Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 48
134
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
gildir það bæði um texta, töflur og gröf. Töflur
og gröf vistist sem sérstök skjöl. Tilgreina skal
í hvaða vinnsluumhverfi grein er unnin og leita
samráðs við ritstjórnarfulltrúa.
Frágangur útprents: Handrit skulu prentuð
skýrt og greinilega öðrum megin á pappírsark-
ir í stærðinni A4, með að minnsta kosti 40 mm
spássíu vinstra megin og 20 mm spássíu hægra
megin. Línubil skal vera tvöfalt (8,5 mm).
Byrjið eftirfarandi hluta handrits á nýrri blað-
síðu: titilsíða, ágrip á ensku, ágrip, meginmál,
þakkir, heimildir, einstakar töflur og mynda-
texta. Blaðsíður handrits skulu tölusettar í röð
í efra horni hægra megin og byrjað á titilsíðu.
Slfk töluröð er áframhaldandi á öllum hlutum
handrits þar á meðal heimildum, töflum og
myndatextum.
Titilsíða: Á titilsíðu skal vera: 1. heiti grein-
ar sem ætti að vera stutt, en skýrt, og lýsa við-
fangsefni greinarinnar, 2. nöfn höfunda og að-
setur (deild, stofnun), 3. nafn deildar/stofnunar
þar sem rannsóknin var unnin ef hún er önnur
en aðsetur höfunda(r), 4. nafn og aðsetur höf-
undar sem annast fyrirspurnir og bréfaskipti, 5.
tvö til fjögur lykilorð á íslensku og ensku til
réttrar færslu greinarinnar í spjaldskrá.
Höfundar: Höfundar að grein skulu einung-
is vera þeir sem verulega hafa lagt af mörkum
til tilurðar greinarinnar. Er þar fyrst og fremst
átt við: 1. grunnhugmynd, hönnun og skipu-
lagningu rannsóknar, túlkun og framsetningu
niðurstaðna, 2. verulega eða meginábyrgð á
söfnun gagna eða á rannsóknarvinnu og 3. rit-
un uppkasts að handriti eða gagnrýnin yfirferð
handrits með tilliti til vitræns og vísindalegs
innihalds. Yfirmenn deildar eða rannsóknar-
stofu sem að öðru leyti koma ekki að rannsókn-
arvinnunni, fjárhagslegir styrktaraðilar og þeir
sem einungis taka lítinn þátt í vinnunni ættu
ekki að teljast höfundar greinar. Þeim má hins
vegar færa þakkir í lok handrits. Sérhver höf-
undur á að hafa tekið nægan þátt í vinnu þeirri
sem að baki greinar liggur til að geta borið
ábyrgð á öllu efni hennar og rætt það opinber-
iega.
Agrip: Agrip skal ekki vera lengra en 250
orð eða um 1370 slög (gildir fyrir kaflaskipt
ágrip). Ágrip enskt og íslenskt skulu sett fram
á skipulagðan, kaflaskiptan hátt. Efnisþættir
verði: tilgangur (objective), efniviður og að-
ferðir (material and methods) þar skal getið
vali á sjúklingum eða tilraunadýrum, aðferð
við söfnun og úrvinnslu niðurstaðna, niður-
stöður (results) sérstaklega skal getið sértækra
tölulegra niðurstaðna og tölfræðilegs vægis ef
unnt er og ályktun (conclusion) með áherslu á
nýjar og mikilvægar hliðar rannsóknarinnar.
Ágrip yfirlitsgreina og sjúkratilfella þurfa ekki
að vera kaflaskipt (lengd 150 orð). Ritstjórnar-
greinar þarfnast ekki ágripa ekki heldur ein-
stakir greinaflokkar samkvæmt nánari ákvörð-
un ritstjórnar, má þar nefna til dæmis sjúkratil-
felli mánaðarins. Enskt ágrip skal birta með
öllum fræðilegum greinum í Læknablaðinu.
Þar komi fram heiti greinar á ensku og höfund-
ar. Enskt ágrip má vera bein þýðing þess ís-
lenska.
Inngangur: Greint skal frá tilgangi rann-
sóknar og meginforsendum. Einungis skal vitn-
að til helstu (og fárra) greina sem að þeim lúta,
ekki skal reynt að skrifa ítarlegt yfirlit um efn-
ið. Niðurstöður og umræður uin þær eiga ekki
heima hér.
Efniviður og aðferðir: Lýsa ber efniviði
(sjúklingum, tilraunadýrum og svo framvegis,
þar á meðal viðmiðunarhópum) skilmerkilega.
Lýsa ber aðferðum, tækjabúnaði (nafn fram-
leiðanda og heimilisfang (borg, land) í sviga)
og aðgerðum í nægilegum smáatriðum til að
aðrir geti endurtekið rannsóknina og (væntan-
lega) fengið sömu niðurstöður. Vísa ber til
heimilda um algengar og vel þekktar aðferðir,
lýsa stuttlega aðferðum sem hafa verið birtar
en eru ekki vel kunnar; lýsa nánar nýjum eða
mjög breyttum aðferðum, tilgreina skal ástæðu
þess að þeim var beitt og meta kosti þeirra og
galla (næmi, sértæki og svo framvegis). Greint
skal frá öllum lyfjum og efnum sem notuð voru
með samheiti þeirra (sérlyfjaheita má geta inn-
an sviga), skömmtum og íkomuleið.
Siðfræði: Þegar lýst er niðurstöðum sem
fengnar eru við athuganir á mönnum skal þess
getið hvort rannsóknin var gerð með samþykki
siðanefndar (hvort sem nefndin er á vegum
stofnunar, fagfélags eða opinberra aðila) og
hvort hún var gerð í samræmi við ákvæði
Helsinkiyfirlýsingarinnar frá 1975 (endurskoð-
uð 1983). Ekki skal nota nöfn fólks, upphafs-
stafi, fæðingardag eða sjúkraskrárnúmer, eink-
um skal þess gætt á myndum (röntgenmyndum
og þess háttar).
Staðtöluleg úrvinnsla gagna: Lýsa skal að-
ferðunt stuttlega með tilvitnun í aðgengileg rit,
geta tölvuforrita sem notuð voru. Gæta skal ná-
kvæmni eins og unnt er og greina tölulegar