Læknablaðið - 15.10.1997, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
641
tækisins á íslandi árið 1994. í þeirri könnun
kom meðal annars fram að nær allir vistmenn
voru skráðir sjálfráða, enda þótt um það bil
helmingur hafi haft einhvers konar vitræna
skerðingu. Heilabilun var ein algengasta sjúk-
dómsgreiningin. Fjórðungur allra tók geð-
deyfðarlyf og 54-62% íbúanna tóku róandi lyf
og svefnlyf. Atta af hverjum 10 voru með gervi-
tennur og um þriðjungur átti erfitt með að
tyggja. Margar fleiri athyglisverðar niðurstöð-
ur komu fram og er þeim lýst í sérstakri
skýrslu.
Inngangur
Lengi hefur verið vitað að víðtækt öldrunar-
mat er lykill að því að ná sem bestri líkamlegri
og andlegri færni aldraðra ásamt með því að
auka lífsgæði þeirra. Rannsóknir hafa staðfest
að víðtækt öldrunarmat bætir gæði þjónustu
við aldraða og dregur úr ótímabærri vistun á
öldrunarstofnunum með því að bæta færni og
líðan aldraðra, hvort heldur um er að ræða
sjúkrahús eða göngudeildir (1-6).
Nýleg þróun staðfestir gildi víðtæks öldrun-
armats á elli- og hjúkrunarheimilum. Tilurð
RAI (Resident Assessment Instrument) mæli-
tækisins og notagildi er lýst með augum höf-
unda mælitækisins (7), jafnframt er lýst nokkr-
um af niðurstöðum íslenskrar forkönnunar á
Stór-Reykjavíkursvæðinu árið 1994.
RAI-mælitækið
RAI mælitækið var þróað í Bandaríkjunum
fyrir tilstuðlan Bandaríkjaþings með setningu
laga árið 1987. Lög þessi urðu til vegna upplýs-
inga um misjafna þjónustu og gæði á öldrunar-
stofnunum þar í landi. Mikilvægasta ákvæði
laganna er að þróa skuli algilt, víðtækt mats-
tæki fyrir þá sem dvelja á öldrunarstofnunum.
Víðtækt færnimat aldraðra skyldi verða horn-
steinn meðferðaráætlana er skyldu miða við að
bæta, viðhalda og draga sem mest úr tapi á
færni einstaklingsins. Stjórnsýslustofnun fjár-
magns til heilbrigðismála (Health Care Financ-
ing Administration) annaðist yfirumsjón með
verkinu en þróun mælitækisins var í höndum
hóps rannsóknaraðila.
Þróun mælitækisins hófst síðla árs 1988.
Stofnaðir voru 18 klínískir vinnuhópar til að
þróa, prófa og endurskoða einstaka þætti og
vinnuferli. I vinnuhópunum voru fjölmargar
heilbrigðisstéttir; öldrunarlæknar, hjúkrunar-
fræðingar, félagsráðgjafar, næringarráðgjafar,
sjúkra- og iðjuþjálfar, talmeinafræðingar og
tannlæknar, auk stjórnenda öldrunarstofnana,
virkniráðgjafa og annarra fræðimanna. Þróun-
in fól í sér nokkur mikilvæg skref: 1. að yfirfara
eldri mælitæki, 2. að ákvarða hvaða þættir
væru innifaldir, 3. að ákvarða atriði, skilgrein-
ingar og fjölda valkosta í hverjum þætti, 4. að
ákvarða gildi og áreiðanleika mælitækisins og
5. að þróa kennslu- og þjálfunarefni sem fylgdi
mælitækinu.
Þróunarhópurinn yfirfór meira en 80 þekkt
öldrunarmatstæki og greindi lykilatriði sem
yrðu að felast í mælitækinu. Þó að mörg mæli-
tækjanna væru góð þá voru þau öll takmörkuð
að einu eða öðru leyti og ekkert þeirra gaf
heildræna mynd af hinum aldraða. Sérstaklega
vantaði að þau lýstu styrkleika og óskum ein-
staklingsins svo og þörfum hans. Einnig voru
mörg tækjanna tengd ákveðinni heilbrigðis-
stétt og þróuð til dæmis fyrir lækna, hjúkrunar-
fræðinga, sjúkra- eða iðjuþjálfa. RAI mælitæk-
inu er ætlað að vera heildrænt og stuðla að og
auðvelda tjáskipti milli þverfaglegra teyma er
annast hinn aldraða. Þannig skyldi mælitækið
verða hið sameiginlega tungumál teymisins, til
dæmis læknis, hjúkrunarfræðings, félagsráð-
gjafa, næringarfræðings og sjúkra- og iðju-
þjálfa. Það skyldi einnig vera nothæft á venju-
legu hjúkrunarheimili, sem jafnvel hefði ekki á
að skipa fullkomnu teymi heilbrigðisstarfs-
manna til að annast hinn aldraða.
Mörg annars ágæt mælitæki tóku ekki tillit til
þess að fjöldi vistmanna á öldrunarstofnunum
hefur vitræna skerðingu og getur því ekki tjáð
sig um eigin þarfir.
Áður en mælitækið var reynt fyrst hafði það
verið endurskoðað 27 sinnum vegna athuga-
semda frá hundruðum klínískra sérfræðinga
vítt um Bandaríkin. Mælitækið var prófað á 28
öldrunarstofnunum í sex fylkjum og meira en
600 vistmenn voru metnir. Með þessum próf-
unum voru gildi og áreiðanleiki mælitækisins
og kennsluefnisins metin og reynt var að fækka
matsþáttum svo sem kostur var (8). Áður en
mælitækið var endanlega frágengið hafði það
verið þróað í gegnum meira en 40 vinnuhand-
rit. Einnig hafa verið þróuð minni mælitæki úr
einstökum þáttum RAI mælitækisins til að lýsa
vitrænni getu (9), andlegri- og félagslegri líðan
(10), svo að dæmi séu tekin, og þau borin sam-
an við „gullstaðal“ mælitæki, svo sem Folstein
Mini-Mental Status prófið hvað vitræna getu
varðar.