Læknablaðið - 15.02.1998, Page 49
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
135
upplýsingar með mæliskekkju eða óvissu (til
dæmis staðalfráviki eða vikmörkum (con-
fidence limits)) þegar slíkt er hægt.
Niðurstöður: Lýsa ber niðurstöðum í rök-
rænni röð í texta, töflum og myndum. Forðast
skal að endurtaka allar upplýsingar í töflum og
myndum í texta, einungis skal leggja áherslu á
meginatriði. Ekki skal greina frá sömu upplýs-
ingum bæði í töflu og á rnynd.
IJniræða: Leggja ber áherslu á niðurstöður
rannsóknarinnar sjálfrar, hvað af henni megi
læra, hvað sé nýtt og mikilvægt í niðurstöðun-
um. Ekki skal reyna að skrifa yfirlitsgrein um
efnið í heild, slíkt á heima í yfirlitsgreinum
(reviews), ekki greinum sem birta rannsóknar-
niðurstöður (original articles). Hins vegar skal
leggja áherslu á tengsl niðurstaðnanna við
skyldar rannsóknir, gildi þeirra og takmarkanir
og mikilvægi fyrir ítarlegri rannsóknir. Forðast
ber vangaveliur sem ekki eru studdar af niður-
stöðunum eða úr samhengi við þær. Ráðlegg-
ingar sem byggja á niðurstöðum rannsóknar-
innar, um greiningu vandamála og meðferð eru
hins vegar sjálfsagðar.
Þakkir: Þakka skal samstarfsaðilum sem
lagt hafa hönd á plóginn við framkvæmd og úr-
vinnslu en ekki nægilega til að réttlæta sæti
meðhöfundar (sjá að ofan). Hér má nefna þá
sem hafa veitt ýmsa tæknilega aðstoð, aðstoð-
að við hluta gagnasöfnunar, veitt ráð um stað-
tölulega útreikninga og svo framvegis. Enn-
fremur er rétt að þakka þeim sem hafa greitt
götu höfunda, til dæmis yfirmanni deildar,
þeim er veita aðgang að tækjabúnaði í þeirra
umsjá og fleira. Yfirleitt er ekki ástæða til að
þakka aðkeypta aðstoð sem greitt er fyrir fullu
verði. Síðast en ekki síst ber að geta allra styrk-
veitinga til rannsóknarinnar og þakka fyrir þær.
Heimildir: Heinrildir skulu tölusettar í þeirri
röð, sem þær koma fyrir í texta. Dæmi: „Því er
haldið frain (1), að...en síðari rannsóknir (2)
leiddu í ljós...meðferð hefur breyst með til-
komu nýrra lyfja (3) .......áður höfðu menn
talið (4)...“.
Fara skal eftir þeim dæmum sem hér eru tal-
in að neðan, en þau eru byggð á formi því sem
notað er í Index Medicus. Greint skal frá nöfn-
um höfunda, samkvæmt enskri ritvenju. Til-
greina ber alla höfunda, nema þeir séu fleiri en
sex. Þá skal geta sex og gefa til kynna með
orðunum, et al., að þeir séu fleiri. Þessu næst
komi allur greinartitill, þá nafn tímarits í stytt-
ingu í samræmi við Index Medicus (List of Jo-
umals Indexed: http://www.nlm.nih.gov); birt-
ingarár, árgangur (bindi); blaðsíðutal (fyrsta-
síðasta). Bækur skulu tilfærðar: Höfundur,
bókartitill, útgáfustaður, útgefandi, útgáfuár.
Tilvitnanir í greinar sem samþykktar hafa ver-
ið til birtingar skulu gerðar eins og að ofan
greinir, á eftir heiti rits standi „Bíður birtingar,
ártal“ eða „In press, ártal“. Almennt er rétt að
forðast eftir föngum tilvitnanir í ágrip, „óbirtar
niðurstöður“ og „persónulegar upplýsingar"
(eingöngu inni í texta þar sem getið skal ein-
staklings og hvenær upplýsingar eru fengnar).
Tilvitnun í munnlegar upplýsingar er óheimil.
Dæmi um rétta uppsetningu heimilda:
Tímarit
•Venjuleg tímaritsgrein:
1. Hannesson G. íslenskt læknafélag.
Læknablaðið 1915; 1: 3.
2. Mann JM, Chin J. AIDS: A global per-
spective. N Engl J Med 1988; 319: 302-3.
• Samtök eða nefnd sem höfundar:
3. The Committee on Enzymes of the Scand-
inavian Society for Clinical Chemistry and Cl-
inical Physiology. Recommended method for
the determination of gammaglutamyltransfera-
se in blood. Scand J Clin Lab Invest 1976; 36:
119-25.
• Nafnlaus grein:
4. Anonymous. Coffee drinking and cancer
of the pancreas (editorial). BMJ 1981; 283:
628.
• Fylgirit:
5. Frumin AM, Nussbaum J, Esposito M.
Functional asplenia: demonstration of splenic
activity by bone marrow scan (abstract). Blood
1979; 54/Suppl. 1: 26a.
• Tímarit með sérblaðsíðutali í hverju hefti:
6. Seaman WB. The case of the pancreatic
pseudocyst. Hosp Pract 1981; 16 (Sep): 24-5.
Bækur, bókarkaflar og önnur rit
• Einn (eða fleiri) höfundar að bókinni allri:
7. Osler AG. Complement: mechanisms and
functions. Englewood Cliffs: Prentice-Hall,
1976: 24.
• Bókarkafli:
8. Chapin-Robertson K, Edberg SC. Mea-
surement of antibiotics in human body fluids:
techniques and significance. In: Lorian V, ed.
Antibiotics in Laboratory Medicine. 3rd ed.
Baltimore: Williams & Wilkins, 1991: 295-
366.
• Doktorsrit:
9. Holm PG. Social consequences of chronic