Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1997, Qupperneq 4

Læknablaðið - 15.10.1997, Qupperneq 4
ASTICA ■ Astra ísland I Eiginleikar: Lyfið er afbrigði af prednisólóni (sykursteri). U.þ.b. 20-40% af gefnum skammti kemst til lungna eftir innöndun. Af því magni, sem kyngt er, verður u.þ.b. 90% óvirkt eftir fyrstu umferð um lifur. Lyfið hefur því litlar almennar steraverkanir. Hámarksþéttni í plasma eftir innöndun á 1 mg af búdesóníði er u.þ.b. 3,5nmóI/I og næst eftir um 20 mínútur. Ábendingar: Asthma bronchiale. Erábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefni lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Forðast ber að gefa lyfið meðan á meðgöngu stendur nema brýna nauðsyn beri til. í dýrum á meðgöngu hefur gjöf á búdesóníði valdið fósturgöllum. Óvíst er hvort það sama á við um menn. Ef ekki er hægt að komast hjá gjöf sykurstera á meðgöngu, er mælt með notkun innúðalyfs vegna lítilla almennra áhrifa þess miðað við sykurstera til inntöku. Engar upplýsingar Iiggja fyrir um dreifingu búdesóníðs í brjóstamjólk. Aukaverkanir: Þruskusýkingar í munni og koki. Við skammta stærri en 1600 míkróg er aukin hætta á almennum steraverkunum. Til að draga úr hættu á þruskusýkingum og almennum steraverkunum er ráðlagt að skola lyfið vel með vatni úr munni og koki strax eftir notkun. Hæsi getur komið fyrir. Húðbreytingar (urticaria, kláði, útbrot) hafa í einstaka tilvikum sést í tengslum við sterameðferð til innúðunar. Geðræn einkenni t.d. taugaveiklun, órói og þunglyndi hafa komið fram við notkun á búdesóníði sem og öðrum sykursterum. Lyfið getur í einstaka tilvikum valdið berkjukrampa; verkunarmáti er óþekktur. Varúð: Varúð þegar sjúklingar með lungnaberkla og sveppa- og veirusýkingar í öndunarvegi eru meðhöndlaðar. Gæta þarf varúðar, þegar lyfið er notað til að venja sjúkling, sem er orðinn háður barksterum til inntöku, af slíkum lyfjum. Þá hafa nýrnahettur rýrnað og tekur langan tíma fyrir þær að ná upp fyrri starfsemi. Þessir sjúklingar þurfa að vera í tiltölulega góðu ástandi og óráðlegt er aö byrja að minnka steraskammta til inntöku fyrr en lyfið hefur verið gefið að minnsta kosti í 10 daga. Venjulega tekur nokkra mánuði að losa sjúklinginn við stera, sem teknir eru inn, og við skyndilega versnun er nauðsynlegt að gefa stutta sterakúra. Algengt er að þessir sjúklingar kvarti um þreytu, höfuðverk, vöðva- og liðverki í nokkrar vikur eftir að gjöf til inntöku hefur verið hætt. Skammtastærðlr banda fullorðnum: í byrjun meðferðar á astma eða þegar verið er að reyna að ná astmasjúklingi af barksterum gefnum til inntöku, er skammtur 200-1.600 míkróg á sólahring, skipt í 2-4 skammta. Viðhaldsskammtur er einstaklingsbundinn og reynt að finna þann skammt, sem heldur einkennum alveg niðri. Oftast er þó nóg að gefa lyfið kvölds og morgna, en ef dagsskammtur er lágur (200-400míkróg) er mögulegt að gefa lyfið einu sinni á sólarhring. Ef astmi versnar má auka skammtatíðnina. Nokkrar vikur geta liðið þar til full verkun næst. Sé mikil slímsöfnun í líerkjum kann að vera, að lyfið nái ekki til berkjuslímhúðar og er þá ráölagt að gefa stenikúr til inntöku í stuttan tíma (ca. 2 vikur) samhliða notkun lyfsins. Athugið: Þar sem nýting búdesóníðs er lx.*tri með Turliuhaler-úðatæki en með þrýstingsinnúða, kann að vera unnt að lækka skammta, þegar skipt er um lyfjaform. Skammtastærðir handa börnum: Böm 6-12 ára: 200-800 míkróg daglega, skipt í 2-4 skammta. Lyfið er ekki ætlað Iximum yngri en 6 ára. Athugið: Lyfið úr Pulmicort Turbuhaler berst til lungna, þegar sjúklingurinn andar að sér og þess vegna er mikilvægt að leiðbeina sjúklingnum að anda kröftuglega og djúpt að sér í gegnum munnstykkið. Þegar Pulmicort Turbuhaler er gefið ungum bömum er nauðsynlegt að fullvíst sé, að þau geti fylgt leiðlx:iningum um notkun. Þar sem lítið magn af lyfinu er gefið í hverjum skammti, er mögulegt að sjúklingur finni hvorki bragð né verði á annan hátt var við lyfið við gjöf. Þessi sjálfvirki úðaskammtari tryggir, að skammtur losni á réttum tíma við innöndun og er því sérstaklega hentugur fyrir aldraða og böm, sem ella eiga erfitt meö að samræma innöndun við úðun. Pakkningar og verð (Janúar 1997): Innúðaduft 100 míkróg/úðaskammt: 200 skammta úðastaukur - 5798 kr. (hluti sjúklings 1500 kr.). Innúðaduft 200 míkróg/úðaskammt: 200 skammta úðastaukur - 8590 kr. (hluti sjúklings 1500 kr.), Innúðaduft 400 míkróg/úðaskammt: 50 skammta úðastaukur (sjúkrahússpakkning) - 4043 kr.; 200 skammta úðastaukur - 13612 kr. (hluti sjúklings 1500 kr.). Hverri pakkningu lyfsins skal fylgja leiðarvísir á íslcnsku með lciðbeiningum uin notkun úðatækisins og vamaðarorð. Greiðslufyrirkomulag B. Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco h.f. i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.