Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 65

Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 149 Ný lög Félags ungra lækna Endurskipulagning FUL hefur verið samofin vinnu undirritaðs við endurskipulagningu LI. Lokaáfangi þeirrar vinnu var endurnýjun á lögum Félags ungra lækna sem voru samþykkt á aðalfundi 18. desember 1997 og staðfest af stjórn LI 6. janú- ar 1998. Þá voru þau staðfest með fyrirvara um að grein 5 um félagsaðild stæðist landslög. Forsaga þess er sú að undirritaður taldi réttast að ungir læknar yrðu sjálfkrafa félagar að FUL við útskrift eins og þeir verða aðilar að LI. Vel var tekið undir hugmyndina í endurkipulagningarnefnd LI en stjórn LI var aftur á móti mótfallin henni á þeirri forsendu að við ætluðum einnig taka út efri tak- mörk á félagsaðild en þá væri hætta á að FUL yfir- tæki LÍ. Til að fylgja hugmyndinni eftir mætti und- irritaður í boð LI fyrir kandídata og bauð þeim að ganga í Félag ungra lækna. Raunin varð sú að allir kandídatar sem þar voru mættir sóttu um félagsað- ild. Tillaga um sjálfkrafa félagsaðild var borin upp á aðalfundi LI en ákvörðun frestað vegna gruns um að slfkt væri brot á lands- og alþjóðlegum lögum um mannréttindi. Einhverra hluta vegna fórst fyrir að taka út lagagrein þessa fyrir aðalfund FUL. Nauðsynlegt er að fá úr þessu skorið fyrir næsta að- alfund og fella út ef með þarf. Á móti er hægt að taka upp þá vinnureglu að bjóða kandídötum að gerast félagar í FUL við útskrift úr HÍ. Vegna breyttrar stöðu FUL innan LÍ var upp- færsla eldri laga félagsins orðin mjög tímabær. Meginþema laganna er sjálfstæði félagsins en meg- inbreyting þeirra er án efa opnun félagsins en með nýjum lögum er opnað fyrir þann möguleika að all- ir læknar geti orðið félagsmenn í FUL, en aukaað- ilar að öðrum aðildarfélögum. Er það álit undirrit- aðs að sú breyting muni í framtíðinni stuðla að stærra og öflugra félagi auk þess sem meiri sam- fella fæst í störf þess. Öflugt félag ungra lækna er öllum læknum og læknastéttinni til framdráttar. Helgi H. Helgason Lög Félags ungra lækna Samþykkt á aðalfundi FUL 18.12.1997 I. kafli Heiti félagsins, lögheimili, eðli og tilgangur 1. grein Heiti félagsins, lögheimili og varnarþing Félagið heitir Félag ungra lækna, skammstafað FUL. Heiti félagsins á ensku er The Icelandic Association of Junior Doctors. Lögheimili þess og varnarþing er í Kópavogi. 2. grein Eðli félagsins Félag ungra lækna er sjálfstætt aðildarfélag Lækna- félags Islands með réttarstöðu svæðafélags. 3. grein Tilgangur og markmið Tilgangur félagsins er: 1. að efla og vernda hag ungra lækna. 2. að efla áhuga og þátttöku lækna á öllu er lýtur að framþróun í heilbrigðismálum. 3. að auka samvinnu, kynni og stéttarþroska ís- lenskra lækna. 4. að stuðla að bættri þjálfun ungra lækna og auk- inni grunn- og símenntun allra lækna. 5. að bæta heilsufar landsmanna og efla sjálfsvit- und þeirra um ræktun eigin líkama og sálar. II. kafli Félagsaðild 4. grein Félagsmenn Félagsmenn geta þeir orðið sem lokið hafa kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla íslands og eru búsettir og/eða starfa sem læknar á Islandi, svo og íslenskir eða erlendir ríkisborgarar, sem tekið hafa kandídatspróf erlendis, en fá læknaréttindi á íslandi. 5. grein Félagsaðild Kandídatar frá læknadeild Háskóla Islands verða sjálfkrafa aðilar að Félagi ungra lækna við útskrift. Aðrir er æskja inngöngu í félagið skulu senda stjórn FUL skriflega umsókn þess efnis. Beiðnin skal tekin fyrir og afgreidd innan eins mánaðar frá móttöku umsóknarinnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.