Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1997, Qupperneq 57

Læknablaðið - 15.10.1997, Qupperneq 57
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 677 Árni Sverrisson St. Jósefsspítala Hafnarfírði Ýmsir þröskuldar áður en til sameiningar kæmi St. Jósefsspítali Hafnarfirði. „Þegar talað er um mikilvægi þess að auka samstarf sjúkra- húsa er nauðsynlegt að fram komi að þegar er um að ræða mikið samstarf þeirra á milli, til dæmis hefur verið samstarf við Sjúkrahús Reykjavíkur frá síð- ustu áramótum þar sem gert er ráð fyrir því að bæklunarlækn- ar hafi hér þrjá aðgerðardaga í viku. Við leggjum sem sagt til skurðstofur og annað starfslið og 550 til 600 slíkar aðgerðir eru framkvæmdar árlega,“ segir Árni Sverrisson framkvæmda- stjóri St. Jóefsspítala Hafnar- firði. Framkvæmdastjórinn segir að aðallega sé um að ræða ferli- verk en til innlagna komi í um það bil 25% aðgerða. „Þessi þjónusta okkar hefur komið til smám saman þótt við höfum ekki tekið upp formlegt sam- starf við SHR fyrr en um síðustu áramót. Þegar Landakot var lagt niður sem almennur spítali urðu þessar aðgerðir útundan og því lá beinast við að flytja þær hingað, þar sem skurð- stofupláss var laust að hluta, en við erum með tvær skurðstofur sem gefa 10 aðgerðardaga í viku. Þrír eru notaðir vegna bæklunaraðgerða lækna frá SHR og sá fjórði er notaður af bæklunarlæknum Landspítal- ans. Stóru sjúkrahúsin hafa ein- faldlega ekki húsnæði til að sinna þessum aðgerðum og því er mjög eðlilegt að nýta aðstöð- una hér. Þetta bætir mjög nýt- inguna hjá okkur því með öðr- um aðgerðum sem hér fara fram náum við milli 90 og 95% af- köstum á skurðstofunum sem þykir mjög gott.“ Aðspurður um framtíðar- skýrsluna segir Árni Sverrisson að yfirstíga verði ýmsa þrösk- ulda áður en til þeirrar samein- ingar kæmi: „Þar á ég við tvo stóra þrösk- ulda. Annars vegar er það hvernig samstarfsflokkur heil- brigðisráðherra, Sjálfstæðis- flokkurinn, vill taka á málinu og hins vegar hvernig meirihlutinn í Reykjavík gerir það. Takist heilbrigðisráðherra hins vegar að stíga yfir þessa þröskulda ætti undirbúningsvinna að geta hafist af alvöru. Það er ýmislegt áhugavert í skýrslunni og ekki óeðlilegt að skoða margt sem þar er lagt til en það á eftir að taka drjúgan tíma. Eflaust verð- ur hægt að koma á einni yfir- stjórn og trúlega er það nauð- synlegt út frá faglegu sjónarmiði en ég held þó að einhver dagleg stjórn verði að vera á hverjum stað vegna öldrunarþjónustu og heilsugæslu.“ Árni segir að búið sé að merg- sjúga heilbrigðiskerfið svo á síð- ustu misserum að erfitt hljóti að vera að spara frekar þrátt fyrir aukna hagræðingu og/eða sam- einingu sjúkrahúsa. „Komi það hins vegar á daginn verður von- andi hægt að nýta það fjármagn til meiri framkvæmda í heil- brigðiskerfinu, þörfin verður alltaf fyrir hendi og síst minni á næstu árum en hún er í dag.“ -jt-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.