Læknablaðið - 15.03.1998, Page 16
198
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Table II. Annual number of penetrating keratoplasties per 100 thousand inhabitants in three countries.
Contry No. of operations Reference period
lceland 2.9 1988-1990
UK 3.6 1992
USA 15.2 1988-1990
Number of patients
Age groups (years)
Fig 6. Relaíive frequency of macular corneal dystrophy as an
indication for penetrating keratoplasty in different age groups.
um við aðgerðina en hver punktur sem fellur
ofan skálínunnar táknar að sjónskerpa hefur
batnað.
Þrír hornhimnuþegar hafa farið í sjón-
lagsaðgerð til að bæta sjónskekkju.
Umræða
Fjöldi aðgerða, aldur og kyn: Tafla II sýnir
fjölda hornhimnuígræðslna á hverja 100
þúsund íbúa á íslandi, í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Miðað við mannfjölda gera ís-
lendingar álíka margar hornhimnuígræðslur og
aðrar Norðurlandaþjóðir og Bretar en Astralíu-
menn þrefalt fleiri og Bandaríkjamenn enn
fleiri. Astæðurnar fyrir þessum mun eru ekki
ljósar en sem hluta af skýringunni má benda á
mjög hátt algengi innþekjubilunar eftir
augasteinsaðgerð í Bandaríkjunum (14).
Aldursdreifingin er tvítoppa (mynd 1).
Flestar aðgerðirnar voru framkvæmdar á fólki á
aldrinum 30-39 ára eða 23 og þar af voru 17
vegna arfgengrar blettóttrar hornhimnuveikl-
unar. Þetta undirstrikar það að fólk með þennan
sjúkdóm er venjulega komið með verulega
sjónskerðingu um þrítugt. Mynd 6 sýnir hlut-
fall arfgengrar blettóttrar hornhimnuveiklunar
af ábendingum í mismunandi aldursflokkum.
Seinni toppurinn er í aldurshópnum 60-89
ára. Þar eru ábendingarnar fjölbreytilegri en sú
algengasta er innþekjubilun af ýmsum
orsökum. Ekki er marktækur munur á hlutfalli
kynja.
Abendingar: Arfgeng blettótt hornhimnu-
veiklun er langalgengasta ábendingin fyrir
hornhimnuígræðslu (35%) en samkvæmt
rannsókn Friðberts Jónassonar, Jóhanns
Heiðars Jóhannssonar og fleiri var þessi
sjúkdómur ábending fyrir 31% hornhimnu-
ígræðslna á íslendingum 1974-1988 (12).
Tafla III sýnir hlutföll ábendinga fyrir horn-
himnuígræðslum í nokkrum erlendum
rannsóknum (2,7,10,11,14). Arfgeng blettótt
hornhimnuveiklun kemst aðeins á blað í einni
þeirra og er þar ábending fyrir 1,2% aðgerða.
Algengi arfgengrar blettóttrar hornhimnu-
veiklunar er talið 10 einstaklingar á hverja 100
þúsund íbúa á Islandi en 0,2 á hverja 100
þúsund í Danmörku og 0,1 í Bandaríkjunum
(12). Talið er að meingenið hafi borist til
Islands mjög snemma og útbreiðsla þess sé
orðin mjög mikil fyrir svokölluð forfeðraáhrif
(founder effect) (3). Nýlega hefur tekist með
genatengslarannsóknum að staðsetja erfða-
fræðilega orsök þessa sjúkdóms í íslenskum
iaoie ni. maicanons jor corneai , Indications iranspianianons in six lceland siuaies ('70). UK USA Australia West Bank Singapore
Dystrophies (42) (16.1) - (7) (5.3) (12.5)
-Thereof MCD (35) (1.2) - - - -
-Thereof Fuch's (6) (11.4) (5.8) - (0.5) (1.8)
Keratoconus (10) (19.9) (24.2) (31) (37.5) (17.9)
Bullous keratopathy (16) (22.0) (23.0)” (25) (1.9) (3.6)
HSV keratitis (5) (10.6) - - (10.6) (5.4)
Infections other than HSV (12) (15.5) (8.2) - (25.0) (35.7)
Regrafts (6) 2) (13.1) (14) (7.0) -
Trauma (D (4.6) - - (4.8) (14.3)
Reference Present study 7 14 2 10 11
Psudophakic bullous keratopathy only.
Regrafts were not considered an individual indication in this study, but classified according to the indication for the original keratoplasty. The
actual proportion of regrafts was 16%.