Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1997, Page 70

Læknablaðið - 15.10.1997, Page 70
688 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Heildstæða afleysinga- þjónustu vantar Þegar lækni vantar til afleys- inga á heilsugæslustöð eða sjúkrahús, oft fyrirvaralítið, getur verið erfitt að finna slíkan án þess að eyða verulegum tíma í leit. Þeir afleysingalæknar sem um er að ræða geta verið úr eft- irfarandi hópum: - læknanemar, - læknakandídatar, - heimilislæknar hérlendis, - heimilislæknar erlendis, - læknar í sérnámi hérlendis, - læknar í sérnámi erlendis, - sérfræðingar hérlendis, - sérfræðingar erlendis. Sem dæmi má stilla því upp að lækni vanti til að leysa af heilsugæslu- og sjúkrahúslækni úti á landi. Stundum ber þetta skjótt að. Það gæti þurft að hringja fyrst í nokkra lækna sem vonandi vita um einhvern í kunningjahópnum sem er reyndur í svona vinnu, ef til vill með sérfræðiviðurkenningu í heimilislækningum, og vill leysa af. Eftir nokkurn tíma getur komið í ljós að það ber ekki ár- angur. Þá er hringt í landlækni og spurt um kandídata. Ef það gengur ekki, er læknanemum boðin staðan. Að síðustu má ekki gleyma þeim íslendingum sem eru við sérnám erlendis og vildu gjarnan koma heim til að leysa af en veigra sér við að hringja á millilandataxta til að finna út hvar og hvenær afleys- ingastaða fæst (oftlega fyrir- varalítið). Þá eru laun og önnur kjör, til dæmis afnot af húsnæði og bfl, misjöfn og engin kerfis- bundin skráning á sér stað um slíkt nú. Ferðir sérfræðinga á heilsugæslustöðvar Þegar læknisumdæmi þarfn- ast sérfræðings í móttöku eða aðgerðir reglulega er stundum úr vöndu að ráða vegna þess að margir sérfræðingar eru störf- um hlaðnir. Gjarnan eru nýir sérfræðingar fáanlegir, en nöfn þeirra eru ekki aðgengileg til dæmis vegna þess að þeir eru fyrst um sinn ekki í símaskrá. Sérfræðingar sem eru tilleiðan- legir í læknisferðir út á land ættu að geta skráð sig á lista hjá Læknamiðluninni og fengið verkefni við hæfi. Læknisráðgjafarþjónusta fyrir sjúklinga Hægt væri að senda í heima- hús upplýsingakort í krítar- kortsstærð um þjónustusíma- númer. Þegar hringt er í númer- ið, greiðir hringjandinn mínútu- gjald til þjónustuaðilans. Hjúkr- unarfræðingur svarar. Efhjúkr- unarfræðingur treystir sér ekki til að svara fyrirspurn, má vísa henni til heimilislæknis, sem sit- ur fyrir svörum (heima hjá sér ef vill). Læknisviðtal um síma kostar sama og stofuviðtal - greitt er með því að gefa upp krítarkortsnúmer. Ef læknirinn vill vísa málinu til sérfræðings, hringir hann í GSM síma sér- fræðings og sjúklingurinn fær viðtal við hann. Rúmlega tutt- ugu sérfræðingar í hinum ýmsu sérgreinum og hliðargreinum læknisfræðinnar myndu bera á sér GSM síma og standa vakt fyrir Læknamiðlunina. Heimil- islækni eða sérfræðingi er greitt fyrir hvert viðtal í gegnum Læknamiðlunina, af greiðslu- korti sjúklings sjálfs. Þegar einn vaktsérfræðingur hættir á vakt og annar tekur við fer GSM sím- inn á milli manna. Öll samtöl eru tekin upp á segulband. Hjúkrunarfræðingur vélritar meginefnispunkta hvers símtals sjúklings við heimilislækni og sendir heimilis-/heilsugæslu- lækni sjúklings afrit næst dag. Þannig lærir hjúkrunarfræðing- ur ráðgjafarlist af heimilislækn- inum og getur væntanlega svar- að sjálfur sams konar fyrirspurn sjúklings næst. Það er ódýrara. Heimilsilæknir sem vísar spurn- ingu til sérfræðings hlustar á samtalið síðar af segulbandi og skráir helsta efni þess niður. Þannig lærir hann ný úrræði. Afrit fer til heimilislæknis sjúk- lings næsta dag nema annars sé óskað. Líklegt er að glænýir sér- fræðingar og þeir sem vildu hafa meira að gera á stofu vilji standa slíkar vaktir, því að í kjölfar sumra símaviðtalanna koma óhjákvæmilega nokkur stofu- viðskipti. Tímapöntunarþjónusta sérfræðinga Sérfræðingar og aðrar heil- brigðisstéttir, til dæmis sjúkra- þjálfarar og sálfræðingar, geta skráð sig hjá Læknamiðluninni. Um leið fær miðlunin til ráð- stöfunar tíma sem má bóka í. Sjúklingar geta þannig náð í fyrsta mögulega tímann hjá til dæmis barnalækni með undir- grein í ofnæmislækningum, eða sjúkraþjálfara ef til vill samdæg- urs. Þarna væri fargi létt af heimilislæknum sem þurfa nú að eltast við sérfræðinga til að ná hagstæðum tímabókunar- samningum fyrir hönd sjúk- linga. Líklega gætu nýir sér- fræðingar fyrir tilstilli svona þjónustu náð viðunandi starfs- möguleikum fyrr en ella. Einnig er hugsanlegt að sumir sérfræð- ingar og jafnvel heilu læknastof- urnar láti Læknamiðlunina um alla tímabókunarþjónustu. Að sjálfsögðu má tölvufjarskipta- væða starfsemina og koma henni á skjá við borð hvers læknis, ef kostnaður er viðráð- anlegur. Afleysingaþjónusta lækna Rétt væri að senda bréf til allra íslenskra lækna, hérlendis

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.