Læknablaðið - 15.02.1998, Side 62
148
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Frá Félagi ungra lækna
Þann 18. desember síðastlið-
inn var haldinn aðalfundur FUL
og var þá jafnframt kosin ný
stjórn félagsins. Nýju stjórnina
skipa: Brynhildur Eyjólfsdóttir
formaður, Birgir Jóhannsson
ritari, Guðrón Bragadóttir
gjaldkeri, Guðrún Guðniunds-
dóttir, Ingvar Hákon Ólafsson,
Óttar IVIár Bergmann, Stein-
gerður Anna Gunnarsdóttir og
Tryggvi Helgason meðstjórn-
endur. Nýja stjórnin tók þegar til
starfa.
A fjölmennum félagsfundi
FUL í Hlíðasmára þann 4. janúar
síðastliðinn voru tvær ályktunar-
tillögur bornar upp og samþykkt-
ar með yfirgnæfandi meirihluta.
Þessar voru tillögurnar:
I.
„Fundur hjá FUL haldinn
þann 4. janúar 1998 í Hlíðasmára
beinir þeim tilmælum til lækn-
ingaforstjóra Sjúkrahúss Reykja-
víkur og Landspítalans að þeir
beiti sér fyrir því, að við þá
unglækna sem hafa verið við
vinnu undanfarið og hafa því
gildan ráðningarsamning við
sjúkrahúsin, á rneðan uppsagnir
hafa tekið gildi, verði gerður
sambærilegur viðbótarráðningar-
samningur og gerður verður við
þá unglækna sem nú kjósa að
snúa aftur til starfa á sjúkrahús-
unum.“
II.
„Fundur samningslausra ung-
lækna haldinn í Hlíðasmára 4.
janúar 1998 beinir því til
Guðmundar Björnssonar for-
manns Læknafélags íslands, að
hann leiti leiða til að bæta þeim
fjárhagstjón, sem þeir urðu fyrir
við að verja hagsmuni stéttarinn-
ar í desember 1997 og janúar
1998.
Slíkt fé gæti komið úr sjóðum
Læknafélags Islands eða með
eftirgjöf af árgjaldi til félagsins.
Eins mætti leita framlaga hjá sér-
fræðingum, sem högnuðust fjár-
hagslega í aðgerðunum, eða hjá
þeim unglæknum, sem létu sitt
eftir liggja í baráttunni og fram-
lengdu hana þar með, en njóta til
fulls árangurs þriggja vikna
atvinnuleysis félaga sinna.“
Fyrri tillagan var send lækn-
ingaforstjórum Landspítalans og
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þá voru
báðar tillögurnar lagðar fyrir
næsta stjórnarfund LÍ, sem hald-
inn var 6. janúar 1998, þær
ræddar og afgreiddar. Stjórn LÍ
lýsti yfir stuðningi sínum við
báðar tillögurnar. Fyrri tillöguna
skyldi styðja með bréfi til lækn-
ingaforstjóranna. Þegar fjallað
var um framkvæmd og útfærslu
á seinni tillögunni var stjórnin
sammála um að besta leiðin til
þess væri að leita til félagsmanna
Ll um frjáls framlög og tók Guð-
mundur Björnsson formaður Lí
að sér að sjá um það.
Brynhildur Eyjólfsdóttir
formaður FUL
S
Arsskýrsla Félags ungra lækna
Ársskýrsla Félags ungra lækna
var samþykkt á aðalfundi félags-
ins þann 18. desember síðastlið-
inn. Vegna umfangs er ekki hægt
að birta hana í heild sinni hér og
því eingöngu birt efnisyfirlit
skýrslunnar. Skýrsluna er hægt
að nálgast á skrifstofu Læknafé-
lags Islands.
Efnisyfirlit
Stjórn Félags ungra lækna
Inngangur
Staða ungra lækna innan Lækna-
félags íslands
Stjórn LÍ
Nefndarstarf
Endurskipulagning LÍ
Aðalfundur LÍ
Endurskipulagning FUL
Lagabreytingar
Fræðslunefnd
Félagsfundir og skemmtikvöld
Fjármál félagsins
Kjaramál
Kjarasamningur lausráðinna
sjúkrahúslækna
Áherslur FUL
Samninganefndir læknafélag-
anna
Undirbúningur kröfugerðar
Gangur viðræðna
Kjarasamningurinn
Miðlunartillaga
Vinnustaðasamningar
Niðurstaða
Aðgengistakmörkun að samn-
ingi LR og TR
Önnur kjaramál
Útgáfustarfsemi
Málefni Lánasjóðs íslenskra
námsmanna
Erlend samskipti
Almennt
PWG
NRYL
FÍLÍÚ
Fylgiskjöl
1. Ályktanir aðalfundar
Læknafélags íslands 1997
2. Lög Félags ungra lækna
3. Rekstrar- og efnahagsreikn-
ingar félagsins
4. Sundurliðun rekstrarreikn-
ings
5. Samninganefndir LI og LR
fyrir sjúkrahúslækna og
fleiri, 1997
6. Kröfugerð fyrir kjarasamn-
ing lausráðinna sjúkrahús-
lækna-1/1/97
7. Launatafla með kröfugerð -
1/8/97
8. Endurskoðuð launatafla -
19/9/97
9. Minnisblað varðandi vinnu-
tíma unglækna- 6/10/97
10. Miðlunartillaga - 18/12/97
11. Fréttabréf Félags ungra
lækna