Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 68

Læknablaðið - 15.02.1998, Page 68
152 skyldra félaga. Stjórninni er skylt að taka van- traustið fyrir á félagsfundi innan þriggja vikna og skal boða fundinn samkvæmt 14. gr. um félags- fundi. VI. kafli Ýmis ákvæði 19. grein Erlend samskipti Félagið er aðili að Nordisk rád for yngre læger (NRYL) og tekur virkan þátt í starfsemi þess. Þannig hefur félagið bein samskipti við önnur félög ungra lækna á Norðurlöndum. Þá er félagið einnig aðili að Permanent Working Group of Junior Doct- ors in Europe (PWG) og tekur þátt í starfi þess eft- ir því sem aðstæður leyfa. Erlend samskipti skulu vera á hendi formanns félagsins nema annað sé ákveðið á aðalfundi. Formaður sækir því árlega að- alfundi NRYL og aðalfundi PWG sem að venju eru haldnir bæði að vori og hausti. Til að tryggja sam- fellu í alþjóðlegum samskiptum félagsins skal frá- farandi formaður fylgja nýjum formanni á hans fyrsta fund (vorfundur PWG) en annars sækir for- maður fundina einn. Formaður ber ábyrgð á að varðveita öll skjöl sem tengjast samskiptum þess- um og koma upplýsingum, sem þannig berast, til félagsmanna með reglulegum skýrslu- og greina- skrifum í Læknablaðið. Blöð og tímarit sem félög unglækna á Norðurlöndunum og PWG gefa út skulu varðveitt í fræðabúri félagsins og vera þar öllum félagsmönnum aðgengileg. 20. grein Utgáfustarfsemi Stjórn félagsins ber ábyrgð á að miðla upplýsingum til félagsmanna um þau málefni sem stjórnin er að vinna að hverju sinni, uppfræða þá um réttinda og kjaramál og efla með þeim stéttarvitund og félags- kennd. Markmið þessi skulu vera hvati útgáfu fréttabréfs FUL. Ritstjórn fréttabréfsins er í hönd- um ritara félagsins en efni bréfsins á ábyrgð stjórn- ar FUL. LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 21. grein Fræðabúr Fræðabúr félagsins er upplýsingasafn félagsins. Það skal varðveitt af kennslu- og fræðslunefnd samanber gr. 16, tl. 2 og ber nefndin ábyrgð á eðli- legri endurnýjun þess. Markmið fræðabúrsins er upplýsingaþjónusta við unga lækna um allt er teng- ist sérfræðinámi lækna hérlendis sem erlendis. Til að fræðabúrið nái þeim markmiðum skal það vera aðgengilegt og staðsett sem næst stærstu vinnu- stöðum ungra lækna. Stefnt skal að því að það verði aðgengilegt öllum ungum læknum á rafrænu formi. 22. grein Upplýsingar til kandídata Stjórn FUL skal sjá um, að kandídatar í læknisfræði frá Háskóla íslands, svo og íslenskir eða erlendir ríkisborgarar, sem tekið hafa kandídatspróf erlend- is, en fá læknaréttindi á íslandi, fái lög FUL, kjara- samninga sjúkrahúslækna og siðareglur lækna (Codex Ethicus), svo að þeim sé ljós tilvera félags- ins, tilgangur þess og reglur, og réttindi þeirra og skyldur í því sambandi. 23. grein Lagabreytingar Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi, enda hafi breytingatillögum verið dreift einni viku fyrir fund. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn félagsins að minnsta kosti 10 dögum fyrir að- alfund. Lagabreytingar eru lögmætar, ef aðalfundur er lögmætur og að minnsta kosti 2/3 fundarmanna greiða þeim atkvæði. Lagabreytingar skulu staðfestar, eins og lög Læknafélags Islands segja til um, af stjórn LI. 24. grein Brottvísun Stjórn FUL getur, í samráði við Siðanefnd LÍ, vís- að félagsmanni úr félaginu fyrir alvarlega van- rækslu skyldustarfa, velsæmisbrot, brot á siðaregl- um Iækna eða fyrir ítrekuð minni brot. Urskurði stjórnarinnar um brottvikningu skal taka fyrir á næsta reglulega fundi félagsins til staðfestingar eða synjunar.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.