Læknablaðið - 15.02.1998, Side 66
150
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
6. grein
Ursögn
Úrsögn skal vera skrifleg og send stjórn félagsins
með minnst eins mánaðar fyrirvara. Ef FUL á í
deilu við ríki, sveitarfélög eða aðra vinnuveitendur,
getur enginn félagi leyst sig undan þeim skyldum,
sem félagið leggur þeim á herðar.
7. grein
Heiðursfélagar
Félagið getur kosið heiðursfélaga, lækni, vísinda-
mann eða velunnara félagsins. Val hans skal fara
fram á löglegum aðalfundi og þarf samþykki að
minnsta kosti 3/4 fulltrtía fundarins.
III. kafli
Fjármál
8. grein
Félagsgjöld
Aðalfundur ákveður árgjald til FUL, fyrir hvem
gjaldskyldan félaga, að fenginni tillögu stjórnar.
Gjalddagi er ákveðinn af stjórn. Við ákveðnar að-
stæður getur stjórn félagsins veitt einstökum lækn-
um undanþágu frá félagsgjöldum til eins árs í senn.
Heiðursfélagar skulu undanþegnir félagsgjöldum.
9. grein
Framlag LI
Samkvæmt lögum Læknafélags íslands greiðir LÍ
hluta árgjalda félagsmanna sinna til Félags ungra
lækna. Framlag Læknafélags Islands til Félags
ungra lækna er nú 10% af árgjaldi ungra lækna inn-
an LÍ.
10. grein
Fjárhagsáætlun
Stjórn félagsins skal undir stjórn gjaldkera gera
fjárhagsáætlun fyrir hvert ár og leggja fyrir aðal-
fund. Rekstur félagsins og ráðstöfun fjár skal vera
innan ramma þess sem árleg fjárhagsáætlun gerir
ráð fyrir.
11. grein
Reikningsár
Reikningsár félagsins skal miðast við aðalfundi.
IV. kafli
Aðalfundur, aukaaðalfundur og
félagsfundir
12. grein
Aðalfundur
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félags-
ins.
Aðalfund skal halda ár hvert á tímabilinu ágúst -
desember.
Aðalfund skal boða með að minnsta kosti tveggja
vikna fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur sé löglega
til hans boðað. Tillögur til lagabreytinga, ályktana
eða stjórnarkjörs skulu sendar stjórn félagsins að
minnsta kosti 10 dögum fyrir fundinn. Stjórn FUL
skal birta eftirtalin gögn minnst einni viku fyrir að-
alfund:
1. Skýrslu stjórnar.
2. Arsreikning liðins árs.
3. Fjárhagsáætlun.
4. Tillögur til lagabreytinga.
5. Tillögur til ályktana.
6. Tillögur um stjórnarkjör.
7. Önnur mál sem borist hafa.
Allir félagsmenn FUL eiga rétt á að sitja aðalfund
með málfrelsi, tillögurétti og atkvæðisrétti. Lækn-
um í öðrum aðildarfélögum LÍ er frjálst að sitja
fundinn og hafa málfrelsi.
Formaður eða staðgengill hans setur fund og til-
nefnir fundarstjóra og fundarritara.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga
félagsins og yfirlit sjóða í vörslu hans.
3. Gjaldkeri leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.
4. Ákvörðun félagsgjalds fyrir næsta ár.
5. Kosning stjórnar og meðstjórnar samkvæmt 15.
grein.
6. Kosning fulltrúa og varafulltrúa á aðalfund LI til
eins árs í senn.
7. Kosning endurskoðanda og varamanns hans úr
hópi félagsmanna til eins árs í senn.
8. Lagabreytingar.
9. Önnur mál.
Ályktunartillögur um málefni, sem eru á dagskrá
fundarins, mega koma fram á fundinum sjálfum.
Aðrar tillögur til ályktana, sem ekki hafa verið
kynntar samkvæmt 4. tl. 12. gr., skal bera fram,
þegar áður innsendar tillögur eru lagðar fram.
Skýrslu stjórnar og niðurstöður aðalfundar skal
birta svo skjótt sem auðið er.
13. grein
Aukaaöalfundur
Stjórn félagsins eða félagsmenn geta kvatt til auka-
aðalfundar ef þeir telja brýna nauðsyn bera til og
skal þá boðun vera samkvæmt gr. 14 laga þessa.
14. grein
Félagsfundir
Stjórn félagsins skal boða til almennra félagsfunda
svo oft sem efni standa til, eða að minnsta kosti 1/4
gjaldskyldra félaga, eða 1/3 á vinnustað, krefjist
þess samanber grein 18, en þó eigi sjaldnar en tvis-
var á vetri. Félagsfundi skal boða, með að minnsta