Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 20

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 20
108 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Afdrifa þessara hópa var leitað í dánarmeina- skrá og krabbameinsskrá og þau borin saman með óbeinni stöðlun við dánartíðni og nýgengi krabbameina hjá öllum íslenskum körlum. Auk þessa voru stöðluðu dánarhlutföllin (standard- ised mortality ratios, SMRs) og nýgengihlut- föllin (standardised incidence ratios, SIRs) borin saman milli hópanna. Gerð var sérstök könnun í gögnum Hjartaverndar á reykinga- venjum lækna og lögfræðinga og reiknuð út hugsanleg truflandi áhrif reykinga á nýgengi lungnakrabbameins. Niðurstöður: Dánartíðni í hópi lögfræðinga var svipuð og hjá öðrum körlum en dánartíðni í læknahópnum var lægri en hjá öðrum og einnig lægri en meðal lögfræðinga. Þetta átti rót sína að rekja til lægri dánartíðni vegna allra krabbameina, magakrabbameins, lungna- krabbameins, heilablóðfalls og öndunarfæra- sjúkdóma, stöðluð dánarhlutföll þessara dánar- meina voru: 0,73, 0,27, 0,44, 0,53 og 0,54. Dánartíðni var hins vegar hærri meðal lækna vegna sjálfsmorða sem framin voru með lyfj- um, föstum eða fljótandi efnum, staðlað dánar- hlutfall 5,75. Krabbamein voru yfirleitt fátíðari hjá læknum en lögfræðingum og átti það eink- um við um lungnakrabbamein, nýgengihlutfall 0,45. Krabbamein í ristli og heila voru þó tíðari hjá læknum en hjá öðrum körlum, en munurinn var einungis tölfræðilega marktækur fyrir krabbamein í ristli, nýgengihlutfall 1,93. Reyk- ingar voru minni meðal lækna en annarra karla og lögfræðinga. Ályktun: Lægri dánartíðni meðal lækna bendir til heilsusamlegs lífernis enda reykja þeir síður en aðrir karlar eða lögfræðingar. Vera má að læknar njóti læknisfræðilegrar þekking- ar sinnar þannig að þeir komist fyrr í betri með- ferð við sjúkdómum sem þeir kunna að fá. Krabbamein, einkum lungnakrabbamein, eru fátíðari meðal lækna en annarra sem tæpast skýrist eingöngu af minni reykingum þeirra. Inngangur Rannsóknir á körlum í læknastétt í mörgum löndum hafa sýnt að heildardánartíðni þeirra er lægri en annarra (1-12). Nokkur dánarmein eru þó tíðari í þeirra hópi. Flestar athuganir benda til hærri dánartíðni vegna sjálfsmorða (8,11- 15), og eldri rannsóknir sýndu hærri dánartíðni meðal lækna vegna hjartasjúkdóma (1,7,16). Þetta hefur ekki verið staðfest í nýrri rannsókn- um heldur hið gagnstæða, að hjartasjúkdómar eru fátíðari meðal lækna en annarra (5,6,11,12). Svo virðist sem hætta á blóð- krabbameinum vegna geislunar hafi minnkað eða jafnvel horfið á síðari árum með betri geislavörnum (17-20). Rannsóknir á læknahópum hafa sýnt að dán- artölur vegna allra krabbameina eru lægri með- al þeirra en annarra (2,4-6,11,12) og nýgengi allra krabbameina var lægra meðal finnskra og danskra lækna en annarra karla (21-23). Hugs- anleg mengun krabbameinsvalda í vinnu virðist því ekki hafa áhrif til hækkunar á dánartíðni eða nýgengi krabbameina í heild. Rannsóknir á breskum meinafræðingum sýndu hærri dánar- tíðni vegna krabbameina í eitlum, blóðmynd- andi vefjum og heila (24-26). Nýgengi krabba- meins í ristli var hærra meðal finnskra lækna en annarra, en niðurstöðurnar voru ekki tölfræði- lega marktækar (22). Niðurstöður nokkurra rannsókna benda til að dánartíðni meðal heimilislækna sé hærri en meðal annarra lækna (7,17,27), sem í einni rannsókn var talið stafa af meiri reykingum heimilislækna (28). Gamlar bandarískar rann- sóknir bentu til að þeir sem ekki væru sérfræð- ingar lifðu skemur en aðrir læknar (29,30). Lág dánartíðni og lágt nýgengi krabbameina í heild meðal lækna hefur að nokkru verið skýrt með því að þeir njóti þess að vera af hærri stig- um þjóðfélagsins þar sem dánar- og krabba- meinstíðni sé almennt lág (31,32). í þessu sam- bandi hefur athyglin beinst að lífsháttum lækna og þeir taldir betri en annarra (10-12). Læknar reykja til dæmis minna en aðrir (10,11,21,27, 33-35). Könnun meðal íslenskra lækna sýndi að daglegar reykingar þeirra voru tvisvar til þrisvar sinnum fátíðari en meðal almennings (36). Til þess að taka tillit til velþekkts munar á dánar- og krabbameinstíðni fólks í mismunandi þjóðfélagshópum hafa rannsóknir á læknum beinst að samanburði við hópa í sama þjóðfé- lagsþrepi (10,22) eða að samanburði á læknum innbyrðis (11,12,24-26,28,30,37). Samanburð- ur á læknum og lögfræðingum hefur fengið nokkra hefð en með því að taka annan háskóla- menntaðan hóp til samanburðar er unnt að ná stjórn á áhrifum þjóðfélagsstigunar (38,39). Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort dánartíðni og nýgengi krabbameina hjá íslenskum læknum séu lægri en meðal annarra karla og meðal lögfræðinga, einkum með tilliti

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.