Læknablaðið - 15.10.1997, Síða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
649
betur fram á áhættuþætti. Árið 1989 birtist
samanburðarrannsókn á þýði í Finnlandi og
Kína (11), og var notað staðlað MMS-próf.
Núna er verið að gera nokkrar stórar slíkar
rannsóknir og má nefna rannsókn er gerir sam-
anburð á landsvæðum í Indlandi og Banda-
ríkjunum (12) og einnig hina svokölluðu Ni-
Hon-Sea rannsókn sem ber saman tíðni heila-
bilunar og mismunandi orsaka hennar í Japan,
Honolulu og Seattle (13).
Sú rannsókn sem hér er lýst var gerð samtím-
is og með sömu aðferðum á tveimur aðskildum
landsvæðum á Islandi. Notuð voru einföld
mælitæki á vitræna getu og getur niðurstaðan
því ekki sýnt eiginlega tíðni heilabilunar því
ekki er tekið tillit til annarra klínískra þátta.
Höfundum er ekki kunnugt um rannsókn sem
gerir samanburð milli landsvæða innan sama
lands, samtímis og með sömu mælitækjum.
Tilgátan var sú að enginn munur væri á tíðni
heilabilunar á þessum landsvæðum og að heild-
arniðurstöður gæfu góða mynd af tíðni ein-
kenna heilabilunar í dreifbýli á íslandi.
Efniviður og aðferðir
Höfundar þjálfuðu tvo sálfræðinema og
kennara í notkun sálfræðiprófanna. Þeir skiptu
með sér landsvæðunum og að prófunum lokn-
um fóru höfundar yfir þau öll, mátu vafaatriði
og skráðu niðurstöður. Haft var samstarf við
heilsugæslulækna á hvoru landsvæði og voru
þeir til aðstoðar varðandi aðstöðu og skipulag.
Rannsóknin fór fram sumarið 1992 og fram á
haustið og var ýmist farið heim til viðkomandi
eða þeir boðaðir á heilsugæslustöð. Haft var
samband við alla einstaklinga 70 ára og eldri
hvort sem þeir bjuggu á heimilum sínum eða á
stofnun og falast eftir þátttöku. Einstaklingar
sem ekki voru í ástandi til að taka þátt voru
skráðir. í töflu II má sjá fjölda íbúa 70 ára og
eldri, fjölda þeirra sem haft var samband við og
fjölda þátttakenda í sálfræðiprófum. Farið var
eftir þjóðskrá frá 1. desember 1991 og ekki rætt
við aðra en þá sem þar var að finna. Ekki var
farið í aðra landshluta til að leita uppi brott-
flutta. Notuð voru einföld próf og fyrirlagning
þeirra er með alveg stöðluðum fyrirmælum
Eftirfarandi próf voru notuð:
* MMS-próf (10). Notast var við þýðingu Krist-
ins Tómassonar frá 1986 (14). Þetta er mest
notaða skimprófið á heilabilun í dag og gefur
það frá 0 stigum (alvarleg glöp) upp í 30 stig
(eðlilegt).
* Líkingar úr WAIS greindarprófi Wechslers
(Wechsler Adult Intelligence Scale) fyrir full-
orðna (15). Spurt var um sameiginleg einkenni
orðapara, til dæmis hvað líkt sé með banana og
epli, alls 13 pör. Prófið mælir tjáningargetu og
hugtakamyndun. Svörin voru skráð og síðan
metin eftir á af einum höfunda (ÞJJ).
* Slóðarpróf A (16). Dregin er lína á blaði milli
tölustafa frá einum upp í 25 og mældur tími í
sekúndum. Prófið mælir hraða hugsunar og
framkvæmdar.
* Slóðarpróf B (16). Dregin er lína milli tölu-
stafa og bókstafa til skiptis (1-A-2-B-3-C og svo
framvegis) og mældur tíminn í sekúndum.
Prófið metur hæfileikann til að vinna úr tveim-
ur áreitum samtímis auk þess sem hraði hugs-
unar og framkvæmdar skiptir máli.
Ekki var spurt um skólagöngu í þessari rann-
sókn en sumarið 1993 var úrtak úr þýðinu rann-
sakað nánar og var þá spurt um skólagöngu.
Til að meta brottflutning voru fengnar upp-
lýsingar úr þjóðskrá um fjölda búsettra ein-
staklinga á báðum landsvæðum á tímabilinu frá
og með 1920 til og með 1970 með 10 ára milli-
bili.
Munur milli landsvæða var metinn með t-
prófi. Tölfræðilega marktækur munur var skil-
greindur sem p-gildi undir 0,05.
Niðurstöður
Heimtur voru sambærilegar á báðum svæð-
um eða 79,3% á svæði L og 79,8% á svæði S.
Eins og sjá má í töflu III var mjög marktækur
munur á niðurstöðum eftir landsvæðum í öllum
prófunum fjórum. Misjafnt var hversu margir
gátu leyst af hendi mismunandi próf. Slóðar-
próf B reyndist of erfitt fyrir meirihluta þátt-
Table II. Inhabitants in areas of agriculture (area A) andftshing (area F) aged 70 and over Dec 1,1991 and their participation.
Age in years Interviewed Participating
Region 70-74 >75 n (%) n (%)
Area A 113 240 280 (79.3) 256 (72.5)
Area F 85 153 190 (79.8) 185 (77.7)
Total 198 393 470 (79.5) 441 (74.6)