Læknablaðið - 15.03.1998, Qupperneq 25
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
205
mínútu og <7 við fimm mínútur eða endurlífg-
unaraðgerðir), blóðríki (klínísk einkenni, blóð-
þynnandi aðgerðir), bráða eða hálfbráða keis-
araskurði, öndunarerfiðleika og lága fæðingar-
þyngd. Að lokum var skráður fjöldi áhættuþátta
hjá hverju barni fyrir sig. Hóparnir voru bornir
saman (kí-kvaðratspróf) með tilliti til tíðni og
fjölda einstakra áhættuþátta.
Mismunur milli hópa telst marktækur ef
p<0,05. Þar sem kí-kvaðratspróf var notað var
það gert með Yates-leiðréttingu. í niðurstöðum
eru gefin upp p-gildi og %2-gildi þar sem við á.
Niðurstöður
Sextán af sjúklingunum 18 höfðu fengið
fæðu í maga áður en þeir veiktust. Þeir höfðu
allir verið nærðir um magaslöngu. í saman-
burðarhópnum höfðu hins vegar 20 af 36 verið
nærðir um magaslöngu eða 55,6% og er það
marktækur munur (%2=4,6; p=0,03). Fleiri sam-
anburðarbörn (18 af 36; 50%) en sjúklingar
(þrír af 16; 18,8%) höfðu fengið brjóstamjólk í
fyrstu gjöf en munurinn reyndist ekki tölfræði-
lega marktækur (%2=3,3; p=0,07). Ekki finnst
heldur marktækur munur á því hve margir
höfðu eingöngu fengið brjóstamjólk eða þurr-
mjólk eða hvort tveggja (%:=3,2; p=0,2).
A myndum 1 og 2 eru dreifirit sem lýsa ein-
stökum gjöfum, annars vegar hjá sjúklingunum
og hins vegar hjá samanburðarbörnunum.
Hallatölur línanna lýsa meðalaukningu í magni
fæðu á klukkustund en skurðpunkturinn við y-
ás lýsir meðalmagni í fyrstu gjöf.
A mynd 3 má sjá meðaltalsmagn í gjöf á 12
tíma fresti fyrir báða hópana. A myndinni sést
hvernig meðaltölin víxlast. Gerð var línuleg
aðhvarfsgreining á mismunargildum einstak-
linganna en samanburður með t-prófi sýnir
ekki marktækan mun milli hópa (t=0,5; p=0,6).
Hallatala aðhvarfslínu fyrir sjúklingahópinn er
-0,005 en -0,007 fyrir samanburðarhópinn.
Auk magaslöngunotkunar sýndi einn áhættu-
þáttur marktækan mun milli hópa (tafla II),
bráður eða hálfbráður keisaraskurður. Tólf af
18 sjúklingum (66,7%) höfðu fæðst með þeim
hætti en einungis átta af samanburðarbörnun-
um 36 (22,2%) (x2=8,3; p=0,004).
í töflu III er samantekt á fjölda áhættuþátta
hjá börnum í hvorum hópi. Samanburður milli
hópanna með kí-kvaðratsprófi gaf p-gildið 0,05
(X2=7,9), sem er ekki marktækur munur. Einn
sjúklingur (5,6%) hafði engan áhættuþátt, sá
var lagður inn á Vökudeild þar sem móðirin var
ml/kg
Fig. 1. Amount offood (ml/kg) per meal every 12 hours, 16
patients.
y = 0.07x + 4.73
R’ = 0.66
Fig. 2. Amount of food (ml/kg) per meal every 12 liours, 23
controls.
y = 0.06x + 5.92
R: = 0.37
ml/kg
25 —
20
15
10
..Crts tJts
tj-------
<A- A a-A-Á
Time (hours)
Fig. 3. Average amount of food (ml/kg) per meal every 12
hours. Patients (o) and controls (A).