Læknablaðið - 15.02.1998, Qupperneq 39
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
125
Heilablóðfall vegna mígrenis
Tvö sjúkratilfelli
Jón Hersir Elíasson", Einar M. Valdimarsson", Birna Jónsdóttir2’, Finnbogi Jakobsson"
Elíasson JH, Valdimarsson EM, Jónsdóttir B,
Jakobsson F
Migraine-related stroke. Two case-reports
Læknablaðið 1998; 84: 125-9
Migraine is the cause of 3-25% of strokes in young
adults. Each year we can expect 9-10 cases of
migraine-related stroke in Iceland. The most com-
mon symptom is hemianopia but other common
symptoms include hemiparesis, hemianesthesia, dys-
phasia and various brain stem symptoms. The stroke
must occur during a typical migraine attack and other
causes have to be excluded. Here we describe two
cases of migraine-related stroke.
Key-words: stroke, migraine.
Ágrip
Mígreni er orsök 3-25% heilablóðfalla hjá
einstaklingum 50 ára og yngri. A Islandi má á
hverju ári búast við 9-10 tilfellunr heilablóð-
falla vegna mígrenis. Algengasta einkenni er
sjónsviðsskerðing en önnur einkenni geta verið
helftarlömun (hemiparesis), helftardofi (hemi-
anesthesia), málglöp (dysphasia) og ýmis
heilastofnseinkenni. Til að mígreni teljist orsök
þarf einstaklingur að fá heilablóðfall í dæmi-
gerðu mígrenikasti og útiloka þarf aðrar orsak-
ir heilablóðfalls. Við lýsum hér tveimur tilfell-
um af heilablóðfalli vegna mígrenis sem
greindust nýlega á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Frá "endurhæfinga- og taugadeild Sjúkrahúss Reykjavik-
ur, z|Röntgen Domus Medica. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ein-
ar M. Valdimarsson, endurhæfinga- og taugadeiid Sjúkra-
húss Reykjavíkur, Fossvogi, 108 Reykjavík.
Sjúkratilfelli 1
Tuttugu og níu ára gamall karlmaður veiktist
um miðjan dag þar sem hann sat í stól heima
hjá sér. Honum fannst umhverfið verða óraun-
verulegt og hann fann fyrir doðatilfinningu um
allan líkamann og fannst hann ætla að líða út
af. Hann náði þó að kalla á aðstoð og reyndi að
rísa á fætur en missti þá meðvitund í stutta
stund. Þessu fylgdu engir sýnilegir krampar.
Þegar maðurinn rankaði við sér var hann með
mikinn höfuðverk sem lýsti sér eins og sá
mígrenihöfuðverkur sem hann hafði oft haft
áður. Þessu fylgdu ógleði og uppköst. Einnig
tók hann eftir skerðingu á sjónsviði til hægri.
Höfuðverkurinn hvarf á nokkrum klukkustund-
um en sólarhring síðar var sjónsviðsskerðingin
enn til staðar. Þá var maðurinn sendur á bráða-
móttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Ættarsaga um mígreni er hjá manninum og
sjálfur hefur hann haft mígreni frá unglingsár-
um. Hann fær að jafnaði tvö til þrjú köst í mán-
uði. Stundum fær hann áru sem er eins og ljós-
glampar, mest hægra megin í sjónsviðinu. Ár-
unni hafa fylgt ógleði og sláttkenndur verkur
vinstra megin í enni og gagnauga og hefur
verkurinn staðið í allt að sólarhring. Við verkn-
um hefur hann tekið acetýlsalicýlsýru sem hef-
ur slegið á. Fyrir þremur árum fékk maðurinn
óraunveruleika- og doðatilfinningu um allan
líkamann, líka þeirri sem hann lýsir nú. í kjöl-
farið fann hann fyrir dofa í öllum hægri líkams-
helmingi. Dofinn hvarf síðar að fullu. Maður-
inn man ekki hvort höfuðverkur fylgdi því
kasti. Hann hefur reykt sem samsvarar fimm
pakkaárum. Hann var hættur að reykja en byrj-
aði aftur fyrir sex mánuðum eftir nokkurra ára
hlé. Að öðru leyti hefur hann verið hraustur.
Lykilorð. heilablóðfall, mígreni.