Læknablaðið - 15.02.1998, Síða 97
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
181
Ný stjórn FÍLÍS
Aðalfundur Félags íslenskra lækna í Svíþjóð
(FÍLÍS) var haldinn 27. nóvember síðastliðinn á
sænsku Riksstámmunni í Stokkhólmi. Ekki var
fjölmennt en óvenju góðmennt. Ný stjórn var
kosin og hana skipa: Sigurður E. Sigurðsson
formaður Lundi, netfang:
sigurdur.sigurdsson@swipnet.se
Anna B. Magnúsdóttir ritari Lundi, Anna
Stefánsdóttir gjaldkeri Kristianstad, meðstjórn-
endur Bjarki Karlsson og Guðmundur
Daníelsson Lundi.
Ný stjórn
Félags íslenskra
ofnæmis- og ónæmislækna
Á aðalfundi íslenskra ofnæmis- og ónæm-
islækna þann 9. desember síðastliðinn var
kosin ný stjórn. Hana skipa: Davíð Gíslason
formaður, Unnur Steina Björnsdóttir ritari,
Sigurður Kristjánsson gjaldkeri, Björn Árdal
og Sigurveig Sigurðardóttir meðstjórnendur.
Ný stjórn í FILIB
Á aðalfundi Félags íslenskra lækna í
Bretlandi 30. nóvember 1996 var ný stjórn
skipuð: Engilbert Sigurðsson formaður, Páll
Matthíasson ritari og Vigdís Þórisdóttir gjald-
keri. Netfang formanns enghar@premier.co.uk
Heimilisfang: 1, Warren Cottages, Hillside
Lane, Hayes, Kent BR2 7AP, England.
Félagsgjöld 1997
Þeir læknar, sem enn eiga
ógreidd félagsgjöld til LÍ fyrir árið
1997, eru hvattir til að semja um
greiðslu þannig að unnt verði að
ganga frá ársuppgjöri.
Iðgjald til Lífeyrissjóðs lækna
Eitt stíg fyrir árið 1997 er kr. 204.000,- þannig að lágmarksiðgjald til að viðhalda réttind-
um, það er 1/3 úr stigi, er kr. 88.000,-
Þau sem borga iðngjaldið beint til sjóðsins, eru beðin að inna það af hendi sem fyrst.
Læknar og EES/ESB
Nýlega kom út upplýsinga-
bæklingur um réttindi íslenskra
lækna á evrópska efnahagssvæð-
inu. Bæklingurinn nefnist Lækn-
ar og EES/ESB og er gefinn út
af Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og Læknafélagi
íslands í sameiningu. Bæklingur-
inn er þýddur og staðfærður úr
sænsku, eftir bæklingi sem gef-
inn var út af Sænska læknafélag-
inu og Socialstyrelsen í Svíþjóð
og nefnist Lákarna och
EU/EES. Sveinn Magnússon
læknir og Sólveig Guðmunds-
dóttir höfðu veg og vanda af út-
gáfunni.
I bæklingnum er fjallað um
réttindi og skyldur sem íslenskir
læknar hafa innan EES-svæðisins,
hlutverk lögbærra heilbrigðisyfir-
valda og hver þau yfirvvöld eru,
taldar eru upp íslenskar sérgreinar
í læknisfræði sem tilkynntar eru í
læknatilskipun ESB auk þess sem
listi er yfir helstu tilskipanir, lög
og reglugerðir er lúta að starfí
lækna innan svæðisins.
Bæklinginn er hægt að fá á
skrifstofu LÍ.