Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 45

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 131 in þessara fæðutegunda inniheldur C-vítamín. Sjúklingur og maki hans fengu næringarráð- gjöf, auk þess sem sjúklingur var meðhöndlað- ur með fjölvítamínum og C-vítamíni (500 mg á dag). Líðan sjúklings batnaði nokkuð, einkum minnkaði þróttleysið. Helstu áhættuþættir fyrir C-vítamínskorti eru áfengissýki eða einhæft fæði og var það síðarnefnda orsakavaldur í sjúkratilfellinu sem hér er greint frá. Hlutverk C-vítamíns er mikil- vægt fyrir frásog járns, það er einnig mikilvægt fyrir efnahvörf amínósýra, fólats og einstakra efnahvata, auk þess að virka andoxerandi og fyrirbyggja þannig ef til vill hjarta- og æða- sjúkdóma, auk krabbameins (2). Sigurjón Jónsson héraðslæknir á Dalvík lýsti 1940 í Læknablaðinu 64 ára gamalli konu með alvarlegan C-vítamínskort (3). En með nútíma fæðuúrvali má ætla að í dag sé C-vítamínskort- ur sjaldséð vandamál hér á landi, en mögulegt er þó að hann sé vangreindur í vægari tilfellum sem því er hér hefur verið greint frá. HEIMILDIR 1. Black MM, RookAVilkinson/Eblin. Textbook of Derma- tology. Oxford: Blackwell Scientific Publication, 1992: 2367. 2. Sauberlich HE. Pharmacology of vitamin C (review). Ann Rev Nutr 1994; 14: 371-91. 3. Jónsson S. Ágrip af sjúkrasögu og nokkrar hugleiðingar um C-vítamín. Læknablaðið 1940; 26: 59-64. Sjúkratilfelli mánaðarins er nýjung í Læknablaðinu. Hugmyndin með þessum kafla er að kynna á stutt- an og hnitmiðaðan hátt hin ýmsu sjúkratilfelli sem um hendur lækna fara. Þessu hefur verið ætlað rými í hverju tölublaði fyrir sig, ein til tvær blaðsíður í senn. Ætlast er til að fram komi helstu atriði í sjúkrasögu og sjúkdómsgangi ásamt stuttum texta varðandi sjúkdóminn sjálfan, en í lokin má geta heimilda (tveggja til þriggja). Mynd eða myndir verða að fylgja er skýra og styðja text- ann. Vegna þessarar áherslu á myndir, er nauðsynlegt að þeir sem áhuga hafa á að nýta sér þetta afli samþykkis sjúklings þar sem persónuleynd viðkomandi gæti verið í húfi. Hvað varðar ritrýni á þessu efni, þá gerist hún hjá ritstjórn Læknablaðsins og er það gert til að stytta megi þann tíma sem líður frá því að efni berst inn og þar til að birtingu kemur. Með þessum aðfararorðum hvetur rit- stjórn Læknablaðsins alla lækna til að gefa þessum kafla gaum og senda inn áhugaverð tilfelli, þannig að hafa megi af gagn og gaman. Ritstjórn

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.