Læknablaðið - 15.10.1997, Page 85
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
701
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Heilbrigðislögfræði fyrir stjórnendur
heilbrigðisstofnana
20. október kl. 13:00-17:30.
Námskeið um lög og reglur á sviði heilbrigðislögfræði fyrir framkvæmdastjóra heilbrigðis-
stofnana, stjórnarformenn, yfirlækna, hjúkrunarforstjóra og aðra stjórnendur. Á nám-
skeiðinu verður farið yfir helstu laga- og reglugerðarákvæði er snerta starfsemi heilbrigð-
isstofnana og meðal annars fjallað um:
1. Uppbyggingu heilbrigðiskerfisins og fjármögnun, meðal annars lög um heilbrigðis-
þjónustu og lög um almannatryggingar.
2. Réttindi heilbrigðisstétta samkvæmt lögum og reglugerðum.
3. Réttindi sjúklinga og skyldur heilbrigðisstétta sem af þeim leiða, svo sem skráning í
sjúkraskrá, aðgangur og upplýsingar úr sjúkraskrá, þagnarskylda og vitnaskylda.
4. Stjórnsýslulög og upplýsingalög, gildissvið og áhrif gagnvart starfsemi heilbrigðis-
stofnana.
5. Kvartanir og meðferð þeirra.
6. Skaðabótakröfur á hendur heilbrigðisstofnunum og viðbrögð við þeim.
Umsjón: Dögg Pálsdóttir hrl.
Verð: 4.500 kr.
Fötlun, langvarandi veikindi og meðvirkar fjölskyldur.
Nálgun fagfólks, breyttar áherslur, nýjar hugmyndir
31. október kl. 9:00-16:00 og 1. nóvember kl. 9:00-13:00
Farið verður yfir þá röskun sem fötlun eða langvarandi veikindi hafa í för með sér fyrir
fjölskyldur. Kynntar verða nýjar hugmyndir sem Andrés Ragnarsson hefur þróað á þessu
sviði, meðal annars um „lamaðar, ofvirkar og meðvirkar fjölskyldur".
Kennarar: Andrés Ragnarsson og Wilhelm Norðfjörð sálfræðingar.
Verð: 9.800 kr.