Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1997, Page 54

Læknablaðið - 15.10.1997, Page 54
674 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Umræða og fréttir Aðalfundur Læknafélags íslands 1997 Aðalfundur Læknafélags ís- lands var haldinn í Borgarnesi dagana 26. og 27. september. í upphafi fundar minntist Sverrir Bergmann formaður fé- lagsins, lækna er látist hafa frá síðasta aðalfundi, þeir eru; Daníel Daníelsson, Jón Eiríks- son, Jón Gunnlaugsson, Jón J. Níelsson, Ólafur Halidórsson, Ólafur Jensson, Sigurður B. Ólason, Snorri Ólafsson, Stefán Ólafsson, Valgarð Þ. Björns- son, Þorsteinn Sigurðsson og Þórður Oddsson. Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins. Sverrir Berg- mann gaf ekki kost á sér til end- urkjörs og lét því af störfum eft- ir sex ára formennsku, þótt stjórnarseta hans sé öllu lengri. Stjórnin skipa: Guðmundur Björnsson for- maður, Jón G. Snædal varafor- maður, Guðmundur J. Elíasson ritari, Sigurbjörn Sveinsson gjaldkeri og Katrín Fjeldsted, Helgi H. Helgason, Sigurður Björnsson, Sigurður Ólafsson og Arnór Víkingsson með- stjórnendur. Á fundinum var Læknafélag Vestmannaeyja samþykkt sem svæðafélag en áður höfðu Vest- manneyingar tilheyrt Læknafé- lagi Suðurlands og þar áður Læknafélagi Reykjavíkur, þannig að sjálfstæðisbarátta þeirra er orðin nokkuð löng. Fundurinn samþykkti einnig að Félag ungra lækna fengi stöðu svæðafélags. Fjöldi ályktunartillagna lá fyrir fundinum, en samþykktir fundarins verða birtar í næsta blaði. Fráfarandi formaður óskar nýkjörnum formanni allra heilla. Ljósm.; Lbl. -bþ-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.