Læknablaðið - 15.02.1998, Qupperneq 71
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
155
Vistun sakhæfra geðsjúkra fanga
Svar
I dreifibréfi landlæknisemb-
ættisins 18/1997 um „Vistun
sakhæfra geðsjúkra fanga á geð-
deildum sjúkrahúsa" sem dagsett
er 3.12.1997 gætir nokkurrar
ónákvæmni.
Hinn 14. júlí 1997 gáfu undir-
ritaðir út „Starfsreglur vegna
skammtímavistunar sakhæfra
fanga á geðdeildum sjúkrahúsa".
Þar segir:
„Fangi sem veikist ífangelsi á
rétt á sjúkrahúsdvöl skv. mati
fangelsislœkna og lœkna við-
komandi deildar. A meðan hann
dvelur í sjúkrahúsi hlýtir hann
reglum deildarinnar eins og aðr-
ir. Hér á eftirfara sérstakar regl-
ur sem gilda um þessa einstak-
linga.
Þegar fangelsislœknir telur að
leggja þuififanga inn á geðdeild
hefur hann samhand við vakthaf-
andi lcekni geðdeildar.
Þegar fangi leggst inn á
geðdeild eða til mats á göngu-
deild er hann fluttur þangað af
óeinkennisklceddum mönnum.
3. Starfsmenn fangelsa standa
ekki vaktir á sjúkrahúsinu.
4. Fangelsisyfirvöld skipta sér
ekki af meðferð sjúklings á
sjúkrahúsinu.
5. Ef fangi yfirgefur
sjúkrahúsið án heimildar mun
vakthafandi lceknir hafa sam-
band við Fangelsismálastofnun
eða það fangelsi semfanginn var
vistaður í fyrir komu.
6. Þegar/ef sjúklingur á að
vistast á ný í fangelsi mun
viðkomandi lceknir hafa samráð
við Fangelsismálastofnun eða
fangelsið. “
Auk þess er ástæða til að
benda á eins og kemur fram í
dreifibréfinu (18/1997), að
heimild er í lögum þess efnis að
Fangelsismálastofnun getur gert
hlé á afplánun manns ef um
veigamiklar ástæður, til dæmis
læknisfræðilegar, er að ræða.
Með von um að ekki rísi
frekari misskilningur um mál
þessi.
Halldór Kolbeinsson
yfirlæknir
Tómas Zoéga yfirlæknir
Læknar á vegum Rauða kross íslands
Undirbúningsnámskeið
Dagana 3.-8. maí næstkomandi mun Rauði kross
Islands efna til námskeiðs fyrir væntanlega sendi-
fulltrúa. Um er að ræða undirbúningsnámskeið fyr-
ir störf á vegum Rauða kross íslands erlendis.
Námskeiðið verður haldið í Munaðarnesi og er um-
sóknarfrestur til 1. niars. Fjöldi þátttakenda er
áætlaður um 20. Ekki er síst leitað eftir almennum
skurðlæknum og svæfingalæknum er hefja vildu
starf á vegum Rauða krossins. Umsóknareyðublöð
fást á skrifstofu Rauða kross Islands, Efstaleiti 9,
103 Reykjavfk.
Skilyrði fyrir þátttöku eru meðal annars þau að
umsækjandi sé 25 ára eða eldri, hafi góða tungu-
málakunnáttu (enska nauðsynleg, franska æskileg),
góða starfsmenntun og almenna þekkingu, auk þess
sem æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
stjómun. Námskeiðið fer fram á ensku og verða
fyrirlesarar meðal annars frá Alþjóða Rauða kross-
inum í Genf. Á síðasta starfsári störfuðu 22 sendi-
fulltrúar fyrir Rauða kross íslands að margvísleg-
um verkefnum í 12 löndum í Evrópu, Asíu og Afr-
íku. Meðal verkefna má nefna dreifingu hjálpar-
gagna, upplýsingastörf, lækningar- og hjúkrun,
skipulagningu starfs, uppbyggingu og viðhald, fjár-
málastjórn og fræðslu. Meðal sendifulltrúanna var
Einar Hjaltason læknir og er hann fyrsti læknirinn
um langt skeið sem starfar á þennan hátt fyrir
Rauða kross Islands.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Rauða krossi ís-
lands, í síma 570 4000; netfang:
gardar@redcross.is