicort Turbuhaler berst til lungna,
þegar sjúklingurinn andar að sér og þess vegna er mikilvægt
að leiðbeina sjúklingnum að anda kröftuglega og djúpt að
sér í gegnum munnstykkið. Þegar Pulmicort Turbuhaler er
gefið ungum bömum er nauðsynlegt að fullvíst sé, að þau
geti fylgt leiðlx:iningum um notkun. Þar sem lítið magn af
lyfinu er gefið í hverjum skammti, er mögulegt að sjúklingur
finni hvorki bragð né verði á annan hátt var við lyfið við
gjöf. Þessi sjálfvirki úðaskammtari tryggir, að skammtur losni
á réttum tíma við innöndun og er því sérstaklega hentugur
fyrir aldraða og böm, sem ella eiga erfitt meö að samræma
innöndun við úðun. Pakkningar og verð (Janúar 1997):
Innúðaduft 100 míkróg/úðaskammt: 200 skammta
úðastaukur - 5798 kr. (hluti sjúklings 1500 kr.). Innúðaduft
200 míkróg/úðaskammt: 200 skammta úðastaukur - 8590
kr. (hluti sjúklings 1500 kr.), Innúðaduft 400
míkróg/úðaskammt: 50 skammta úðastaukur
(sjúkrahússpakkning) - 4043 kr.; 200 skammta úðastaukur -
13612 kr. (hluti sjúklings 1500 kr.). Hverri pakkningu
lyfsins skal fylgja leiðarvísir á íslcnsku með
lciðbeiningum uin notkun úðatækisins og vamaðarorð.
Greiðslufyrirkomulag B. Umboðsaðili á íslandi:
Pharmaco h.f.
i