Læknablaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 12
DOUGAN
DOUGAN
Doliqan
HYLKI; N02AX02 RE
Hvert hylki inniheldur: Tramadolum INN. klórlð. örkristallað. 50 mg.
Eiginleikar: Sterkt verkjalyf. sem verkar á svipaðan hátt og morfín. Lyfið tengist mý, delta og kappa
viðtökum (miðtaugakerfi svipað og morfln, en hemur þar að auki endurupptöku noradrenalíns og serótóníns í
taugaendum. Lyfið hefur einnig hóstastillandi verkun. en áhrif á öndun, þarmahreyfingar og blóðrásarkerfi
eru mjög lítil eftir venjulega skammta. Þolmyndun og ávanahætta eru hverfandi.
Lyfið frásogast vel eftir inntöku og nær verkun hámarki eftir 1-2 klst. Lyfið skilst út (þvagi. óbreytt og sem
umbrotsefni. Helmingunartími í blóði er 5-7 klst., nokkru lengri hjá öldruðum og um helmingi lengri hjá
sjúklingum með verulega skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi.
Abendingar: Miklir eða meðalsvæsnir verkir.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Eitrun eða ofskömmtun með efnum, sem hafa
slævandi áhrif á miðtaugakerfið.
Aukaverkanin Algengasta aukaverkunin er ógleði (6%).
Algengar (>1%):
Almennar: Aukin svitamyndun, svimi, höfuðverkur, þreyta, deyfð.
Hjarta- og æðakerfi: Stöðubundinn lágþrýstingur.
Meltingarfæri: Munnþurrkur, ógleði, uppköst.
Sjaldgæfar (0,1-1%):
Almennar: Syfja.
Hjarta- og æðakerfi: Hraður hjartsláttur, háþrýstingur.
Miðtaugakerfi: Vöðvatitringur, órói.
Meltingarfæri: Hægðatregða, niðurgangur, kviðverkir. meltingartruflanir.
Húð: Kláði.
Þvagfæri: Þvaglátatruflanir.
Augu: Sjóntruflanir.
Eyru: Suð fyrir eyrum.
Mjög sjaldgæfar (<0,1%):
Almennar: Hiksti.
Miðtaugakerfi: Skyntruflanir, rugl, þunglyndi.
Meltingarfæri: Aukinn loftgangur, truflanir á bragðskyni, bólga í munni, útbrot.
Húð: Utbrot.
Milliverkanir: Gjöf lyfsins samtfmis notkun sterkra geðlyfja getur leitt til krampafloga. Lyfið á ekki að
gefa sjúklingum sem nota MAO- hamlandi lyf eða hafa notað þau á síðustu tveimur vikum. Címetidín
getur seinkað umbroti lyfsins og karbamazepín getur stytt verkunartíma.
Eiturverkanir: Einkenni um ofskömmtun eru uppköst. veikur púls, skert meðvitund eða dásvefn,
krampaflog og öndunarlömun.
Meðferð: Tafarlaus vistun á gjörgæslu til að meðhöndla öndunarlömun. Naloxón dregur úr
öndunarlömun og díazepam dregur úr krömpum.
Varúð: Lyfið er ekki nothæft til að draga úr fráhvarfseinkennum morfíns. Hætta á ávana og fíkn er
hverfandi við venjulega notkun lyfsins, en ekki er hægt að útiloka slíka hættu við langvarandi meðferð
og hjá sjúklingum með tilhneigingu til lyfjamisnotkunar. Lyfið verður að nota með varúð hjá sjúklingum
með höfuðáverka, hækkaðan þrýsting í miðtaugakerfi. mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi, flogaveiki
eða lost. Sérstakrar varúðar verður að gæta, ef lyfið er gefið sjúklingum með skerta lungnastarfsemi
eða þeim, sem taka lyf með öndunarslævandi verkun. Lyfið dregur úr viðbragðsflýti og ber því að
forðast akstur vélknúinna farartækja og stjórnun véla þegar lyfið er tekið.
Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið á ekki að nota á meðgöngutíma. Lyfið skilst út (mjólk í svo litlu
magni (um 0,1 % af gefnum skammti) að það er væntanlega skaðlaust fyrir barn á brjósti.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Skammta þarf að stilla eftir eðli verkja og næmi sjúklings.
Venjulegir skammtar eru 50-100 mg 3-4 sinnum á sólarhring. Yfirlein er ekki þörf á stærri
sólarhringsskammti en 400 mg. en gefnir hafa verið sólarhringsskammtar allt að 800 mg og hafa
sjúklingar þolaðþá vel.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum innan
15 ára aldurs.
Pakkningar og hámarksverð 1. okt. 1997:
Hylki: 20 stk. 962 kr.
Hylki: 100 stk. 3.699 kr.