Læknablaðið - 15.10.1997, Qupperneq 75
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
691
Fréttatilkynning
Nýtt norrænt tímarit um
hjarta- og æðasjúkdóma
Hafin er útgáfa á nýju alþjóð-
legu tímariti sem ber heitið
Scandinavian Cardiovascular
Journal. Fagtímaritið er gefið
út í samstarfi milli samtaka
hjartalyflækna og skurðlækna í
Danmörku, Finnlandi, Islandi,
Noregi og Svíþjóð. Tímaritið er
opinbert málgagn þessara sam-
taka og byggir á gömlum merg.
Pað tekur við af tímaritinu
Scandinavian Journal of Thora-
cic and Cardiovascular Surgery.
Að útgáfunni stendur útgáfufé-
lag Acta Chirugica Scandina-
vica sem upphaflega var stofnað
1869 af prófessor Axel Key í
Svíþjóð. Tímaritið er skrifað á
ensku og koma sex hefti á ári í
4000 eintökum. Pað er skráð í
Index Medicus.
Markmið tímaritsins er að
tengja saman þá vísindavinnu
sem unnin er á ýmsum sviðum
hjarta- og æðasjúkdóma, allt frá
grunnrannsóknum í lífeðlis-
fræði, til klínískra rannsókna á
öllum sviðum hjartalækninga og
tækniþróunar tengdum þeim.
Tímaritið stefnir að því að birta
fljótt til dæmis greinar sem eru
hluti af doktorsverkefni, ágrip
frá vísindaþingum, sjúkratilfelli
og einnig verður umræðuþáttur
um það sem er efst á baugi í
hjartalækningum hverju sinni.
Ennfremur mun ritstjórn biðja
valda höfunda um að skrifa yfir-
litsgreinar. Peim sem vinna að
vísindastörfum á sviði hjarta- og
æðasjúkdóma er bent á að not-
færa sér þetta tímarit og stuðla
þannig að velgengni þess.
Fyrir hönd íslands sitja nú í
ritstjórn, Ragnar Danielsen,
Jón Högnason, Guðmundur
Porgeirsson og Bjarni Torfa-
son. Blaðið er sent til allra
hjartalækna á Norðurlöndunum
en verður einnig fáanlegt á
Bókasafni Landspítalans.
Greinar til birtingar sendist
til: Dr. Axel Henze, Editor-in-
Chief, Thoracic Surgery Clinic,
Akademiska Sjukhuset, S-751
85 Uppsala, Svíþjóð.
Um endurskoðun flokkunar sjúkdóma og
skyldra heilbrigðisvandamála og
flokkunaraðferða og -aðgerða
í skurðlækningum
Um síðustu áramót tóku ný
flokkunarkerfi gildi hér á landi.
Eins og við var að búast, eru
þessar skrár ýmsum annmörk-
um háðar og þær svara ekki að
fullu öllum kröfum allra sér-
greina. Til dæmis vantar tilfinn-
anlega skráningarnúmer fyrir
ýmsar nýlegar greiningarað-
ferðir.
Skipuð hefir verið norræn
starfsnefnd (Referensgruppen
för Nordiska Klassifikations-
frágor) á vegum WHO Collab-
orating Centre for the Clas-
sification of Diseases in the
Nordic Countries, sem er sam-
starfsstofnun Norðurlandaráðs
og Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar og hefir aðsetur í Sví-
þjóð. Er starfsnefndinni ætlað
að safna saman ábendingum og
athugasemdum og gera endur-
bætur á þeim flokkunarkerfum,
sem í notkun eru.
Komi læknar auga á villur eða
vöntun í flokkunarkerfunum,
eru þeir beðnir að hafa sam-
band við fulltrúa íslands í starfs-
nefndinni, Örn Bjarnason for-
stöðulækni, Skrifstofu Ríkis-
spítala, Rauðarárstíg 31, 105
Reykjavík, í síma 560 2308 eða
um bréfsíma 562 0090.