Læknablaðið - 15.03.1998, Side 10
194
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Hornhimnuígræðslur
á íslandi 1981-1996
Andri Konráösson”, Friöbert Jónasson'2*, Óli Björn Hannesson2’, Einar Stefánsson121
Konráðsson A, Jónasson F, Hannesson OB, Stef-
ánsson E
Penetrating keratoplasty in Iceland 1981-1996
Læknablaðið 1998; 84: 194-200
Introduction: Penetrating keratoplasties have been
performed in Iceland since 1981 and are the only
type of organ transplantation done in the country.
Previous studies have shown that Iceland differs
from most other countries in regard to indications for
penetrating keratoplasty.
Material and inethods: The files of all patients who
underwent penetrating keratoplasty from 1981 to lst
of January 1996 were reviewed.
Results: During the period 99 penetrating ker-
atoplasties were performed on 94 eyes in 76 patients,
age five to 94 years. Penetrating keratoplasty was
most commonly performed on 30-39 years old. The
most frequent indications were macular corneal dy-
stophy (35%), pseudophakic bullous keratopathy
(13%) and keratoconus (10%). Fresh donor corneas
were 73 and 26 cultured. The mean visual acuity with
correction, measured with a Snellen chart was 0.15
preoperatively but 0.46 at six months postoperatively
and 0.53 at 18 months postoperatively. The most
common complications were graft rejection and in-
fection.
Discussion: The annual number of penetrating ker-
atoplasties per 100 thousand inhabitants is approx-
imately the same in Iceland and the UK but signi-
ficantly lower than in the USA. Macular corneal dy-
strophy is a common indication in Iceland contrary to
other countries, accounting for more than a third of
all grafts, which again may explain the favorable out-
come of grafts in this study as nieasured by visual
acuity.
Frá " læknadeild Háskóla Islands,21 augndeild Landspítal-
ans. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Friöbert Jónasson, augn-
deild Landspítalans, 101 Reykjavík.
Lykilorð: líffæraflutningar, hornhimnuígræðslur, höfnun,
sjónskerpa, arfgeng blettótt hornhimnuveiklun.
Keywords: organ transplantation, keratoplasty, graft
rejection, visual acuity, macular corneal dystophy.
Ágrip
Inngangur: Hornhimnuígræðslur hafa verið
framkvæmdar á íslandi frá árinu 1981 og eru
einu líffæraflutningarnir sem gerðir eru hér á
landi.
Efniviður og aðferðir: Sjúkraskrár allra
sem gengist höfðu undir hornhimnuígræðslu
frá 1981 til 1. janúar 1996 voru skoðaðar.
Niðurstöður: A tímabilinu voru gerðar 99
hornhimnuígræðslur á 94 augum í 76 sjúkling-
um, fimm til 94 ára og voru flestir í aldurs-
hópnum 30-39 ára. Algengustu ábendingarnar
voru arfgeng blettótt hornhimnuveiklun (35%),
innþekjubilun (13%) og keilulaga hornhimna
(10%). Alls voru 73 gjafahornhimnur ferskar
en 26 komu frá augnbanka. Sjónskerpa með
leiðréttingu, mæld með Snellen-töflu var að
meðaltali 0,15 fyrir aðgerð, 0,46 sex mánuðum
eftir aðgerð og 0,53 18 mánuðum eftir aðgerð.
Algengustu fylgikvillarnir voru höfnun og sýk-
ingar.
Umræða: Hornhimnuígræðslur eru nánast
jafntíðar á Islandi og á hinum Norðurlöndunum
og Bretlandi en mun fátíðari en í Ástralíu og
Bandaríkjunum. Algengasta ábendingin hér á
landi (arfgeng blettótt hornhimnuveiklun)
kemst varla á blað nokkurs staðar annars stað-
ar og stafar það af óvenjuháu al^engi þessa arf-
genga sjúkdóms hér á landi. Árangur í formi
bættrar sjónskerpu er betri í þessari rannsókn
en erlendum og skýrist það að nokkru leyti af
ójöfnu hlutfalli ábendinga fyrir ígræðslum
milli landa.
Inngangur
Fyrsta velheppnaða hornhimnuígræðslan var
franrkvæmd seint á síðustu öld (1). Undanfarin
30 ár hefur orðið gífurleg fjölgun slíkra að-