Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 92
176
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Aðferðir við að leggja mat á heilbrigðisþjónustu
og ieiðir til að meta valkosti
Kynntar verða aðferðir, reglur og framkvæmd þegar leggja á mat á heilbrigðisþjónustu,
hvort sem um er að ræða meðferð, skipulag, þjónustu eða stefnumörkun. Tekin fyrir heil-
brigðisþjónusta sem studd er niðurstöðum vísindalegra rannsókna (evidence based health
care), notagildi og takmarkanir.
Kennari: John 0vretveit prófessor við Norræna heilbrigðisháskólann í Gautaborg.
Tími: 19. febrúar kl. 13-18.
Verð: 5.800 kr.
Heilbrigðislögfræði fyrir stjórnendur
heilbrigðisstofnana
Námskeiðið er ætlað framkvæmdastjórum heilbrigðisstofnana, stjórnarfor-
mönnum, yfirlæknum, hjúkrunarforstjórum og öðrum stjórnendum.
Farið verður yfir helstu laga- og reglugerðarákvæði er snerta starfsemi heilbrigðisstofnana.
Kynnt uppbygging heilbrigðiskerfisins og fjármögnun þess, réttindi heilbrigðisstétta, réttindi
sjúklinga og skyldur heilbrigðisstétta sem af þeim leiða. Kynnt stjórnsýslu- og upplýsinga-
lög, kvartanir og meðferð þeirra og skaðabótakröfur.
Kennari: Dögg Pálsdóttir hrl.
Tími: 12. mars kl. 13:00-18:30.
Verð: 4.500 kr.
Nýtísku aðhvarfsgreining
Námskeiðið er ætlað fólki sem vinnur úr gögnum og er að skipuleggja rann-
sóknir.
Rifjuð verða upp ýmiss konar Ifnuleg normal líkön, ANOVA og aðhvarfsgreining. Hugtökin
meðalhrif (main effects) og víxlhrif (interaction) verða útskýrð og útfærð fyrir aðrar tegund-
ir af líkönum, svo sem log-línuleg líkön og logistic líkön. Einnig við athugun á lifunarferlum
(survival analysis) og tengsl við Kaplan-Meier mat á endingartíma. Notað verður forritið R
(ókeypis og mjög líkt S+). Til að aðlaga námskeiðið að þörfum viðkomandi er hægt að hafa
samband við kennara í tölvupósti: helgito@ rhi.hi.is
Kennari: Helgi Tómasson tölfræðingur.
Tími: 2., 4., 7., 9., 11 og 14. mars, mánudagar og miðvikudagar kl. 17-19 og laugardag-
ar kl. 9-13, alls 16 klst.
Verð: 18.800 kr.