Læknablaðið - 15.03.1998, Side 30
208
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Um njálginn og líffræði hans
Karl Skírnisson
Skírnisson K
On the biology of the pinworm
Læknablaðið 1998; 84: 208-13
Pinworm Enterobius spp. has probably been an en-
demic parasite in humans in lceland since the colon-
ization of the country more than 1100 years ago. A
recent survey on pinworm infections in children in
playschools indicated that the pinworm is quite
common. The results are published in another article
in this issue. In this contribution general knowledge
on the biology of the parasite (taxonomy, morpho-
logy, distribution, life-cycle, transmission, diagnosis
and treatment) is reviewed. Recently, dozens of male
pinworms found in a stool sample were identified as
Enterobius gregorii. Since no other species identifi-
cations have been made in Iceland so far, it is not
known if the other pinworm species E. vermicularis
also occurs in Iceland.
Key words: Ertterobius vermicularis, E. gregorii, pin-
worm, lceland.
Correspondence: Karl Skírnisson, Institute for Ex-
perimental Pathology, University of lceland, IS-112
Reykjavík, lceland. E-mail: karlsk@rhi.hi.is
Ágrip
Eftir því sem best er vitað er njálgs fyrst get-
ið á prenti hér á landi árið 1781. Allar líkur eru
samt á því að njálgur hafi verið landlægur á ís-
landi frá því að menn hófu þar búsetu. Hér á
landi hafa ekki verið teknar saman ítarlegar rit-
aðar upplýsingar um líffræði njálgs þótt ýmsar
upplýsingar um sníkjudýrið sé þó all víða að
finna í kennslubókum og í ýmsum þýddum eða
FráTilraunastöð Háskóla íslands i meinafræðum að Keld-
um. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Karl Skírnisson, Tilrauna-
stöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum, 112
Reykjavík. Tölvupóstur karlsk@rhi.hi.is
Lykilorð: Enterobius spp., njálgur.
staðfærðum ritum. í þessari samantekt er fjall-
að almennt um líffræði njálgsins. Meðal annars
er rætt um útlit og flokkun, útbreiðslu, lífsferil,
smitleiðir og hvernig unnt er að staðfesta
njálgssmit. Jafnframt eru tilgreindar helstu var-
úðarráðstafanir sem beita má til að halda
njálgssmiti í lágmarki.
Tugir karlkyns njálga seni fundust nýlega í
hægðum íslensks sjúklings, reyndust vera af
tegundinni Enterobius gregorii. Þar sem aðrar
tegundagreiningar hafa enn ekki verið gerðar á
njálgum af íslenskum uppruna er ekki vitað
hvort hin njálgstegundin, E. vermicularis,
finnst hér einnig.
Inngangur
Eftirfarandi samantekt er skrifuð með það
markmið í huga að draga saman ýmsar líffræði-
legar staðreyndir um njálg, upplýsingar sem
nýst gætu læknum og öðrum þeim sem ætlað er
það hlutverk að halda sníkjudýrinu í skefjum
hér á landi. Byggt er einkum á upplýsingum
sem fram koma í nokkrum nýlegum, erlendum
handbókuin og yfirlitsgreinum. í fyrsta kaflan-
um er jafnframt getið um þær innlendu heim-
ildir um njálg sem höfundi eru kunnar. Kveikj-
an að þessari samantekt var rannsókn sem gerð
var haustið 1992 á njálgssýkingum í leikskóla-
börnum í Kópavogi og Reykjavík (1) en þá
kom berlega í ljós að verulegur skortur er hér á
landi á aðgengilegum, almennum upplýsingum
um njálg.
Njálgur á íslandi
Njálgur er eitt þeirra fáu sníkjudýra sem tal-
in eru landlæg í mönnum á íslandi (2). Raunar
eru sterkar líkur á því að njálgur hafi verið hér
frá því að menn hófu hér búsetu því sníkjudýr-
ið hefur fylgt manninum um allan heim í ald-
anna rás (3).
Orðið njálgur kemur fyrst fyrir í íslensku rit-