Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 9

Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 97 Niðurstöður: Hámarksbeinmagni virðist náð um tvítugt. Engin fylgni fannst milli kalkneyslu og beinmagns nema í mjöðm í undirhópi 18 ára kvenna sem neyttu minna en 1000 mg á dag. Engin marktæk fylgni fannst milli þéttni 25-OH-vítamín D í blóði og heild- arbeinmagns. Af hópnum höfðu 15-18,5% lægri gildi (<25 nmól/L) á 25-OH-vítamín D í blóði en æskilegt hefur verið talið fyrir full- orðna. Veruleg fylgni fannst milli magns mjúkvefja (þar með talið vöðva) og beinmagns, 0,38-0,53, p<0,01 en mjúkvefjamagnið var jafnframt í réttu hlutfalli við líkamshreyfingu, r=0,2-0,47, p<0,05. í fjölþáttagreiningu var marktæk fylgni milli líkamshreyfingar og heildarbeinmagns í 16-20 ára hópnum (p<0,01), þannig jókst beinmagnið um 0,45% fyrir hverja klukkustund líkamshreyfingar á viku. Slík fylgni fannst ekki í hópi 25 ára. Magn mjúkvefja skýrði 25,8-28,3% af breyti- leika í heildarbeinmagni þátttakenda. Alyktun: Hámarksbeinmagni kvenna er að mestu náð um tvítugt. Þessi rannsókn bendir til að unnt sé að auka það með æskilegu vöðva- magni sem fæst meðal annars með nægilegri líkamshreyfingu fyrir tvítugt. Meðalkalkneysla reyndist góð og það kann að skýra að lítil fylgni fannst milli hennar og beinmagns. D- vítamínhagur hópsins var hins vegar neðan æskilegra marka (<25 nmól/L) hjá að minnsta kosti 15% þátttakenda án þess að það hefði áhrif á beinmagnið. Inngangur Beinstyrkleiki á öllunt aldri ákvarðast að stórum hluta (80%) af beinmagninu (1,2). Beinmagn einstaklings á efri árum ákvarðast bæði af því hámarksbeinmagni (peak bone mass) sem viðkomandi hlaut er vexti beina var lokið og því beintapi sem hann verður fyrir með aldrinum. Rannsóknir benda til að bein- magn sjötugra kvenna ákvarðist að hálfu af hámarksbeinmagni viðkomandi konu og að hálfu leyti af aldursbundnu beintapi, sérstak- lega eftir tíðahvörf (3). Þess vegna hefur verið mikill áhugi á að kanna hvað ákvarði hámarks- beinmagn einstaklingsins, auk erfða, í því skyni að hugsanlega megi stuðla að auknum beinmassa á yngri árum. Það skiptir því jafn- framt verulegu máli að vita hvenær hámarks- beinmagni er náð, en niðurstöður rannsókna hafa verið verulega misvísandi í þessu tilliti eða 16-35 ára (4-6). í þessari rannsókn höfum við reynt að meta hvenær hámarksbeinmagni íslenskra kvenna sé náð og hvort fylgni sé milli beinmagns og mataræðis, sérstaklega kalks og D-vítamíns og líkamshreyfingar á þessum aldri. Efniviður og aðferðir Slembiúrtak kvenna af Reykjavíkursvæðinu á 16., 18., 20. og 25. aldursári var fengið úr fbúaskrá Reykjavíkur. Alls var 496 konum boðin þátttaka (tafla I). Þær sem voru þungað- ar, höfðu átt barn innan sex mánaða eða höfðu sjúkdóma sem kynnu að hafa áhrif á bein voru útilokaðar. í rannsókninni tóku þátt alls 335 eða um 68% boðaðra, 71 var á 16. aldursári, á 18. aldursári voru 60, 118 á 20. aldursári og 86 á 25. aldursári. Rannsóknin á 16, 18 og 20 ára hópunum var framkvæmd í febrúar til apríl 1996 og á 25 ára aldurshópnum í október og nóvember 1996, að fengnu skriflegu samþykki þátttakenda og foreldra yngstu stúlknanna. Rannsóknin var samþykkt af siðanefnd lækna- ráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur. Könnun á matarœði (kalki, prótíni og D- vítamíni): Staðlaður spurningalisti (tíðnikönn- unarlisti Manneldisráðs), saminn upp úr könn- un Overvad og fleiri (7,8), var lagður fyrir þátt- takendur þar sem beðið var um að krossa við hversu oft ákveðinna fæðutegunda var neytt á dag, í viku eða mánuði undanfarna þrjá mánuði. Skammtastærðir voru áætlaðar með Tafla I. Rannsóknarhópar, fjöldi þátttakenda í hverjum aldurshópi. 16 ára 18 ára 20 ára 25 ára Samtals Boðaðar 86 82 185 143 496 Útilokaðar* 0 2 10 13 25 Mættu 71 60 118 86 335 Mætingarhlutfall 82 73 64 60 68 ‘Útilokaðar voru þær sem voru þungaðar eða höfðu átt barn á síöustu sex mánuðum (alls 17), fengið meðferð með sykurvirkum sterum (fimm) eða voru á flogaveikilyfjum (þrjár).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.