Læknablaðið - 15.02.1998, Side 67
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
151
kosti einnar viku fyrirvara, eftir hentugleika skrif-
lega eða með auglýsingum. I fundarboði skal getið
dagskrár. Fundur er ályktunarhæfur um tilkynnt
dagskráratriði, ef hann er löglega boðaður og 1/4.
gjaldskyldra félagsmanna er viðstaddur. Nú reynist
fundur ekki ályktunarfær, og má þá boða til auka-
fundar um sömu mál. Þann fund má eigi halda fyrr
en að viku liðinni, nema sérstaklega standi á og er
hann ætíð ályktunarfær, en geta skal þess í fundar-
boði, að ákvörðun verði tekin um dagskráratriði
fundarins. Afl atkvæða ræður alla jafna úrslitum
mála á fundum félagsins. Við allar meiriháttar
stefnumarkandi ákvarðanatökur og lagabreytingar
þurfa 2/3 fundarmanna að samþykkja. Halda skal
fundargerðabók.
V. kafli
Stjórn félagsins, skipan og verksvið
15. grein
Stjórn
Stjórn félagsins skipa átta menn, formaður, ritari
sem jafnframt er varaformaður, gjaldkeri og fimm
meðstjórnendur. Þeir skulu kosnir á aðalfundi úr
hópi félagsmanna til eins árs í senn. Formaður skal
að jafnaði vera úr hópi deildarlækna en varafor-
maður úr hópi læknakandídata. Stefna ber að því að
fráfarandi varaformaður taki að sér formannsemb-
ættið.
Kjósa skal formann sérstaklega, síðan ritara og
gjaldkera. Afl atkvæða ræður kosningu en hlutkesti
ef atkvæði eru jöfn. Séu fleiri en tveir í framboði
skal kjósa aftur milli þeirra tveggja sem flest at-
kvæði hlutu. Meðstjórnendur og þrír varamenn
stjórnar eru kosnir í einu lagi. Ef einhver fundar-
manna óskar þess skulu kosningar vera skriflegar.
Forfallist maður úr stjórn félagsins, tilnefnir stjórn
og meðstjórn mann í hans stað úr sínum hópi.
Tillögur um stjómarmann þurfa ekki að berast fyr-
ir aðalfund.
16. grein
Verksvið stjórnar
Stjórn félagsins fer með málefni þess milli aðal-
funda.
Stjórnin er ábyrg gagnvart aðalfundi.
Verksvið stjórnar er að vera á verði og fylgjast með
öllu er varðar hag allra íslenskra lækna, búsettra á
Islandi eða annars staðar. Stjórn FUL skal þó eink-
um bera hag félagsmanna sinna fyrir brjósti og ber
þá hæst kjaramál, atvinnumál og kennslumál.
Ritari skal skrá fundargerð allra stjórnarfunda í
gerðabók félagsins.
Stjórnin kýs eftirtaldar fastanefndir til eins árs í
senn og skulu nefndirnar vera fullskipaðar innan
eins mánaðar frá aðalfundi.
1. Samningafulltrúanefnd. Hún skal halda utan um
kjarasamninga félagsmanna, annast kjararannsókn-
ir og undirbúa gerð kjarasamninga. Nefndarmenn
skulu vera fulltrúar FUL innan samninganefndar LI
þegar við á. Þá skal nefndin vera félagsmönnum til
aðstoðar ef ágreiningur kemur upp á milli læknis
og vinnuveitanda varðandi framkvæmd kjarasamn-
ings eða annað er varðar kjör hans. Nefndin skal
halda reglubundna fræðslufundi, fyrir unga lækna
og læknanema, um kjaramál og tengd efni.
2. Kennslumála- og fræðslunefnd. Hún skal vinna
að aukinni fræðslustarfsemi meðal félagsmanna
innan sjúkrastofnana. Tveir nefndarmanna skulu
vera fulltrúar FUL innan Framhaldsmenntunarráðs
læknadeildar HI og skal annar þeirra jafnan vera
formaður nefndarinnar. Þá skal nefndin hafa yfir-
umsjón með fræðabúri félagsins og vinna að aukn-
um umsvifum þess og útbreiðslu. Nefndin skal
halda fræðslufundi um ýmis sérmálefni ungra
lækna eftir þörfum.
Fastanefndir skulu að minnsta kosti skipaðar þrem-
ur mönnum og skulu nefndarformenn eiga sæti í
stjórn félagsins. Stefna ber að því að nefndarfor-
menn hafi starfað með nefndinni árið á undan sem
meðstjórnendur. Stjórnin markar starfssvið fasta-
nefnda á hverjum tíma. Stjórnin getur skipað aðrar
nefndir og/eða kvatt félagsmenn til nefndarstarfa,
eftir því sem þurfa þykir. Allar fastanefndir skulu
skila skýrslu um störf sín til stjórnarinnar, eigi síð-
ar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Stjórn hefur yfirumsjón með samskiptum félagsins
við sambærileg félög erlendis samanber grein 19.
Stjórn hefur yfirumsjón með útgáfustarfsemi sam-
anber grein 20.
Stjórn ber ábyrgð á að halda samskiptum við for-
mann Félags læknanema og boða hann á stjórnar-
fundi ef þess gerist þörf.
Stjórn ber að stuðla að auknum samskiptum milli
ungra lækna á mismunandi vinnustöðum meðal
annars með því að standa að kappleikjum,
skemmtikvöldum, árshátíð og svo framvegis.
17. grein
Stjórnarfundir
Stjórnarfundir skulu haldnir á að minnsta kosti
tveggja vikna fresti. Fundir skulu boðaðir með dag-
skrá og með sem lengstum fyrirvara og þá jafnan á
síðasta stjómarfundi. Fundir stjórnar eru ákvörðun-
ar- og ályktunarhæfir ef fimm stjórnarmenn sækja
fund og hann boðaður með minnst tveggja daga
fyrirvara.
18. grein
Vantraust
Óski félagsmaður að bera fram vantraust á stjórn
eða einstaka embættismann, skal það gert skriflega
og undirritað af að minnsta kosti fjórðungi gjald-